Þjóðlíf - 01.09.1987, Blaðsíða 64
VIÐSKIPTI & FJÁRMÁL
Penjngar, peningar,
peningar__________________
Ardvænlegasta verslunarvara samtímans
UNDANFARNA ÁRATUGI hefur verið til
siðs að básúna ekki um of eigin auðlegð, en
nú eru stöndugheitin aftur orðin að faraldri í
Bandaríkjunum eins og á þriðja áratugnum.
Árið 1963 voru 31,8% af þjóðarauði
Bandaríkjanna í eigu eins prósents þjóðar-
innar. Tuttugu árum síðar var hlutfallið
komið í 34,4%. Þeir ríkustu létu ekki mikið á
auðæfunum bera, aðrir en nýríkir og fjöl-
miðlaljón sem böðuðu sig í lúxusnum, helst
opinberlega. Nú skammast menn sín ekki
lengur fyrir ríkidæmið og það er orðinn stór-
iðnaður að segja sögur þeirra efnuðu. Við
getum gægst inn til þeirra í blöðum eins og
Architectural Digest eða Connoisseur, lesið
slúðrið í Vanity Fair og fylgt sjónvarpsvélun-
um í heimsókn til þeirra í Lifestyles of the
Rich and Famous. Vinsældir Dallas og
Dynasty eru af sömu rótum runnar. Bækur
um einstaklingsafrek seljast með ólíkindum
vel, Lee Iacocca, forstjóri Chrysler, og
Steven Jobs, annar stofnenda Apple eru
þjóðhetjur þar vestra.
Þegar bandarískir háskólanemar voru
spurðir að því árið 196^ hvað þeir teldu vera
mikilsverðustu markmið sín svöruðu 80%
því til að lífsfylling væri efst á blaði en 40%
að einnig væri nauðsynlegt að vera sterk-
efnaðir. Fyrir ári var samskonar könnun
framkvæmd og þá hafði hlutfallið snúist við.
Nú höfðu peningarnir náð fyrsta sætinu en
40% veðjuðu á tilganginn með lífinu.
Gildismatið hefur breyst.
Lúxusvarningur af öllum stærðum og
gerðum hefur aldrei selst betur. Helming1
fleiri lúxusbílar eru fluttir inn til Ameríku nu
en fyrir fjórum árum. Konur bíða ekki lengur
til fimmtugs með að eignast fyrsta pelsinn.
pelsaldurinn er orðinn 26 ár. Fólk með rétt
sæmilegar miðstéttartekjur fjárfestir í Buf'
berry frökkum og gullhúðuðum Mont Bla',c
sjálfblekungum.
Við erum líklega ekki langt á eftir Banda-
ríkjamönnum í neyslukapphlaupinu. Annar
hver Benz á bílasölum Hamborgar er merkt'
ur íslendingum, við eigum heimsmet í flug'
mílum á mann og dýrari verslanir bæjarins
kvarta ekki undan skorti á viðskiptum. Við
eigum það líka sameiginlegt með Banda-
ríkjamönnum að gera okkur ekki stóra rellu
út af því hvað passar saman og hvað ekki-
GALLINN VIÐ PENINGA, og unt leið
kosturinn, er að þeir sjást ekki sem slíkir-
Reyndar kannaðist ég einu sinni við mann
sem las upp úr bankabók fyrir son sinn a
kvöldin og sjö ára strákurinn útlistaði síðan
fyrir vinum sínum leyndarmál debet
kredit. Ef auðurinn á að vera annað og meir®
en trygging fyrir rólegu ævikvöldi verður a
festa hann í réttu hlutunum og það er enginn
hægðarleikur. í fjármálaheimi Wall Street er
64