Þjóðlíf - 01.09.1987, Blaðsíða 65
VIÐSKIPTI & FJÁRMÁL
talað um að fátækramörkin séu 25 milljónir
króna í árstekjur. Þú þarft að eiga hús eða
'búð á réttum stað, keyra um á Ferrari eða bíl
Sem þú þarft ekki að skammast þín fyrir og
drekka úr réttum glösum.
Það versta við þetta allt er að hlutirnir sem
slíkir skipta ekki mestu, heldur hvernig þér
Vegnar í samanburði við þá sem þér er mest í
tfun að bera þig saman við. Saga er sögð af
^ankamanni sem var orðinn svo heltekinn af
sanianburðinum að hann byrjaði heimsóknir
a að fara yfir matsverð íbúða kunningja og
samstarfsmanna. Þegar konan hans sagði
h°num að vinir þeirra drykkju úr Baccara
filösum sem væru dýrari en Wuterford glösin
Þsirra varð hann æfur yfir hugsunarleysi
bennar að fjárfesta ekki líka í slíku. Að lok-
um hleypur verðbólga í samanburðinn.
^largir sækjast eftir nákvæmlega sömu
l’lutunum (sem oft eru eðlis síns vegna frem-
Ur sjaldgæfir, s.s. handgerðir hlutir), lögmál-
'ö um framboð og eftirspurn gerir hlutina
^ýfari (málverk eftir Jasper John’s var nýlega
Selt fyrir 3,6 milljónir dollara) og saman-
burðurinn gerir fólk og heimili þeirra keim-
lik. Eiginlegur munur er smávægilegur stigs-
uiunur.
Fallegir og vel gerðir hlutir eru mann-
rettindi, eins og William Morris benti á fyrir
S'öustu aldamót, en þegar þeir verða að ein-
erum stöðutáknum verða þeir hjákátlegir,
°lk treður nútímamálverki í umhverfi sem
Ur 1 hróplegri andstöðu við inntak þess, eða
Ufeinlega veggfóðrar með málverkum.
^ARGIR HAFA REYNT að skýra ásókn í
uuðlegð hjá fólki sem eftir öllum sólar-
Uuufkjum að dæma ætti að vera nokkuð vel
sl'tum búið. Til eru sálfræðiskýringar á borð
V|ö of Htla ástúð í æsku, en þær eru að mínu
mati tull „ódýrar". Nærtækustu skýringuna
steingrImur
er líklega að finna í auknu „verðgildi" pen-
inganna. Undanfarin ár hafa vextir hækkað
verulega og fjárfestingarfjármagnið hefur
haft meiri áhrif á atvinnulífið nú en oftast
nær áður. Þannig er hvert stórfyrirtækið af
öðru keypt og er stundum ekki um annað að
ræða en hreina spákaupmennsku. Bréf eru
keypt „undir" verði og fyrirtækin síðan seld,
t.d. hvert dótturfyrirtæki fyrir sig. Reyndar
má segja að eigendaskiptunum fylgi oft
endurskipulagning á fyrirtækjunum sem
auki raunvirði þeirra verulega, en það breyt-
ir því ekki að þeir sem standa að baki eig-
endaskiptunum geta grætt stjarnfræðilegar
upphæðir. Þetta hefur síðan þau áhrif á þá
sem vinna frá níu til fimm fyrir dollurum og
centum að þeim finnst eins og þeirséu hafðir
að fíflum, rétt eins og þeir sem lentu í því að
spara á óverðtryggðum verðbólgutímum.
Endurskipulagningin þýðir að margir
missa vinnu sína og atvinnutækifæri skapast
á öðrum sviðum. Það eina sem er öruggt er
að framtíðin verður önnur en nútíminn. Ef
ekkert er öruggt, ekki einu sinni það að
vinna vel og dyggilega, þá er eins gott að hala
seðlana inn á meðan færi gefst. Það eru fleiri
en Bandaríkjamenn sem hafa komist að
þessari niðurstöðu, þetta virðist vera inntak-
ið í boðskapnum um skattlausa árið og góð-
ærið blessað.
EFSTA STIGI nær veldi peninganna nú þeg-
ar þeir eru orðnir að arðvænlegustu versl-
unarvöru samtímans. Bankaviðskiptin eru
alþjóðlegri, m.a. vegna aukinna fjarskipta-
tengsla, og með því að tengja saman stærstu
verðbréfamarkaði heims, eins og nú hefur
verið gert, getur gengismunurinn einn og sér
gefið drjúgt af sér (rétt eins og þeir fara illa út
úr því sem ekki eru vel á verði). Þar með er
hringnum lokað - peningar búa til peninga,
punktur og basta.
Auðvitað er þetta mikið áhyggjuefni og
þeir, sem trúa því að fyrst þurfi að framleiða
og síðan að selja, klóra sér drjúgt í kollinum.
Það er til lítils að æskja þess að fólk hverfi
aftur til fyrri gilda af því að streberíið er
einmitt andsvar við þeim. Mörgum þóttu
unglingauppreisnir sjöunda áratugarins
enda í raunalegri naflaskoðun. Nýíhalds-
semin átti að vera afturhvarf til borgaralegra
gilda, en borgaraleggildi, s.s. öryggi heimilis-
ins, samlyndi fjölskyldunnar og skýr þjóðholl
markmið, eru ekki annað en ákveðin ytri
einkenni. Lífsstíll eins og hvað annað, eða að
klæða sig eftir ákveðnum reglum, sækja
ákveðna staði o.s.frv. Þaö er ekki gagn að
öðru en að taka þátt í hlaupinu og taka undir
með Dee Hock, fyrrverandi forstjóra Visa,
einum þeirra sem hefur fært okkur nýjasta
helgitákniö, Visa-kortið: þegar gildin verða
að engu, gilda peningarnir!
• Örn D. Jonsson
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Simar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu við Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-27200
65