Þjóðlíf - 01.09.1987, Qupperneq 34

Þjóðlíf - 01.09.1987, Qupperneq 34
INNLENT vináttu. Einkanlega kemur þetta fram í við- horfum bandarískra ráðamanna gagnvart hvalarannsóknum íslendinga." Og Haraldur spyr: „Geta Bandaríkjamenn varið þjóð sem þeir neita að versla við?“ ÍMYND REAGANS. Það er löngu ljóst að Reagan-stjómin í Washington telur sér ekki mjög umhugað um að rækja vináttu sína við Vestur-Evrópu álíka og fyrri forsetastjórnir þar vestra gerðu. Reagan kemur frá vestur- strönd Bandaríkjanna, horfir til Kyrrahafs- ins og Japan en hefur í stjórnartíð sinni ekki fengið sérlega góða ímynd í hugum Evrópu- búa. Á alþjóðavettvangi hefur það líka skýrst að þar er enginn annars bróðir í leik, hagsmunir hvers ríkis skipta öllu í alþjóða- pólitík og viðskiptum. ÞJÓÐLÍF hefur eftir einum viðmælanda blaðsins að íslendingar verði ekkert hug- fangnir af yfirmönnum Bandaríkjanna þegar fylgst er með látunum í kringum íran/ Contra-málið. „Og framkoma Reagans þeg- ar hann yfirgaf landið kampakátur innan um landa sína á Keflavíkurvelli eftir vonbrigðin vegna leiðtogafundarins, varð ekki til að efla vináttuhug okkar í garð bandarískra stjórn- valda. Gorbatsjof sjarmeraði hins vegar margan Rússahatarann," segir hann. Niðurstaða skoðanakönnunarinnar sem hér er birt sýnir afdráttarlaust að andstæð- ingum Keflavíkurstöðvarinnar hefur ekki fjölgað svo miklu nemur en margir þeir sem. • Stuðningur við herstöðvarnar minnkaði verulega meðan landhelgisdeilan stóð yfir árið 1976 studdu varnarliðið gera það ekki lengur. Þeir vilja þó ekki lýsa yfir andstöðu við herstöð- ina heldur svara sem svo að þetta skipti ekki máli. „Það er hundur í herstöðvasinnum út í Bandaríkin núna,“ sagði einn viðmælandi ÞJÓÐLÍFS. Þessi afstaða beinist gegn Bandaríkjunum, ekki NATO. Aðild okkar að NATO nýtur mikils meirihlutastuðnings í landinu og er ekkert sem bendir til að sú afstaða hafi breyst. Þó svo að Bandaríkin séu stærsti einstaki kaupandi íslenskra útflutningsvara hefur út- flutningur þangað minnkað á síðustu þremur árum. Hlutdeild Bandaríkjanna í heildarút- flutningi okkar var komin niður í 22% á síðasta ári en var 27% árið þar á undan. Á sama tíma hafa umsvif varnarliðsins hérstór- aukist vegna áætlana Bandaríkjamanna um að efla styrk Keflavíkurstöðvarinnar til loft- varna og endurnýjunar sem stjórnvöld hafa heimilað á seinustu árum. Og breyttar áherslur í flotastefnu Bandaríkjanna vekja spurningar um öryggi íslands og hvort víg- búnaður Bandaríkjanna miðar að vörnum landsins eins og áskilið er í varnarsamningn- um. • Ómar Friöriksson Langþráðu takmarki náð Húsnæöissamvinnufélagiö Búseti kaupir 46 íbúöiraf Hagvirki STJÓRN HÚSNÆÐISSAMVINNUFÉLAGSINS BÚSETA og verktakafyrirtækið Hagvirki undirrituðu 18. ágúst s.l. kaupsamn- ing þar sem Búseti kaupir 46 íbúðir fyrir félagsmenn sína í fjölbýl- ishúsi sem verið er að reisa í Grafarvogi. íbúðimar verða afhentar fullbúnar fyrsta desember 1988. Kaupverðið er um 170 miljónirog hefur fengist lánveiting úr Byggingarsjóði verkamanna.„Þetta er söguleg stund í húsnæðismálum íslendinga," sögðu forsvarsmenn Búseta, ánægðir að vonum með bjartari framtíð búseturéttarfyrir- komulagsins þegar nýir valdhafar hafa tekið við taumum húsnæðis- málanna. Vorið 1985 fékk Búseti lóð í Grafarvogi til byggingar og var þá samið við Hagvirki um byggingu og hönnun hússins sem átti að taka eitt ár en þá fékkst ekki lán úr Byggingarsjóði verkamanna nema fyrir 15 íbúðum. Þar sem ekki var leyst úr málefnum Búseta hjá stjómvöldum keypti Hagvirki lóðina af Búseta og var ákveðið að reisa húsið en Búseti keypti svo þær íbúðir sem lán fengist fyrir. Lánsloforð hefur nú verið veitt og því hefur Búseti gengið frá kaup- unum og er hér um fyrstu búseturéttaríbúðir á íslandi að ræða og mun þetta vera einhver stærsti kaupsamningur sem gerður hefur verið um íbúðarhúsnæði í landinu. Fjölbýlishús Búseta er níu hæða hús með tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðum, bílskýlum og samkomusal. í haust eru fjögur ár liðin frá stofnun Búseta og gengu þá á þriðja þúsund manns í félagið. Búseti hefur nú lagt inn umsóknir um lán og lóðir fyrir 180 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og auk þess em slíkar • Páll Gunnlaugsson formaður Búseta (Lv.) og Aðalsteinn Hallgrímsson framkvæmdastjóri Hagvirkis undirrita kaupsamninginn umsóknir í gangi víða á landsbyggðinni. Nú em í gangi kannanir meðal sveitarfélaga og ýmissa félaga- samtaka á fyrirsjáanlegri húsnæðisþörf og á gmndvelli þeirra niður- staðna og tillagna má búast við lagafrumvarpi þegar Alþingi kemur saman í haust. „Ef tekst að koma böndum á nýtt félagslegt húsnæð- iskerfi og veita til þessa 85% opinber lán, standa vonirtil að nú fao loks að rætast úr húsnæðismálunum,“ segja þeir hjá Búseta. „Við vonum að þessi fyrsti kaupsamningur Búseta marki umskipti til hins betra í húsnæðismálum íslendinga." Ómar Friðriksson. 34
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.