Þjóðlíf - 01.09.1987, Síða 29

Þjóðlíf - 01.09.1987, Síða 29
ERLENT vísað frá tilboðum á þeirri forsendu að erfitt verði að fylgjast með. Þetta hefur mjög verið gagnrýnt og kem ég að því síðar. Eg spurði um ný hernaðaráform varðandi Island, en þeir sögðu að ekkert nýtt væri á döfinni og ekki sjáanlegt að hernaðarstaða Islands væri að breytast frá því sem nú er. Við ræddum um kjarnorkuvopnalaus svæði, hugmynd sem NATO er á móti af ýmsum astæðum: Fyrrnefndum trúverðugleika, að eftir sem áður verði hægt að sprengja hvar sem er, svæðin verði að ná inn í Rússland og svo auðvitað það að þessar hugmyndir, ef af yrði, myndu setja allt hernaðarnetið á annan endann (skýringar mínar). Ég spurði hvort þeir könnuðust við áform Urn staðsetningu nifteindasprengja, en því svöruðu þeir neitandi og töldu slík áform hafa verið lögð á hilluna (bresku konurnar höfðu miklar áhyggjur af þessu atriði). Ég spurði um þýðingu þess að hafa íslenskan hernaðarráðunaut og hvert væri hlutverk hans? Einar lýsti fyrir mér því mikla verki, sem lagt er á herðar örfárra sendiráðsmanna 1 Brussel, sem eiga að annast öll samskipti við NATO, auk þess að annast íslenska sendi- raðið í borginni og samskipti/viðskipti við Evrópubandalagið, sem einnig er staðsett í Brussel. f»að hefði því verið til mikilla bóta að fá sérmenntaðan mann til starfa sem fylgdist vel með og þess sæi stað í betri upp- lýsingum til íslenskra stjórnvalda um her- naðarmálefni. HVER TEKUR ÁKVARÐANIR? Þegar hér var komið sögu var tíminn útrunninn og ég varð að flýta mér til fundarins með Carring- ton, en hefði gjarnan viljað ræða lengur við íslensku fulltrúana, því ég komst ekki yfir nærri allar spurningamar. Það var auðséð að Lord Carrington var sjóaður stjórnmálamaður, snöggur upp á Iagið á sína bresku vísu. Hann ræddi fyrst um væntanlega samninga við Rússa og almennt um stefnu NATO. en síðan gafst kostur á að spyrja hann spurninga. Þaö var spurt um sér- stakt hlutverk Evrópu milli risanna tveggja, stöðu Þýskalands, deiluna milli Grikkja og Tyrkja og um hugsanleg afskipti NATO af deilunum við Persaflóa. Öllu þessu vísaði hann til hvers ríkis fyrir sig og sagði það þungamiðjuna í stefnu NATO að fara ekki út fýrir sitt svæði! Það var nokkuð rætt um að ákvarðanir væru teknar á bak við okkur án þess að almenningur gæti haft nokkur áhrif þar á. Því svaraði lordinn á þá leið að fólk gæti sagt álit sitt í kosningum, en var svarað aftur að oftast stæðu menn frammi fyrir gerðum hlut. Sumar spurningarnar, sem bornar voru upp við sendiherrana, vom líka lagðar fýrir Carrington svo sem um nift- eindasprengjurnar og áhrif kjarnorkuógnar- innar á börn, en lordinn snéri sig út úr slíkum tilfinningaspurningum. Hann var spurður hvers vegna svo fáar konur væru fulltrúar hjá NATO (meira til að sýna að konur hefðu lítil áhrif á hernaðarstefnuna en það að konur vilji gerast þátttakendur í hernaðarbröltinu), en því vísaði hann enn til hverrar þjóðar sem veldi sína fulltrúa. Síðan kvaddi hann og geystist út með liði sínu. Margar kvennanna voru öskureiðar eftir þennan fund og fannst lordinn hafa talað niður til þeirra og af lítilli virðingu við sjónarmið kvenna. Var ákveðið að koma því á framfæri við sendiherrana að Carrington hefði vakið litla hrifningu og að kjörnum fulltrúum (þ.e. þingkonunum) frá fjölda NATO-ríkja hefði verið gróflega misboðið. Þá var eftir að setjast niður og bera saman svörin og undirbúa blaðamannafund seinna um daginn. Svörin voru nokkuð mismunandi og þá einkum hvað varðaði spurninguna um það hvort samningar við austurblokkina myndu kalla á ný vopn og aukningu hefð- bundins vígbúnaðar, sem þýðir þá um leið að samningar eru nánast til einskis. Við kom- umst mismunandi langt með spurningarnar og nokkrar mæltu sér mót við sendiherrana á nýjan leik til að halda áfram. STEFNUBREYTINGAR ÞÖRF. Blaða- mannafundurinn var annar megintilgangur Einar Farestveit & Co.hf. ® Borgartún 28 símar 91-16995, 622900 HE TÆK ER KO BLOMBERG hefur nú stigið skref inn í framtíðina fyrstir heimilistækjaframleiðenda með nýju mjúku glæsilegu línunni. Merzeders Benz og BMW og fleiri bílaframleið- endur kynna nýju árgerðirnar með mjúku línunum. Blomberg steig skrefið, fyrstir heimilistækjafram- leiðenda. Líttu við og kynntu þér þessa glæsilegu línu. Samræmt útlit á öllum heimilistækjum. Vaskar, blöndunartæki og háfar- lakkaðir eða úr kopar. 29

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.