Þjóðlíf - 01.05.1987, Qupperneq 33
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Rás-2 gengur upp
Bogi Ágústsson fulltrúi framkvæmdastjóra ríkisútvarps
EFTIR UPPSVEIFLU Bylgjunnar í vetur
rís nú Rás-2 úr valnum efld og aukin eftir
uppstokkun á dagskrá stöðvarinnar og er
stefnt á yfirburði í síharðnandi samkeppni
við einkastöðvarnar sem spretta upp hver á
fætur annarri á þessu fyrsta ári „frjálsrar
útvarpsmiðlunar“. Um auglýsingakökuna
verður slegist af vaxandi snerpu næstu mán-
uði. Bogi Ágústsson er fulltrúi fram-
kvæmdastjóra hljóðvarpsins. ÞJÓÐLÍF
ræddi við hann um stöðu málsins og horfur
þegar nokkrar vikur voru liðnar frá því að
endurbætt Rás-2 fór í loftið og niðurstöður
fyrstu hlustendakönnunar lágu fyrir.
Á Rás-2 sér einhverja von í þessum slag?
„Að sjálfsögðu. Hlustendakönnun sem
gerð var aðeins nokkrum dögum eftir að
Rás-2 fór af stað í nýjum búningi staðfestir
það. Við tvöfölduðum hlustendafjöldann
frá síðustu könnun þó svo að ýmsir nýir
þættir, sem að við vitum að eiga eftir að
vinna sér miklar vinsældir, hefðu ekki náð
þá þeirri hlustun sem við vitum að þeir eiga
eftir að fá. Þar má t.d. nefna Hringiðuna
milli kl. 4 og 7 síðdegis sem er með því besta
útvarpsefni af þessari tegund sem boðið er
uppá.“
Könnunin sýnir nú samt ekki mikla hlust-
un, þið eruð með þetta 5 til 15 prósent hlust-
enda yfir allan daginn...
>,Það fer eftir því við hvað er miðað hvað
telst vera góð niðurstaða úr hlustendakönn-
uninni. Bylgjumenn skilgreina þetta mjög
þröngt og miða aðeins við aldurshópinn 15
hl 70 ára og taka aðeins höfuðborgarsvæðið,
en við viljum taka alla aldurshópa inn í
dæmið fyrir landið allt og erum ekkert
óhressir með þá niðurstöðu — svo erum við
ekki heldur neitt óánægðir með stöðuna hér
1 Reykjavík þar sem við erum að auka hlut
°kkar. Má Ííka minna á að Bylgjan nær
yfirleitt ekki 20 prósent hlustun."
Hver œtti að vera eðlileg skipting á milli
stöðvanna að þínu mati?
».Á milli þessara tveggja stöðva tel ég að
eðlileg skipting gæti verið 60 á móti 40, Rás-
2 í hag. Það byggi ég á því að eðlilega vilja
margir hlusta á Bylgjuna, sem er ágæt út-
varpsstöð og hefur marga góða dagskrár-
gerðarmenn, en við teljum aftur á móti að
yfirburðir ríkisútvarpsins hvað tæknibúnað,
a'la tæknivinnslu, undirbúning dagskrár og
afburða góða fréttaþjónustu snertir, muni
hafa það í för með sér að meirihluti hlust-
®nda snúi sér að okkur. Þú heyrir ekki
hnökra í útsendingum okkar eins og oft má
heyra á Bylgjunni, sem er auðvitað eðlilegt
Pví þar er um að ræða nýja og fámennari
utvarpsstöð.“
■ Bogi Ágústsson: Bjartsýnn.
Hver er tilgangur Rásarinnar? Hafið þið
það að markmiði að keppa við einkastöðv-
arnar?
„Já, Rás-2 er að keppa við einkastöðvarn-
ar. Markmið Rásarinnar er að talsverðu
leyti skilgreint af útvarpsráði og svo af okk-
ur sem hér störfum. Við stefnum að því að
halda uppi bæði tónlistarútvarpi og dægur-
málaútvarpi, að gera Rás-2 að útvarpsstöð
sem er í nánum tengslum við allt það sem er
að gerast í þjóðlífinu. Alltaf verði hægt að
rjúfa þætti sem eru í loftinu frá morgni til
hádegis og frá hádegi til kl. 7 á kvöldin, til
að koma inn efni sem er að gerast á þeim
tíma, útvarpa fréttnæmum viðburðum hve-
nær sem er og vera stöðugt í lifandi tengsl-
um við hlustendur. Þetta eru dagskrárleg
markmið en peningalega markmiðið, eins
og það er skiígreint af útvarpsráði, er ein-
faldlega að Rás-2 standi undir sér.“
Nú er útvarpað allan sólarhringinn, magn-
ið eykst, en hvað með gœðin?
