Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 63

Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 63
F Ó L K MAGNÚS REYNIR JÓNSSON Fyrrum framkvæmdastýra Póstmannafélagsins bak vi& búðarboröiö. Úr verkalýðsfélagi > verslunarrekstur ^Etlar aö láta þetta takast J*AO ER LÖNG LEIÐ frá skrifstofuborði 'ýrkalýðsfélags í verslunarrekstur. Flestum ■nnst hún eflaust fáránlega löng og ekki J’énia fyrir einbeittasta fólk að leggja það l‘lr|d undir fót. Guðrún Þorbergsdótlir á það ‘,nd nú að baki: fyrrum framkvæmdastjóri °stmannafélagsins hefur fest kaup á versF Garn-gallerí við Skólavörðustíg í Frá því ég sá hana fyrst hefur mér þótt ^ u°rún Þorbergsdóttir með glæsilegustu °num bæjarins; há og grönn og tíguleg í e,s' ~ °g úvallt glæsilega klædd. Hitt vissi ég 0 1 fyrr en eftir langan tíma að hún hannar g sníður mikið af sínum fötum og saumar ‘ln að auki. Eða prjónar. v var áhugi hennar á prjónaskap sem c r l'l þess að kveikja hjá henni þá hug- mynd að festa kaup á verslun til að selja hugmyndir sínar. „Eg hef trú á því að ég geti gert góða hluti í þessu,“ segir hún brosandi og vísar á bug að hún hafi miklar áhyggjur af þessu stóra stökki sínu. „Og mig langar til þess að láta reyna á hvort ég get þetta. Einnig langar mig til að verða sjálfs mín herra. Ég hef starfað mjög lengi hjá öðrum og fannst kannski tími til kominn að fara út á sjálfstæðar brautir." Hún segist aldrei fyrr hafa fengist við neitt þessu líkt. „Það er eitt að prjóna fyrir sjálfan sig og annað að ætla að lifa á því. Þetta er nokkuð framandi heimur fyrir mig, því er ekki að neita. En þetta er óneitanlega skemmtilegt og ég hlakka mjög tii að fást við þetta. Ég ætla að láta þetta takast.“ Guðrún keypti verslunina 1. desember og í byrjun mars fór hún að starfa alfarið við rekstur hennar. Hún segir að leiðbeining- arstarf í sambandi við garn og prjónaskap verði að vera mjög mikið í slíkum verslun- um. Það eru margar konur sem vilja prjóna en hafa kannski ekki áræðni til að hanna sjálfar eigin peysur og því handhægt að fá góðar uppskriftir og góðar leiðbeiningar. „Nei, ég held að prjónaskapurinn deyi aldrei,“ segir Guðrún aðspurð. „Þrátt fyrir vinnu kvenna utan heimilis mun hann lifa. Bæði er sköpunarþörfin rík í okkur öllum og síðan finnst engum verra að fá flíkur sem eru öðru vísi en þær sem fá má í verslunum. Prjónaskapurinn er vitaskuld ekki sú búbót sem hann var áður, og nú má segja að hann sé okkur fyrst og fremst til ánægju. Samt er enn talsvert ódýrara að prjóna heldur en að kaupa tilbúna peysu". Garnið í Gallerí Garn er aðallega tvenns konar; annars vegar ítalskt frá Casa Fendi og hins vegar belgískt frá Ret og vrang. Greini- legt er á öllu að pastellitir verða allsráðandi í sumar og Guðrún var í óða önn við að leggja inn pantanir og hanna peysur fyrir versl- unina. ■ Eftir Auöi Styrkársdóttur 63

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.