Þjóðlíf - 01.09.1987, Blaðsíða 73
^afa komið beint úr 2. deild. Blikarnir halda
°Hum sínum mannskap og Hans Guðmunds-
son bætist í hópinn. f>að getur verið góður
styrkur að honum, ef hann verður ekki jafn
°heppinn með meiðsli og hjá KR í fyrra.
Hornamaðurinn snöggi Jón Þórir Jónsson
skaust framá sjónarsviðið í fyrra sem einn
°kkar alskemmtilegasti leikmaður og bræð-
Urnir Björn og Aðalsteinn Jónssynir eru
8eysisterkir. Guðmundur Hrafnkelsson er
e,tthvert mesta markmannsefni sem komið
Uefur fram hér á landi, enda er hann þegar
(toniinn í landsliðið. Hann sá Kópavogslið-
lnu fyrir ófáum stigum síðasta vetur. Breidd-
ln er kannski ekki nógu mikil hjá Breiðabliki
en með sama áframhaldi ætti liðið að halda
S|8 í efri hluta deildarinnar. Geir Hallsteins-
S()n þjálfar liðið áfram og gjörþekkir sína
hienn.
FH kom einnig á óvart í fyrra með hinn 24
ara landsliðsfyrirliða, Þorgils Óttar Mathie-
Ser>, sem aldursforseta. Unga kynslóðin í FH
er geysilega efnileg og Hafnarfjörður er
SV|paður í handboltanum og Akranes í
^iattspyrnunni, það er nánast hefð að ungar
s,jörnur leysi alltaf þær eldri af hólmi, hvað
Sern á dynur. Héðinn Gilsson er sífellt að
,'®ta við sig reynslu og verður væntanlega
raðum ekki bara efnilegur. Piltar á hans
reki eru í flestum stöðum, og eru flestir líka
ekilmenn í yngri landsliðunum. Þar má
nefna Gunnar Beinteinsson, Pétur Petersen,
skar Helgason, Magnús Árnason mark-
Vórð - þessir allir og fleiri til hafa burði til að
Ua langt. FH teflir fram sama liði og í fyrra,
‘?ri eldra og reynsluríkara. Viggó Sigurðsson
Jalfar áfram, hjá honum virðast FH-strák-
arnir í góðum höndum.
j^ARNAN uppfyllti ekki þær vonir sem
Ur>dnar voru við liðið á síðasta keppnis-
i abili. Meistaraefnin svokölluðu komust
Urei í tæri við toppinn en bættu sér það þó
j,PP oieð sigri í bikarkeppninni í fyrsta skipti.
^Jarnan hefur misst lykilmann, Hannes
etfsson, yfir í Fram og Pál Björgvinsson
Jaifara og leikmann til HK. í staðinn kemur
I . nnar Einarsson sem þjálfari og jafnvel
q krnaður og hann þekkir bærilega til í
. are>abænum, þjálfaði liðið í áraraðir áður
^ar|n fór til Noregs. Stórskyttan Gylfi
tr|r8*Sson verður væntanlega áfram eitt aðal-
^ ttp Garðbæinga ásamt yngri mönnunum,
8Urjóni Guðmundssyni, Einari Einarssyni
^. ^kúla Gunnsteinssyni. Sennilega hefur
íslJarnan ekki nægilega breidd til að vinna
^andsmótið en það gæti þó verið hættulegt
^skrifa Garðbæingana.
alsmenn ollu sjálfum sér og stuðnings-
þr,.nnuni sínum miklum vonbrigðum í íyrra.
alj t.^r’r ágætan mannskap náðu þeir sér
gó^e' a strik, það vantaði festu í liðið og
höfnn Jeikstjórnanda. Markvarslan var líka
úr .erkur en slíkar áhyggjur ættu að vera
s°gunni við endurkomu Einars Þor-
varðarsonar. Geir Sveinsson, Júlíus Jónas-
son og Jakob Sigurðsson eru allir reyndir
landsliðsmenn þrátt fyrir að vera rétt liðlega
tvítugir og Valdimar Grímsson gefur þeim
ekkert eftir á góðum degi. Valsmenn hafa
fengið góðan liðsstyrk, auk Einars er hinn
efnilegi Jón Kristjánsson kominn frá KA og
Ármenningurinn hávaxni Einar Naabye.
Pálmi Jónsson er farinn í Fram en hann náði
aldrei að festa rætur í liðinu í fyrra. Pólverj-
inn Stanislav Moadrowski tekur við af Jóni
Pétri Jónssyni sem þjálfari og standi hann
öðrum löndum sínum sem hingað hafa komi
á sporði þurfa Valsmenn ekki að kvíða vetr-
inum. Valsarar stefna að því að leika á eigin
heimavelli í vetur, í Valshúsinu, fyrstir
Reykjavíkurliða. Kannski þeim takist loks-
ins að láta verulega að sér kveða?