„Dagskrá rásarinnar var mjög góð fyrir
breytingarnar, en við töldum samt rétt að
endurskoða þetta frá grunni. Áður voru
ýmsir sérþættir í dagskránni á miðjum degi
en við breyttum þessu í það horf að hafa
löng hólf, þriggja tíma þætti frá morgni til
kvölds, með fjölbreyttri músík og alls konar
innskotum. Nú á þetta að vera samfellt út-
varp sem fólk getur hlustað á við leik og
störf.
Það er líka lögð mikil áhersla á faglegu
hliðina. Við gerðum ekki þá kröfu að nýtt
þáttagerðarfólk, sem kom til liðs við okkur,
væri endilega með reynslu af útvarpi,en allir
fengu þjálfun í dagskrárgerð áður en þeir
fóru í loftið sem er meira en áður hefur
þekkst hér á landi. Við leggjum áherslu á
góða íslensku og vandaða dagskrárgerð í
heild sinni.“
Er nokkur von til að Rásin fái annað
tœkifœri eða stuðning frá stofnuninni ef
dœmið gengur ekki upp hjá ykkur núna?
„Við reiknum ekki með öðru en að Rás-2
muni standa undir sér. Svo segja útvarps-
lögin að Ríkisútvarpið skuli senda út á
tveimur rásum og því verður það gert þó svo
ólíklega vildi til að þetta gangi ekki upp
fjárhagslega hjá okkur. Við höfum bara
ekkert hugsað dæmið á þessum nótum
vegna þess að við erum sannfærð um að
þetta gengur upp.“
En er mögulegt að margar útvarpsstöðvar
geti starfað samtímis og lifað eingöngu á
auglýsingatekjum ?
„Því er ómögulegt að svara en það kemur
í ljós. Ég tel þó ólíklegt að það sé pláss fyrir
fleiri en tvær útvarpsstöðvar og þá er ég að
tala um stöðvar sem starfa af miklum metn-
aði eins og við gerum, og Bylgjan líka því
þar starfa menn af miklum metnaði og reyna
að gera sitt besta, en það verður bara að
sýna sig hvort fleiri slíkar stöðvar eiga
möguleika."
Staðreyndin er þó sú að til þessa hefur
hlustunin ekki dreifst á milli stöðva, Rásin
blómstraði ein en hrundi svo bókstaflega
þegar Bylgjanfór í loftið á stœrstu hlustenda-
svœðunum, nú getur hins vegar sú staða
komið upp að margar stöðvar með takmark-
aðan hlustendafjölda valdi því að auglýsend-
ur telji gagnslaust að auglýsa í útvarpi og
snúi sér annað...
„Jú, þarna er ákveðin hætta á ferðinni en
við lítum á þetta sem svo að við höfum nú
þegar tvöfaldað okkar hlustun frá því í des-
ember á sama tíma og Bylgjan hefur tapað
frá þriðjungi og upp í helming sinna hlust-
enda. Hlutirnir eru að leita í eðlilegt jafn-
vægi.
Það getur hugsanlega orðið verðstríð á
auglýsingamarkaði útvarpsstöðvanna en
það getur líka orðið sú þróun að stöðvarnar
nái til sín meira af auglýsingum frá dag-
blöðum og tímaritum en hingað til ef auglýs-
endur telja að þeir nái meiri árangri með
ódýrari hætti með útvarpsauglýsingum held-
ur en t.d. heilsíðuauglýsingu í Þjóðlífi eða
Mogganum. Margir spá því að með tilkomu
nýju útvarpsstöðvarinnar, Hljóðvarps hf.,
upphefjist hart verðstríð á auglýsinga-
markaðnum. Það er þá meiri ástæða fyrir
Bylgjuna en okkur að óttast fleiri útvarps-
stöðvar því við álítum að því fleiri sem
stöðvarnar verða því betur standi það uppúr
sem Ríkisútvarpið hefur fram yfir hinar út-
varpsstöðvarnar; þessa sterku og rótgrónu
þjónustu sem við getum boðið uppá. Fyrstu
viðbrögð eru líka komin í ljós: Áuglýsinga-
tekjur hafa þegar tvöfaldast.“
■ Eftir Ómar Fribriksson
33