Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 78

Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 78
L I S T I R skrýtið að við íslendingar höfum aldrei sett bœkur Laxness upp á þennan hátt. „Ég veit ekki hvernig þið íslendingar haf- ið sviðsett bækur Laxness og hef því miður ekki heldur séð kvikmyndina Atómstöðin. En mér finnst bókin, sem skrifuð er á við- sjárverðum tímum í sögu íslands, vera súrre- alísk, hlaðin táknum. Sú hugmynd sló mig þegar ég las hana að hinar ólíku persónur væru andlega skyldar. Fyrst sá ég skyldleika organistans og Búa Árlands. Mér fannst þeir vera eins og tvíburar sem alist hafa upp í ólíku umhverfi og annar verður frelsari en hinn svikari. Svo fór ég að hugsa um hvort ekki væri líking með fleiri persónum og sá þá skyldleika með Guðnýju Árland og stúlk- unni í brauðbúðinni, Árngrími og kommún- istanum og frú Árland og Kleópötru. Organ- istinn segir um son Búa Árland að hlutir sem liggi í saltvatni dragi í sig saltið. Fjölskyldan Árland er öll saltlegin. Svo sá ég skyldleika með matseljunni Jónu og móður organ- istans, þó að önnur standi fyrir mannkær- leika en hin vondan kristindóm. Þess vegna datt mér í hug að láta alla leikara nema Uglu fara með mörg hlutverk. Það er ekki sparn- aðarráðstöfun eins og margir halda. Persón- urnar eru ekki skýrum dráttum dregnar, heldur eru þær skissur, skopmyndir. Ugla er eina lifandi manneskjan meðal strengja- brúða, ein sjáandi meðal blindra. Ugla er tákn íslands og Guðrún litla dóttir hennar er tákn framtíðarinnar. Ugla vill standa á eigin fótum. Giftist að vísu lögreglu, en hann er fangi...“ Hvaða erindi á Atómstöðin — sem er skrif- uð fyrir 30 árum handa lítilli þjóð í vanda - til Svía? „Uppfærsla mín á Atómstöðinni er ekki kennslustund í íslandssögu. Hinir sögulegu atburðir á fslandi eru ekki mikilvægastir heldur hitt að við smáþjóðir þurfum að standa vörð um menningu okkar. Svíar eru hræddir um að týna sjálfum sér og uppruna sínum. Við höfum ekki verið jafn dugleg og þið fslendingar að varðveita þjóðareinkenni okkar og bandarísk áhrif eru því mjög mikil í þjóðlífi okkar. Þó að við séum smáþjóð erum við þó fleiri en þið og ábyrgðin dreifist á fleiri; hér hugsar fólk frekar að aðrir geti séð um að vernda sænska tungu og menn- ingu. Ég vil þó ekki hvetja til neinnar afdala- mennsku sem afneitar öllum erlendum áhrif- um. Þið íslendingar eruð t.d. ákaflega al- þjóðlegir vegna þess að þið leitið ykkur menntunar út um allan heim. Eitt af því sem mér finnst heillandi við Atómstöðina er að þó að höfundur hvetji til að menn standi vörð um eigin menningu er hún samt ein- hverskonar varnarræða fyrir nútímalist. Það þýðir ekki að skella hurðinni á heiminn. Þjóðleg list verður allaf að vera alþjóðleg í aðra röndina og alþjóðleg list þjóðleg. Ef við lítum á kvikmyndir þá er t.d. Fellini mjög ítalskur og Bergmann ákaflega sæn- skur. Og jafnframt eru þeir alþjóðlegir. Eða kúrekar og indíánar, hvað er staðbundnara en kúrekar og indíánar? Og ná samt heimsvinsældum. Annað sem ég vil benda á með þessari sýningu er hinn ameríski ofbeldishugsunar- háttur sem er að skjóta rótum á Norður- löndum. Fram að síðari heimstyrjöld voru vopn svo að segja óþekkt hér á Norður- löndum, en nú brýst ofbeldið fram t.d. í morðinu á Olof Palme. Fyrsta hugsun flestra Svía er þeir fréttu um morðið á Palme var að nú væru hryðjuverkin komin til Norður- landa. Við erum föst í netinu.