Þjóðlíf - 01.09.1987, Blaðsíða 40
FÓLK
Lífræn húðrækt
Nýtt útvaip?
Ekkert á húdina sem ekki
má borda
í SUMAR STÓÐU tvær verslunarkonur fyrir
bólunámskeiði meðal unglinga Reykja-
víkurborgar og þótti það takast einstaklega
vel; var allavega þrælvel sótt. Verslunar-
konur þessar eru þær Auður Friðgerður
Halldórsdóttir og Guðný Guðmundsdóttir
og verslun þeirra á Týsgötunni heitir Grœna
línan. Nafnið á að minna á náttúruna,
grænkuna og gróandann, og afurðir hennar -
enda vörurnar í versluninni eingöngu unnar
úr náttúrulegum efnum. Vörur Grœnu lín-
unnar eru snyrtivörur, en þó annað og meira
að sögn eigendanna, því þessar snyrtivörur
eiga á engan hátt að vera skaðlegar húðinni
heldur þvert á móti byggja hana upp.
Annars leggur Guðný Guðmundsdóttir
sterka áherslu á, að húðrækt sé ekki og geti
aldrei verið í því einu fólgin að bera krem á
húðina. „Það sem fer á húðina skiptir vissu-
lega máli,“ segir hún, „og við eigum aldrei að
láta neitt á hana sem ekki má borða og ekki
nota heldur snyrtilyf sem prófuð hafa verið á
dýrum. En það er ekki síður mikilvægt að
taka bætiefni og hafa matseðilinn í góðu
lagi.“ Segir ekki einhvers staðar að fegurðin
komi að innan?
Allt verður að miða að jafnvægi: húðin
verður ekki aðeins fögur utan frá heldur
skiptir innra byrðið jafnmiklu máli. Á bólu-
námskeiðinu var því Iögð rík áhersla á að
kenna unglingum að umgangast mat með
þeirri virðingu sem honum ber — og líkamann
með þeirri virðingu sem honum ber. Sjoppu-
fæði er eitur fyrir húðina, en því miður er
alltof algengt að unglingar lifi á slíku fæði
nær eingöngu. Guðný segir þekkingarskort á
• Auöur og Guðný í Grænu línunni
bætiefnum og matvælum hér á landi oft
áberandi mikinn. Grœna línan er sænsk vara,
uppfundin af Marju Entrich, áttræðri konu
sem lærði snyrtifræði í París og var um tíma í
vinnu hjá Helenu Rubinstein í ísrael. Marja
og samstarfsmenn hennar gera sér far um að
öðlast þekkingu á matvælum og verkunum
þeirra á mannslíkamann — og ekkert fer frá
þeim án þess að hafa verið prófað rækilega á
mönnum. Eftirbreytnivert á þessum
náttúruverndartímum.
KRISTJÁN Ari Arason er einn af stofnend-
um útvarpsfélagsins Rót sem áætlað er að
taki til starfa í haust. Petta útvarp er byggt á
grasrótarhugmynd og hafa verið settir upp
málaflokkar sem hugmynd um hvernig þetta
útvarp mun starfa. Markmiðið er ekki að afla
hagnaðar heldur að að skapa vettvang fyrir
þjóðfélagslega og menningarlega umræðu,
segja stofnendur. Hlutafjársöfnun gengur að
þeirra sögn vel og er stefnt á að hefja útsend-
ingar með haustinu. Kristján hefur reynslu af
slíku útvarpi í Kaupmannahöfn, en hann
starfaði við útvarpstöðina Sokkelund Radio,
sem að mestu er byggt á sjálfboðavinnu.
Kristján er bjartsýnn á að þetta takist og
hefur þegar safnað vænni fúlgu í hlutafé.
Þetta útvarp mun senda út að mestu á kvöld-
in og um helgar en einnig er fyrirhugað að
endurtaka efni á morgnana.
• Kristján Ari ásamt dóttur sinni Þorhildi.
40