Þjóðlíf - 01.09.1988, Qupperneq 26

Þjóðlíf - 01.09.1988, Qupperneq 26
ERLENT Cleveland Börnum misþyrmt Deilt um réttarstöðu fjölskyldunnar gagnvart sérfrœðingum. Clevclandmálinu svokallaða er nú lokið án þess að nokkur verði gerður persónulega ábyrgur fyrir því að tugir barna voru teknir frá foreldrum sínum vegna gruns um kyn- ferðislegar misþyrmingar.„Kerfið“, í þessu tilviki félagsmála og heilbrigðismálakerfið í Bretlandi hefur setið undir gagnrýni vegna málsins, en margir óttast að Iyktir þess muni gera almenning sljóari fyrir þjóðfélagsmein- inu; kynferðislegri misbeitingu barna. Nú er loks lokið sérstæðu rnáli fyrir rétti í Englandi, Cleveland-málinu svokallaða, sem hefur valdið miklu hugarróti og deilum meðal Breta í meira en ár. Rannsóknarréttur undir forsæti Butler-Sloss dómara, hefur set- ið að störfum undanfarna mánuði við að rannsaka hvernig það vildi til að á aðeins fimm mánuðum, einkum í maí og júní 1987, var 121 barn úr 57 fjölskyldum í Cleveland- sýslu í norðaustur Englandi tekið úr höndum foreldra sinna og lagt inn á spítala eða látið fósturheimilum til umsjónar, vegna þess að þau voru talin hafa orðið fyrir kynferðislegri misþyrmingu í heimahúsum. Það voru læknarnir Marietta Higgs og Geoffrey Wyatt við Middlesbrough General Hospital sem úrskurðuðu að undangenginni rannsókn að börnunum hefði verið kynferð- islega misþyrmt. Marietta Higgs kom til starfa sem barnalæknir við spítalann í árs- byrjun 1987 og hóf hún þegar samstarf við Geoffrey Wyatt. Fljótlega fjölgaði þeim börnum við spítalann sem talin voru hafa orðið fyrir kynferðislegri misþyrmingu. Þessum börnum hafði verið vísað til Higgs og Wyatt frá ýmsum aðilum, félagsráðgjöfum, hjúkrunarfólki og heilsugæslustöðvum, sem grunaði að börnin sættu illri meðferð, en einnig kom nokkur hluti barnanna á spítal- ann af öðrum ástæðum, til dæmis vegna hægðatregðu. Niðurstöður Iæknanna byggðust á skoðun á líkamlegum einkennum, einkum á enda- þarmi, með svokallaðri reflex anal dilatat- ion-athugun (RAD). Flest barnanna sem voru talin hafa sætt misþyrmingu voru tekin úr umsjá foreldra sinna, stundum án nokkurs fyrirvara, og lögð inn á Middlesbrough Gen- eral Hospital eða sett í fóstur undir eftirliti félagsmálastofnunar Clevelandsýslu. Þegar tilvikunum fjölgaði, ekki síst tilvik- um þar sem engin kvörtun hafði komið fram um misþyrmingar, tóku að renna tvær grím- ur á hlutaðeigandi yfirvöld. Lögreglan hafði þegar í mars 1987 verið tortryggin á úrskurði Higgs og Wyatts, en brást við með því að firra sig ábyrgð og draga sig út úr málinu. Spítalinn og félagsmálastofnun áttu fullt í fangi með að annast allan þennan vaxandi fjölda barna og þar kom að kerfið réð ekki lengur við umfang málsins. í júnímánuði voru börnin orðin 121 talsins. Aðgerðir læknanna og félagsmálayfir- valda ollu miklu uppnámi og sundrungu í viðkomandi fjölskyldum og tortryggni gróf um sig milli hjóna. Foreldrar sem töldu að hér væri um hræðileg mistök að ræða gerðu ítrekaðar tilraunir til að fá úrskurðunum breytt, en mættu tortryggni og jafnvel andúð læknanna ogfélagsráðgjafa. Þeirfengu sjald- an að hitta börnin sín og þá ávallt undir eftirliti. Mörg barnanna neituðu að þeim hefði verið misþyrmt en ekki var hlustað á þau. Börnin voru yfirleytt tekin skyndilega frá foreldrum sínum án nokkurra eða ónógra skýringa. Þessi meðferð, að fjarlægja fórnar- lambið af heimilinu frekar en hinn grunaða föður, jók enn á sársauka barnanna. Ekki þýddi fyrir foreldra að leita réttar síns hjá lögregluyfirvöldum sem drógu sig hreinlega út úr öllu samstarfi við aðra aðila og vísuðu þessu frá sér. En málið var orðið viðamikið og ekki ein- leikið hve mörg börn á þessu svæði höfðu verið greind á þennan veg. Sumir foreldr- anna sem töldu sig rangindum beitta leituðu til Stuart Bell, þingmanns Verkamanna- flokksins í Middlesbrough, og átti hann hvað mestan þátt í að vekja athygli fjölmiðla og almennings á málinu. Það kom til umræðu í \ Mikið úrval af haustlaukum. Opið frá 10-19 alla daga. Nœg bílastœði. GARÐSHORN M við Fossvogskirkjugarð SUÐURHLÍÐ 35 - 105 REYKJAVÍK SÍMI 40500 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.