“ Frumsýningardaginn birtist grein í Sænska dagblaðinu eftir rithöfundinn Urban Ander- son. Þar segir að Atómstöðin hafi aldrei átt meira erindi við Svía, nánar tiltekið þeir hlutar hennar sem fjalla um útþenslu amer- ískrar lágmenningar og andstæður íslenskrar hefðar og nútímamenningar. Gagnrýnandi Sænska dagblaðsins efast hins vegar um að Atómstöðin eigi erindi til þjóðar sem ekki hefur Natóherstöðvar í landi sínu heldur sovéska kafbáta í landgrunni. Auk þess finnst honum sósíalismi Halldórs Laxness og Hans Alfredsonar úr sér genginn og hlægi- legur. Því svarar Hans Alfredson í sjón- varpsviðtali að hefði sig grunað að einhver tæki sýninguna sem sósíalískan áróður, hefði hann kveikt á rauðum lampa með orðunum OBS IRONI (ATH. HÁÐ) á viðeigandi stöðum! í Dagens Nyheter er leikstjóranum þakk- að fyrir að draga Nóbelsskáldið upp úr hinni norrænu menningarþoku, sem aðeins létti einu sinni á ári þegar Norðurlandaráð veiti bókmenntaverðlaun. En hann fær líka skammir fyrir það. Einn gagnrýnenda segir að skáldsagan Atómstöðin hafi sprengikraft en Litla eyjan í hafinu sé blindsker í hafi norrænnar samvinnu. Ég hafði ekki hugsað mér að skrifa leiklistargagnrýni. Ég vil bara segja að þó að mér hafi ekki fundist sýningin algóð, finnst mér óréttlátt að kalla hana blindsker í nor- rænni samvinnu. Mér finnst hún mjög góð kynning á íslenskum bókmenntum — og ís- lensku þjóðlífi. Ég hef aldrei hitt Svía sem hefur lesið íslenska bók, fyrir utan mann á sjötugsaldri sem hefur verið ástfanginn af Sölku Völku frá fyrstu kynnum. En nú veit ég að bókmenntaklúbbur uppi í Luleá — sem er langt frá Dramaten og útstillingar- gluggum bókaforlagsins Rabén og Sjögren þar sem Atómstöðin og fleiri íslenskar bækur fá að vera í tilefni leiksýningarinnar — er að lesa og fjalla um Atómstöðina. Og hvað varðar landkynninguna þá finnst mér betra að gert sé góðlátlegt grín að okkur fslendingum en að sunginn sé eilífur hallelú- jasöngur eins og gert er í sænskum fjölmiðl- um. Því að þó að mér þyki vænt um föð- urlandið og móðurmálið vil ég ekki vera viðundur í öðrum löndum vegna uppruna míns. ■ Eftir Björg Árnadóttur JÓHANNA ÓLAFSDOrTlP Listrænn metnaður íslenski dansflokkurinn slær í gegn STRAX Á FRUMsýningu í lok mars varð Ijóst að íslenski dansflokkurinn flytur nú ballett sem slær í gegn. Danssýningin Ég dansa við þig eftir Jochen Ulrich hlaut þegar mjög góða dóma listdansfræðinga og leik- hússfólks yfirleitt, sýningin virðist ætla aö , auka vel áhuga fólks á verkefnum íslenska dansflokksins sem er tímabært því flestar sýningar flokksins hafa þótt mjög góðar, listrænn metnaður og mikil fagmennska sit- ur ætíð í fyrirrúmi og hlaut dansflokkurinn Menningarverðlaun DV í vetur. í fjölmiðl- um hefur sýningin fengið þau meðmæli að vera einhver besta skemmtun sem boðið er uppá á höfuðborgarsvæðinu í aprílmánuði- Tónlistin skipar veigamikinn sess í sýning- unni og byggir á vinsælum dægurlögum fra millistríðsárunum í nýrri útsetningu. Höf- undur hennar er Samuelina Tahija, EgiÚ Ólafsson kemur textunum til skila í tali og syngur og leikur undir á píanó. Jóhanna Linnet syngur einnig í sýningunni en anna) hljóðfæraleikur er fluttur af segulbandi fra upprunalegu sýningunni í Þýskalandi. Joc- hen Ulrich, sem er ekki aðeins höfundur dansa, heldur og búninga og leikmyndar. segir að verkið sé hugsað sem samræða söngvara og dansara. Dansarar að þessu sinni eru: Ásgeh Bragason, Birgitte Heide, Björgvin Frið' riksson, Ellert A. Ingimundarson, Friðrik Thorarensen, Guðrún Pálsdóttir, GuðrU' unda Jóhannesdóttir, Helena Jóhannsdótt' ir, Helga Benhard, Ingibjörg Pálsdóttir- Katrín Hall, Lára Stefánsdóttir, Ólafi'3 Bjarnleifsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Örn GuðmundssoU' Örn Valdimarsson og tveir gestadansarar, Nýsjálendingurinn Athol Farmer og Fr»' kkinn Philippe Talard. Stjórnandi uppfærsl' unnar er Sveinbjörg Alexanders og A$' mundur Karlsson sér um lýsingu. 78
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.