Þjóðlíf - 01.09.1987, Blaðsíða 39

Þjóðlíf - 01.09.1987, Blaðsíða 39
INNLENT ÞJÓÐLÍFSTÖLUR Ragnar: Hef lært mikið um dauðann í þessu starfi. mitt hlutverk aö styðja menn í þessu.“ Er mikill munur að vinna meðfólki sem er Weð sjúkdóminn á lokastigi eða þá sem ein- Ungis eru smitaðir? > Já, það er talsverður munur. Þeir sem fá Þann úrskurð að þeir eru smitaðir vita ekki hvenær eða hvort þeir fá sjúkdóminn. Þeir eru ekki veikir en eiga það yfir höfði sér að Veikjast. Þeir geta afneitað staðreyndinni sem er eðlilegt í þjóðfélagi þar sem hommar eru fordæmdir. Það sem þarf fyrst og fremst að gera er að hjálpa þessum mönnum að taka abyrgð á sjálfum sér og sínu kynlífi. En í raun Þurfa allir að taka á sínu kynlífi, ekki síður v'ð hin sem ekki erum smituð. Ég álít að það Verði brátt úrelt að tala um áhættuhópa í Sarnbandi við eyðni. Það vill svo til að sjúk- ðórnurinn upphófst meðal homma og er al- Sengastur þar en það eru allir í hættu. í rauninni er aðalmunurinn sá að þeir sem eru snntaðir eru ekki dauðvona eins og þeir sem eru með sjúkdóminn.“ Hvaða aðferðir notar þú í vinnu þinni? . ’>Ég nota ýmsar aðferðir, þó mest samtöl bl að hjálpa fóiki að tjá tilfinningar sínar t.d. °ftann við dauðann. Svo vinn ég líka með s okun og stýrðar fantasíur. Stýrðar fantasíur §eta gefið fólki mjög mikið sjálfstraust og aráttuþrek. Það má t.d. ímynda sér hvítu °ðkornin sem hina sterku hermenn og eyðniveiruna á undanhaldi. Ég vinn líka með artterapíu og hópvinnu. Ég er t.d. nýbúinn að stofna hóp sem er eingöngu með dauð- vona sjúklingum. Þeir hafa oft meiri þörf fyrir að tjá sig hver við annan heldur en að vera í stærri hópi með mönnum sem eru aðeins smitaðir. Það er líka misjafnt hvernig ég vinn með hverjum og einum. Stýrð fantasía hefur mjög góð áhrif á þann sem hefur mikið ímynduna- afl á meðan venjuleg slökun getur hentað einhverjum öðrum mun betur.“ Vinnur þú eitthvað með aðstandendur eyðnisjúklinga? „Ég geri það ekki markvisst en í sumum tilfellum er það nauðsynlegt og ég geri það einungis í samráði við sjúklingana sjálfa. I einu tilfelli hafði ungur maður látið taka við- tal við sig í dagblaði og systkini hans brugðust mjög illa við. Ég þufti að hjálpa þeim og manninum og ég hjálpaði þeim líka eftir að maðurinn lést.“ Ert þú ánœgður með starfþitt? „Já, ég er það. Ég hef lært mjög mikið um dauðann í þessu starfi og ég hef þroskast á þessu ári sem ég hef unnið með eyðnisjúkl- inga.“ • Ragnheiður Óladóttir Árleg fjölgun þjóðarinnar skv. þjóðskrá árið 1986: 0,7% Fjölgunin árið 1983: 1,2% Rófuuppskera á íslandi árið 1986 í tonnum: 1.024 Fjárveiting á fjárlögum fyrir 1987 vegna aðgerða heilbrigðisyfirvalda gegn eyðni: 5 milljónir Fjöldi greiðslukorthafa á höfuðborgar- svæðinu skv. könnun Neytendasam- takanna: 57,5% Áætlaður fjöldi viðskiptavina í Kringl- unni á viku: 60.000 Sundtími bræðranna Ármanns og Svavars Guðmundssona yfir tveggja kílómetra breiðan Eyjafjörðinn 8. ágúst s.l.: 35 mín. Meðalaldur brúðguma á íslandi við fyrstu giftingu: 26,6 ár Meðalaldur brúða við íyrstu giftingu: 24,4 ár Fækkun útlána á bókurn frá Borgarbóka- safninu á fyrra helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra: 12% Aldur Blaðamannafélags íslands urn mánaðamótin nóv./des. í ár: 90 ár Hlutfall fólks í verkalýðsstétt sem býr í eigin húsnæði: 63,6% Hækkun framfærsluvísitölu í júlí: 2,49% Verðbólga á ári miðað við þessa hækkun: 34% Aukning utanlandsferða íslendinga jan- júlí miðað við sama tíma síðasta árs: 30% Áætlaður hlutfall af þjóðinni sem neytir svefnlyfja daglega: 6% Heildarvelta Fríhafnarinnar á Keflavík- urflugvelli árið 1986: 560 miljónir. Fjöldi kvenna í starfi sveitarstjóra: 1 Hlutfall 16 ára unglinga á Austurlandi sem stunda nám: 63,3% Hlutfall 16 ára unglinga í Reykjavík í námi: 81% Fangapláss í fangelsum landsins: 108 Heimildir: Hagtölur mánaðarins. Neyt- endablaðið. Tímaritið Hjúkrun. Hús- nœðiskönnun Félagsvísindastofnunar. Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Hagstofa íslands. Dagblöð o.fl. 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.