Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 82

Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 82
L I S T I R Góður Krimmi Líkið í rauða bílnum ÓLAFUR HAUKUR Símonarson er rithöf- undur, sem bindur sig ekki við eitt form bókmennta. Hann hefur skrifað ljóð, skáld- sögur, leikrit, söngtexta og um síðustu jól tekst hann á við enn eitt formið, spennusög- una. Ég verð að viðurkenna að ég tók mér þessa bók ákaflega tortryggin í hönd. Sem mikill aðdáandi spennusagna gat ég ekki ímyndað mér að íslenskur höfundur gæti náð fram réttu andrúmslofti spennusögu í ís- lensku umhverfi. En það var nú gott á mig. Ólafur gerir einmitt jjetta á mjög sannfær- andi hátt. Sögusviðið er afskekkt þorp á Vestfjörð- um og söguandhetjan er rammíslenskur alkóhólisti úr Reykjavík. Hann ætlar að flýja vandamál sín úr borginni í frið og ró sveitasælunnar og gerist réttindalaus kennari í dönsku og ensku. Jónas (andhetjan) fær smjörþefinn af þorpsslúðrinu á leið sinni til Litla-Sands hjá ræðnum rútubdstjóra, sem hefur gaman af að tala í hálfkveðnum vísum. Meðal annars kemst hann að því að forveri hans hvarf eina nóttina út í buskann á nýjum bíl leigusala síns og lét ekki sjá sig meir. Þarna í rútunni Sálmabækur og biblían Fermingar setja svip á bókamarkaðinn ÞJÓÐLÍF HEFUR hleypt af stokkunum nýjum þætti sem við köllum Metsölulista Þjóðlífs. Við könnum hvaða bækur seljast best í hverjum mánuði hjá stærstu bóka- búðum landsins og skiptum þeim til að byrja með aðeins í tvo flokka, bækur á íslensku og bækur á erlendum málum. Síðar er ætlunin að hafa undirflokka svo sem skáldsögur, vísindarit, barnabækur og ævisögur, svo nokkuð sé nefnt. Söluhæsta bók hvers mán- aðar verður þó ávallt nefnd sérstaklega, sama hverjum flokki hún heyrir til. Að þessu sinni var könnuð salan hjá tíu bókabúðum, bæði í Reykjavík og utan hennar. Á þessum árstíma er mest hreyfing á sálmabókum og Biblíunni, enda fara fermingar fram í aprílmánuði. En listinn lítur þannie út: hefst sagan af dularfulla kennarahvarfinu og forvitni Jónasar er vakin. Ólafi tekst að flétta saman morðgátunni, sögu þorpsins (og þorsksins), sögu sögumanns og sögu hinnar allsráðandi fjölskyldu á skemmtilegan hátt. Skólinn er að einhverju leyti smækkuð mynd af valdastrúktúr þorpsins. f honum ríkir hálfgerð upplausn og yfir honum trónir Hannes skólastjóri, sem stjórnar honum af sömu harðýðgi og hann stjórnar litlu gráu konunni sinni með grátviprurnar. Hann fyrirlítur nemendur og kennara, en þó eink- anlega menntun. Hann lítur á skólann sem tímabundinn geymslustað fyrir verðandi fiskverkunarfólk. Björn vinur hans í hrepps- nefnd stjórnar þorpinu á sama hátt og hann heldur föður sínum í bóndabeygju alkóhól- ismans og systur sinni í „greipum óttans“. Jónas verður sífellt forvitnari um forvera sinn. Hann fær fleiri og fleiri útgáfur af slúðri þorpsins og brátt fer honum sjálfum að finnast hann vera fórnarlamb ráðandi afla. Vart er hægt að snúa sér við í þessu litla þorpi án þess að fylgst sé með. Hver segir satt? Hverjum á að trúa? Hver er geðveikur, þegar hver bendir á annan? Góðar spurning- ar í góðri spennusögu. Allir grunsamlegir og flestir flæktir í gruggugar slúðursögur. Andhetja okkar er ákaflega trúverðugur alkóhólisti, sem þorir ekki að horfast í augu við eigin vandamál, en flækir sér í vandamál geðveikrar fjölskyldu og rekur nef sitt í stórhættulega koppa, þorir ekki að takast á við eigið líf, en hefur kjark til að skoða fiskétið lík í frystiklefa um miðja nótt. Einn besti kafli bókarinnar lýsir á átakan- legan hátt drykkjumanninum, sem drekkur gegn vilja sínum. Sá kafli sýnir geðklofa alk- ans, sem stjórnast af áfengisfíkninni þótt viljinn og skynsemin segi allt annað. I stuttu máli tekst Ólafi að setja fram ótrúlega atburðarrás á trúverðugan hátt. Og þrátt fyrir sorgarsögu mannlegrar eymdar er sagan alltaf skemmtileg. Ólafur hefur léttan og kíminn stíl og er greinilega hinn rennileg- asti penni. Ég hnaut aðeins um tvær stafsetn- ingarvillur, en ég læt verðandi lesendur um að finna hana sjálfa. Þessa bók las ég í einni striklotu eins og vera ber um góðan krimma. i Eftir Ragnheiði Óladóttur METSÖLULISTI ÞJÓÐLÍFS Bækur á íslensku 1. Sálmahók. Hið íslenska Biblíufélag. 2. Bihlían 3. Orðabækur 4. 100 ára einsemd. Gariel García Marquez. Mál og menning. 5. Brjóstsviði. Nora Ephron. Svart á hvítu. 6. Martröð. í flokknum Isfólkið, Margit Sandemo. 7. Tengsl. Stefán Hörður Grímsson. 8. Fuglar íslands. Hjálmar Bárðarson. Bækur á erlendum málum 1. A Matter «f Honor. Jeffrey Archer. 2. Wanderlust. Danielle Steel. 3. Taming a Seahorse. Robert B. Parker. 4. HallywelPs Film Guide. 5. A Perfect Spy. Jolin le Carré. 6. Demon Box. Ken Casey. 7. IMI take Manhattan. Judith Krantz. 8. Less than Zero. Brett Easton Ellis. I > i 82
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.