Þjóðlíf - 01.09.1987, Síða 6

Þjóðlíf - 01.09.1987, Síða 6
BRÉF FRÁ LESENDUM VÖRÐUR Látinn. Ásgeir Blöndal Magnússon, fyrrverandi forstöðumaður Orðabókar Háskólans, 78 ára að aldri. Var fyrsti fastráðni starfsmaður Orðabókarinnar og starfaði þar frá 1947-79, síðustu tvö árin sem forstöðumaður. 1979 lét hann af störfum en hélt áfram að vinna að gerð orðsifjabókar sem Orðabókin gefur út á næsta ári. Látin. Sesselja Eldjárn frá Tjöm í Svarfaðardal, 94 ára að aldri. Var ráðs- kona á Dalvík og Akureyri um árabil og starfrækti matsölu á Akureyri frá 1928- 49. Stofnandi Ungmennafélags Svarf- dæla og kvennadeildar Slysavarnafélags Islands á Akureyri. Látinn. Guðmundur Pálsson, leikari, 59 ára að aldri. Nam leiklist í Reykjavík og Vínarborg. Lék nokkur hlutverk í Þjóðleikhúsinu en starfaði síðan hjá Leikfélagi Reykjavíkur í rúma þrjá ára- tugi. Átti sæti í stjóm LR er hann féll frá. Afmæli. Ingólfur Ólafsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri KRON, sextugur 8. ágúst. Vann hjá KRON í rúmlega 30 ár þar til hann lét af störfum um síðustu áramót. Fjölgun. 21. júlí, dóttir fædd Ragnhildi Gísladóttur og Jakobi Magnússyni, tón- listarmönnum. Fjölgun. 4. ágúst, sonur fæddur Sigur- jónu Sveinsdóttur, leikkonu, og Kristjáni Jóhannssyni, söngvara. Brúðkaup. 1. ágúst, Herdís Þorgeirs- dóttir, ritstjóri, og Stefán Erlendsson. Til lesenda ÞJÓÐLÍF vill benda lesendum sínum á að þeir geta sent okkur bréf til birtingar, svo framarlega sem fjallað er um efni ÞJÓÐLÍFS eða því tengdu á einhvern hátt. Bréf sem fjalla um annað eru ritstjórn kærkomin, en verða ekki birt. Bent er á, að ritstjórn ásjdlur sér rétt til að stytta bréf en mun kappkosta að breyta ekki merkingu þeirra. Bréf skulu stíl- uð þannig: Fréttatímaritið ÞJÓÐLÍF, do Bréf frá lesendum. Vesturgötu 10, pósthólf 1752, 121 Reykjavík. Nafnleynd verður haldið sé þess óskað. Vændiskonur Ég vil leggja orð í belg um þessa umfjöllun ykkar um vændiskonur (sjá júníhefti ÞJÓÐ- LÍFS 1987). Ég er alls ekki sátt við hvernig þetta er sett fram. Ég tel að með greininni sé ráðist mjög að einstæðum mæðrum og lítið gert úr þeim og erfiðleikum þeirra. Að segja að vændiskonur séu einstæðar mæður finnst mér alveg fráleitt. Þetta kemur þvílíku óorði á einstæðar mæður í þjóðfélagi okkar, að hætt er við að margar hverjar fari að villa á sér heimildir til þess að verða ekki taldar með í þessum hópi. Nógireru nú fordómarn- ir fyrir í þjóðfélaginu í garð einstæðra mæðra þótt þetta bætist ekki við. Guðrún, Reykjavík. Ég vil byrja á því að þakka ykkur fyrir af- skaplega gott blað. Breytingin yfir í frétta- tímarit finnst mér hafa tekist mjög vel. Það er einmitt mikil þörf fyrir svona tímarit hér á landi - tímarit sem flytur vandaðar frétta- skýringar um það helsta sem er að gerast í kringum okkur. En aðaltilefnið þess að ég sest niður við að skrifa er það, að greinin ykkar um vændi vakti slíka athygli allt í kringum mig, að um annað var ekki talað dögum saman. Ég varð var við að fólk var alls ekki á einu máli um þær niðurstöður sem þarna eru kynntar. Sumir vildu meina að þær bentu til þess að konum væri mjög mismunað í okkar þjóð- félagi - aðrir að markaðurinn ætti að sjálf- sögðu að ráða hér sem í öðru. Nú vinn ég á vinnustað þar sem lítið er um konur, þannig að ég veit svo sem ekki hvaða skoðanir kon- ur hafa almennt á niðurstöðum þessarar greinar, en best gæti ég trúað að þeim þætti ekki gott til þess að vita að hér skuli vera komnar á sjónarsviðið vændiskonur. Sveinn, Kópavogi. Trúarhópar Greinin ykkar um trúarhópa (ágústblað 1987) og viðbrögðin við henni sýnir mjög vel þörfina fyrir vandað fréttatímarit hér á landi. Konansent sigraralltaf T»ílU}?atfniali sc\ ditf*a slrtð^Þ-'* Karitiicnn scin K}!* Lsland, nantdís MiuiatvinnurckAlFi Þið hafið tækifæri til að fara betur ofan í en kannski er hægt að gera á um. Ég vil óska ykkur til árangurinn og vona að all haginn í framtíðinni. Aðalsteinn, Reykjavík. öðrum fjölmiðf hamingju me’1 t gangi ykkur1 Trúarvakningin á íslandi finnst mér heldur ógnvænleg. Þessir hópar vita ekkert hva þeir eru að gera þegar þeir halda því fram aðeins sum okkar séu hólpin og önnur fan11 Vítis. Afstaða þessara nýju hópa í garð kyn villinga finnst mér einnig fáránleg. Aðalim1 takið í kristinni kenningu er umburðarly1111 (sbr. Sá yðar sem syndlaus er...) og gæska garð annarra. Munið, að það er ekki okkaf að dæma. Sá einn getur dæmt á hinsta deH' sem hefur öll völd í hendi sér. Ég vona, a‘ fólkið í þe-ssum nýju trúarhópum sjái að se{- { Stefanía, Reykjavík. Bílaþáttur en Þakka ykkur fyrir frábæran bílaþátt. Eg mikill áhugamaður um bíla og les endalau'| allt sem að kj... kemur um þá. Það er mjög v til fundið að hafa slíkan þátt í víðlesnu fréIta tímariti og svo er þátturinn mjög vel skrua ur, bæði af þekkingu og lipurleika. Sigurður, Akureyri. Bókalistinn Ég fylgist vel með metsölulista ykkar og ve að segja að ég skil ekki hvað þið eruð að með bók á borð við Fatherhood eftm ^ Cosby efst á lista. Það getur vel veri svona væmin þvæla seljist, en það er C1 afsökun fyrir virt fréttatímarit að taka uu slíkt. Jónas, Selfossi. 6

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.