KA kom á óvart í fyrra með frískt og létt
leikandi lið sem gat unnið alla og tapað fyrir
öllum. Það hefur loðað við Akureyrarliðin
að missa jafnan sína bestu menn suður og nú
er Jón Kristjánsson farinn í Val. Hinsvegar
eru stóri bróðir hans, Erlingur Kristjánsson,
og Jakob Jónsson komnir heim frá Noregi og
styrkja liðið án efa talsvert. Þeir verða
væntanlega í aðalhlutverkum ásamt hinum
líflega miðjumanni Pétri Bjarnasyni, Frið-
jóni Jónssyni og markverðinum og þjálfar-
anum Brynjari Kvaran. Miðjusæti í deildinni
er líklegt hlutskipti KA en allt getur gerst,
ekki síst með góðum stuðningi áhorfenda á
Akureyri. Þar lenda öll aðkomulið í erfið-
leikum.
KR-ingar börðust í fyrra við að halda sér í
deildinni en komu að ýmsu leyti á óvart. Þeir
tefldu fram mörgum bráðefnilegum leik-
mönnum, hornamaðurinn Konráð Olavsson
og varnarmaðurinn Þorsteinn Guðjónsson
eru þar fremstir í flokki. KR hefur misst tvo
af reyndari mönnum sínum, Hans Guð-
mundsson, sem reyndar nýttist lítið í fyrra
vegna meiðsla, er farinn í Breiðablik og
Sverrir Sverrisson í Gróttu. Sigurður Sveins-
son, bráðefnilegur homamaður úr Aftur-
eldingu, er hinsvegar kominn í röndótta bún-
inginn. Ólafur Jónsson þjálfar liðið áfram.
KR getur komið öllum liðum í opna skjöldu
en líka hrunið saman þegar verst gegnir. Það
fer eftir stemmningunni og baráttuviljanum
hvar KR-ingar verða í deildinni en fall-
barátta er líklegasta hlutskiptið.
SKYLDU FRAMARAR loksins komast í
fremstu röð á ný í vetur? Þeir hafa verið í
löngum öldudal og í fyrra þegar við talsverðu
var búist af þeim drógust þeir niður í fall-
baráttu eftir ágæta byrjun. En nú virðist
Fram loksins hafa burði til að spjara sig. Þar
munar mest um Atla Hilmarsson sem er
kominn heim frá Vestur-Þýskalandi og
Hannes Leifsson, þann drjúga og útsjónar-
sama miðjumann, sem er aftur kominn í sitt
gamla félag eftir að hafa gert góða hluti hjá
Stjörnunni. Pálmi Jónsson kemur úr Val og
gæti spjarað sig í horninu. Fyrir eru góðir
leikmenn á borð við Egil Jóhannesson,
Hermann Björnsson og Birgi Sigurðsson.'
Björgvin Björgvinsson þjálfar sitt gamla fél-
ag, tekur við af Dananum Per Skaarup sem
reyndist misjafnlega en verður þó saknað úr
vörninni. Nú gæti verið komið að Frömur-
um, hver veit?
IR leikur í 1. deild á ný eftir að hafa
hrapað niður í þá þriðju á mettíma og byggt
upp nýtt lið. Liðið er skipað ungum og jöfn-
um leikmönnum sem margir leika í fyrsta
sinn í 1. deild. Reynslan er ekki mikil og gæti
reynst Breiðhyltingum fjötur um fót. ÍR er
með sama mannskap og vann 2. deildina í
fyrra. Lykilmenn verða væntanlega Guð-
mundur Þórðarson þjálfari, hornamaðurinn
Frosti Guðlaugsson, markvörðurinn Hrafn
Margeirsson og Ólafur Gylfason en tveir þeir
síðastnefndu voru í 21-árs landsliðinu sl. vor.
ÍR-ingar Ieggja örugglega allt í sölurnar til að
halda sæti sínu í deildinni og miklu máli
skiptir hvernig byrjunin verður, en tveir
fyrstu mótherjarnir verða Víkingur og FH.
Allt annað en fall mun teljast góður árangur
hjá ÍR.
Þórsarar eru á óvæntan hátt komnir í 1.
deildina þar sem þeir hafa einu sinni áður
leikið, fyrir 14 árum. Þór lék í 3. deild fyrir
tveimur árum og fyrir síðasta keppnistímabil
voru blikur á lofti. Þátttaka liðsins í 2. deild
hékk á bláþræði vegna fjárhagsörðugleika og
síðan var því af mörgum spáð falli í 3. deild.
En Þórsararnir ungu uxu með vandanum,
laumuðu sér sífellt ofar í deildinni og sigruðu
loks Eyjamenn í hreinum úrslitaleik um 2.
sætið í lokin. Þór er með ungt og reynslulaust
lið en Erlendur Hermannsson þjálfari þykir
hafa náð ótrúlega miklu útúr því. Hvort þeir
töfrar hans duga í 1. deild er hinsvegar óvíst.
Sigurður Pálsson er eitt eftirtektarverðasta
nafnið í liði Þórs, en Sigurpáll Aðalsteinsson
er efnilegur hornamaður sem vakti athygli í
fyrra. Það er erfitt að spá Þór öðru en botn-
sætinu í deildinni, en einmitt það gæti reynst
þeirra besta vopn í vetur.
• Víöir Sigurðsson
73