Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 53
I N N L E N T
„Ég hef talsvert átt kost á aö kynna mér
fyrirtæki í tímaritaútgáfu á Norðurlöndun-
um, í Evrópu og Bandaríkjunum og lesið
mér mikið til um þessi mál. Það hefur sýnt
sig að sama þróun á sér stað alls staðar sem
er einfaldlega sú að þau tímarit sem ganga
vel eru þau sem hafa skýrt afmarkaðan
markhóp sem þau höfða til. Þau blöð sem
eru á sem almennustu sviði eiga mest í vök
að verjast. En eitt tímarit hjá okkur brýtur
þetta lögmál. Það er Mannlíf sem er eina
tímaritið af þessum 17 blöðum sem er á
almennu sviði en gengur samt gríðarlega
vel.“
Ganga öll þessi tímarit vel þrátt fyrir fjöl-
miðlabylgjuna sem gengur nú yfir?
„Það er alveg ljóst að þessi kaup eru gerð
til að auka hagkvæmni fyrirtækisins,“ svarar
Magnús og heldur áfram: „Meiri stærð og
aukið magn leiðir af sér meiri hagkvæmni ef
hægt er að halda utan um það stjórnunarlega
séð. Það er til dæmis erfitt að reka Fjölni sér
með hagnaði en það er vel hægt að reka öll
þessi blöð með góðum hagnaði inni í Frjálsu
framtaki og það tryggir þá það sem er okkar
aðal markmið að borga há laun og að standa
í skilum.“
Fyrirtœkið heitir Frjálst framtak en býr
það við nokkra frjálsa samkeppni eftir þenn-
an samruna með öll þessi blöð innanborðs og
á einni hendi?
„Ég hef aldrei hugsað beinlínis um það
hvort um er að ræða einhverja samkeppni.
Ég hef aðeins unnið ötullega að því hvort
hægt er að finna meiri hagkvæmni, standa í
skilum og borga góð laun. Það er aðalmark-
mið mitt og ef ég finn einhverjar leiðir til að
halda áfram þeirri hagkvæmu útgáfu sem ég
hef staðið fyrir undanfarin ár og tryggt það
eftirleiðis þá geri ég það. Ég hef aldrei hugs-
að dæmið á þann hátt hvort ég er að þurrka
út einhverja samkeppni eða ekki.
Flestir á ritstjórnum tímarita Fjölnis halda
starfi sínu og allt skrifstofufólkið nema tveir
eða þrír starfsmenn sem kusu að hætta þegar
sameiningin átti sér stað.“
■ Eftir Ómar Fribriksson
* ■ eina sæng.
17 blöð á einni hendi
Frjálst framtak kaupir tímaritaútgáfu Fjölnis
VERULEG tíðindi áttu sér stað á ís-
lenskum tímaritamarkaði í aprílmánuði þeg-
ar tímaritaútgáfan Frjálst framtak hf. keypti
allan rekstur tímaritaútgáfunnar Fjölnis hf.
Lftir sameininguna er heildarfjöldi þeirra
bmarita sem Frjálst framtak gefur út 17
‘alsins.
Frjálst framtak hefur gefið út tímaritin
Nýtt líf, Frjáls verslun, Sjávarfréttir og Iðn-
aðarblaðið, svo nokkur séu nefnd, en nú
j’ætast í hópinn kunn blöð s.s. Mannlíf,
"óndinn, Hús og garðar, og Viðskipta- og
‘olvublaðið. Haft var eftir einum stærsta
eiganda Fjölnis hf. þegar sameiningin átti
sér stað, að útgáfa tímaritanna hefði verið
orðin mjög umfangsmikil og annað hvort
oefði þurft að auka hlutafé og ráðast í stór-
elld tækjakaup fyrir útgáfuna eða selja
reksturinn þegar tilboð Magnúsar Hregg-
'ðssonar stjórnarformanns Frjáls framtaks
°m skyndilega upp - kaupin gengu saman
Pegar í stað.
Magnús Hreggviðsson réðist þegar í mikla
endurskipuiagningu á öllum rekstrinum.
“ rjálst framtak kaupir ekki Fjölni hf. held-
r eingöngu rekstur þeirrar útgáfu, þ.e.
keypt eru öll blöðin sem Fjölnir hefur gefið
út, rekstur og fjármunir á ákveðnu verði en
engar skuldir yfirteknar," segir hann í sam-
tali við Þjóðlíf. „Við munum halda áfram
útgáfu allra tímaritanna en draga úr útgáfu-
tíðni nokkurra þeirra. Hús og garður mun
koma út sex sinnum á ári en ekki átta sinn-
um eins og var, einnig munum við fækka
útgáfu Viðskipta- og tölvublaðsins úr átta í
sex á ári, Bóndinn fer líka úr átta í sex og
Fréttablað iðnaðarins úr sex til sjö í fjögur.
Útgáfutíðni Mannlífs verður óbreytt tíu blöð
á ári.
Við munum finna starfsfólki Fjölnis störf
inni í rekstri og stjórnun á skrifstofum og
ritstjórnaraðstöðu Frjáls framtaks í Ármúla
18. Öll starfsemi og ritstjórn Frjáls framtaks
verður hins vegar flutt upp í Bíldshöfða þar
sem Fjölnir hefur haft aðstöðu sína. Það
verður því haldið áfram að gefa út öll þau
tímarit sem þessi útgáfufyrirtæki hafa verið
með og engum blöðum steypt sarnan," segir
Magnús.
Flest þessi blöð eru á fremur sérhœfðum
sviðum, er það lykillinn að útgáfu tímarita í
dag að halda sig við ákveðna lesendahópa?
TEFLDU (—< )
EKKI
Á TVÆR HÆTTUR
með því að gera kaupsamning
um íbúð áður en þú hefur
fengið skriflegt lánsloforð
frá okkur.
Það er okkar sameiginlega
áhugamál að þú lendir ekki
í vandræðum.
Húsnæðisstofnun
ríkisins
53