Þjóðlíf - 01.09.1987, Blaðsíða 45
LISTIR
• Fjórir fulltrúar þriggja menningarhefða: Kurt Vonnegut, Fay Weldon, Alain Robbe-Grillet og
Dorrit Willumsen.
Mildl hátíð
Stórskáld mæta á bókmenntahátíd í Reykjavík
innan skamms
'SABEL allende, Kurt Vonnegut, Fay
^eldon og Alain Robbe-Gríllet eru meðal
Peirra þekktu nafna sem mæta munu á
Bókmenntahátíðina í Reykjavík 13.-19.
September. Þetta er önnur bókmenntahátíð-
jn, hin fyrsta var haldin 1985 og var ljóð-
'starhátíð. örnólfur Thorsson, einn þeirra
Sem sitja í framkvæmdanefnd hátíðarinnar,
Sagði þessa hátíð vera óbeint framhald
Joðahátíðarinnar en þá komu þrjú skáld frá
nyerju Norðurlandanna, höfundar frá Fær-
eyjum, Grænlandi og fulltrúi Sama auk
skálda frá Englandi, Bandaríkjunum, frlandi
°g fleiri löndum. Ljóðahátíðin heppnaðist
mJög vel og því boða aðstandendur til bók-
menntahátíðar alls ósmeykir. Þeir erlendu
gestir sem þekkst hafa boð um að koma eru
eldur ekki af verri endanum; auk þeirra
^111 talin voru hér að framan má nefna
erbjörgu Wassmo frá Noregi, Söru Lidman
rá Svíþjóð, Gerhard Köpf og Luise Rinser
m Pýskalandi, Poul Borum og Dorrit
‘Humsen frá Danmörku, Eevu Kilpi frá
mn]ar>di og Benoite Groult frá Frakklandi.
, . . kmenntahátíðin er haldin í Norræna
usinu og verður hluti af starfsemi hússins
eöan á henni stendur. Frumkvæði að
utföinni átti Knut ödegard, framkvæmda-
J°n Norræna hússins, en ásamt honum fer
eð framkvæmdir nefnd sem eftirtalin
skipa: Árni Sigurjónsson, Einar Kárason,
Halldór Guðmundsson, Ingibjörg Björns-
dóttir, Sigurður Valgeirsson, Thor Vil-
hjálmsson og örnólfur Thorsson. örnólfur
sagði nefndina vinna í sjálfboðastarfi en
þegar nær drægi hátíðinni hvfldi vinnan í
vaxandi mæli á starfsfólki Norræna hússins.
Dagskrá verður á hverju kvöldi meðan
hátíðin stendur þar sem höfundar verða
kynntir. Þeir lesa sjálfir úr verkum sínum
stutta stund, lesið verður úr íslenskum þýð-
ingum á verkum þeirra og stuttlega fjallað
um feril þeirra og verk. Allnokkrir þeirra
höfunda sem hingað koma eiga verk í ís-
lenskum þýðingum (t.d. Fay Weldon, Kurt
Vonnegut og Jon Michelet). Verk eftir aðra
höfunda er verið að þýða, t.d. sögu Isabel
Allende, Hús Andanna, sem Thor Vil-
hjálmsson hefur þýtt, en kafli úr þeirri bók
birtist einmitt hér í ÞJÓÐLÍFI. Þess má geta
að bókin kemur væntanlega út meðan á
hátíðinni stendur. Þá er Hannes Stefánsson
að þýða bók eftir Herbjörgu Wassmo.
Nokkrir umræðufundir verða í Norræna
húsinu meðan á hátíðinni stendur um efni á
borð við: „Konur og bókmenntir", „Nýir
straumar í skáldsagnaritun“ og „Straumar í
norrænum prósa“. Isabel Allende heldur
fyrirlestur um suður-amerískar bókmenntir
og Alain Robbe-Grillet talar um skáldsögur
og ævisögur. Þessir fundir verða öllum opnir
sem og kvölddagskrár. Þá verður gefinn út
bæklingur þar sem hinir erlendu gestir eru
kynntir, dagskráin birt í heild sinni og fjallað
um íslenskar samtímabókmenntir á ensku,
en stefnt er að veglegri dagskrá um sama efni
sem ætlað er hinum erlendu gestum. Meðan
bókmenntahátíðin stendur gefst framhalds-
skólanemendum kostur á að fá erlenda gesti
í heimsókn til sín og spjalla um bókmenntir.
Þessi kynning skal ekki höfð lengri til að
spilla ekki hátíðargleði lesenda. ÞJÓÐLÍF
leggur sitt af mörkum með því að birta brot
úr þýðingu Thors Viðhjálmssonar á bók
Isabel Allende, en sú bók er væntanleg frá
Máli og menningu næstu daga. ÞJÓÐLÍF
kann hlutaðeigandi bestu þakkir.
45