Þjóðlíf - 01.09.1987, Síða 55
LISTIR
*
Island er einangrað í tónlíst
Haukur Tómasson
Haukur Tómasson var sl. ár við nám í
Amsterdam hjá Ton de Leeuw í Sweelinck
Konservatorium, en áður dvaldi hann í
Musikhochschule í Köln í tvö og hálft ár eftir
að hafa lokið tveimur árum í tónfræðadeild
Tónlistarskólans í Reykjavík. Haukur er nú
þegar afkastamikið tónskáld og hefur m.a.
samið þrjú kórverk fyrir Hamrahlíðarkórinn
og Háskólakórinn en hann var félagi í báðum
kórunum. Hann hefur samið eitt verk fyrir
Islensku hljómsveitina og átt þrjú verk á
UNM-hátíðum; Strengjakvartett fyrir fimm
árum er hátíðin var haldin hér, annan kvart-
ett í Svíþjóð 1984 og píanótríó sem flutt var í
Danmörku í fyrra. Fræðumst um verk hans,
5 landslög, sem verður flutt þriðjudaginn 15.
september kl. 20.30 í Langholtskirkju.
„Ég skrifaði 5 landslög í Þýskalandi fyrir
tveimur árum fyrir alt-saxófón, bassa-klarin-
ett, horn, víólu og gítar. Ástæðan fyrir
þessari óvenjulegu samstæðu er að ég vildi
hafa fjölbreytilegan lit á verkinu, þótt raun-
verulega megi segja að það sé smá skyldleiki
á milli gítars og víólu annars vegar og klarin-
ettu og saxófóns hins vegar. Hornið er mest
sér á parti af þessum hljóðfærum, en mig
langaði að draga fram ólíka liti í þessari
hljóðfæragrúppu. Þetta eru ekki Iandslags-
lýsingar heldur frekar landslög sem hægt er
að virða fyrir sér með eyrunum eins og mað-
ur virðir fyrir sér landslag með augunum."
JENS ALEXANDERSSON
• Haukur Tómasson. „Landslög til að virða
fyrir sér með eyrunum".
-Geturðu skilgreint stíl þinn?
„Ég er ekki ekki kominn að endanlegri
niðurstöðu í þeim málum. Þetta verk er
kannski svolítið þýskt í sér. Ég samdi það í
Þýskalandi á meðan ég var að stúdera þýska
tónlist og það eimir kannski eitthvað eftir af
þýskum expressjónisma. Annars held ég það
sé of flókið mál að fara út í svona skilgrein-
ingaatriði."
-Hver er gildi UNM-háúðarinnar fyrir
okkur?
„Island er einangrað í tónlist yfirhöfuð og
hátíðin virkar eins og skóli. Það er líka örv-
andi að hitta allt þetta fólk og heyra hvað það
er að gera."
-Hefur Island einhverja sérstöðu í sinni
tónlist?
„Kannski helst þá að þeir íslendingar sem
taka þátt í hátíðinni hafa lært víða erlendis og
þess vegna er erfitt að sjá einhver séríslensk
einkenni hjá þessari kynslóð. Það er auð-
veldara að sjá finnsku einkennin, enda koma
Finnarnir flestir úr sama skólanum. En ég
held ég megi segja það að okkur sé að fara
fram eftir að Tónfræðadeild Tónlistarskól-
ans í Reykjavík var stofnuð."
-Hvað tekur við hjá þér? Pú ert kominn
heim í bili.
„Já, gúrúinn minn fór í frí, en líklega held
ég áfram námi eftir þetta ár og stefni þá til
Bandaríkjanna. Ég reyni að einbeita mér að
tónsmíðunum í vetur. Maður er alltaf að
skrifa fyrir vini og vandamenn en ætli maður
reyni ekki að vinna fyrir sér með kennslu."
Dagskrá hátíðarinnar dagana 14.-19. september
ALLA MORGNA hátíðarinnar verða þeir Geiger og Dubrovaj
með kennslu íTónlistarskólanum í Reykjavík. Robert Aitken mun
vera með gagnrýni og umræður um tónleika dagsins á undan. Á
fimmtudaginn kl. 11-13 er opinn fyrirlestur og kennsla í nútíma
flaututækni hjá Robert Aitken.
A MÁNUDAG kl. 14-16 heldur Dubrovaj fyrirlestur um ung-
verska tónlist í Tónlistarskólanum í Reykjavík en kvöldtónleik-
arnir eru í Langholtskirkju og hefjast kl. 20.30. Flutt verða verk
eftir Morten Ede Pedersen (N), Hróðmar I. Sigurbjörnsson, Veli-
Matti Puumala (F), Mats Eden (N), Martin Palsmar (D) ogTomas
Friberg (S).
Á ÞRIÐJUDAG kl. 14-16 fjallar Dubrovaj um eigin verk og Ro-
bert Aitken er með flautukennslu í Tónlistarskólanum en kvöld-
lónleikarnir eru í Langholtskirkju og hefjast kl. 20.30. Flutt verða
Verk eftir Torbjörn Engström (S), Eirík örn Pálsson, Kurt
Wrangö (S), Jesper Koch (D), Hauk Tómasson, Jukka Koskinen
(F) og Peter Tornquist (N).
A MIÐVIKUDAG eru tvennir tónleikar, þeir fyrri hefjast í Tón-
listarskólanum í Reykjavík kl. 17 og verða þar flutt verk eftir
Vurki Linjama (F), Flelga Pétursson, Flemming Christian Hansen
(D) og Rolf Wallin (N). Síðari tónleikarnir verða haldnir á Hótel
Horg kl. 20.30 þar sem flutt verður elektrónísk tónlist eftir Svend
Hedegaard (D), Þorgrím Þorgrímsson, Niels Henrik Asheim (N),
Þórólf Eiríksson, Lars Klit (D), Terje Winther (N) og Kjartan
Ólafsson.
Á FIMMTUDAG kl. 14-16 heldur Atli Heimir Sveinsson opinn
fyrirlestur í Tónlistarskólanum í Reykjavík og um kvöldið verða
tónleikar í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þar verða flutt verk
eftir Svend Lyder Kahrs (N), Tryggva M. Baldursson, Madeleine
Isaksson (S), Hans Peter Stubbe (D) og Kimo Hakola (F).
ÁFÖSTUDAG kl. 14-16 verða Dubrovaj og Aitken með kennslu í
Tónlistarskólanum en fyrri tónleikar dagsins verða kl. 17 í T.R.
Þar verða llutt verk eftir Asbjörn Schaathun (N), Atla Ingólfsson,
Sten Melin (S), Ari Vakkilainen (F) og Christina Wagnersmitt
(D). Kvöldtónleikarnir verða með Sinfóníuhljómsveit íslands í
Langholtskirkju og flutt verk eftir Guöna Ágústsson, Terje
Winther (N), Reine Jönsson (S), Anders Nordentoft (D), Svend
Hvidtfeldt-Nielsen (D), Johan Jeverud (S), Tapio Tuomel (F) og
Ríkharð H. Friðriksson.
LOKATÓNLEIKARNIR verða svo í Skálholti laugardaginn 19.
september kl. 17. Flytjendur þar verða Strengjasveit UNM undir
stjórn Mark Reedmans ásamt einleikurunum Geiger og Robert
Aitken.
55