Þjóðlíf - 01.09.1988, Qupperneq 39

Þjóðlíf - 01.09.1988, Qupperneq 39
MENNING Fimmti bekkur A. í Barnaskóla Reykjavíkur 1907. 1. röð f.v.: Niels Madsen, Hálfdán Helgason, Níels Dungal, Morten Ottesen. 2. röð: María Einarsdóttir, Ingibjörg Viborg, frú Anna kennari, Ásta Sighvatsdóttir, Þórunn Berþórsdóttir, Anna Bjarnadóttir. 3. röð: Efemía Ólafsdóttir, Margrét Þorsteinsdóttir, Kristján Schram, Kjartan Magnússon, Axel Andrésson, Jóhanna Lárusdóttir, María Jónsdóttir. 4. röð: Olga Kristinsdóttir, Tómas Stefánsson, Tryggvi Magnússon, Gunn- ar Schram, Davíð Stefánsson, Moritz Ásmundsson, Ása Þorsteinsdóttir. Kristín Simsen heldur á dótturbarninu, Önnu Bjarnadóttur. Myndin er væntan- lega tekin 1903. mynd). Það þótti sérstætt á tímum ntikils barnadauða að öll börnin 12 komust til full- orðinsára. Anna telur að brjóstamjólkin hafi skipt þar mestu „Peli hafði þar aldrei komið inn á heimilið". Silkiklútur álfkonunnar Móðir Sigríðar langömmu Önnu Bjarna- dóttur hét Ragnheiður og var Ijósmóðir í Reykjavík. Hennar maður var Þorsteinn fyrsti lögreglumaður í Reykjavík. „Af Ragn- heiði er sögð sú saga að hún hefði eitt sinn setið yfir álfkonu. Hún bjó þá uppi á Akra- nesi. Eitt kvöld kom ókunnur maður og bað hana sitja yfir konu sinni. Hún fór með hon- um, en kannaðist ekki við leiðina, enda var þokusúld. Loks kom hún að húsi, og var þar inni kona að því komin að fæða barn. Hún hjálpaði konunni og allt gekk vel. Að skiln- aði gaf konan henni forláta silkiklút og sagði að Ragnheiður mætti aldrei farga honum, því að þá mundi illlt af hljótast. Nú liðu árin og var Ragnheiður mjög farsæl í starfi. Svo bar það við dag nokkurn, að vinkona Ragn- heiðar tældi hana til að gefa sér klútinn. Þá nótt mistókst Ragnheiði í fyrsta sinn. Hún var sótt til konu í barnsnauð, og dóu bæði konan og barnið. Næstu nótt dreymdi hana álfkonuna, sem henni þótti koma til sín og segja: „Illa gerðir þú, þegar þú fargaðir klútnum. Nú færi ég þér hann aftur, en ef þú fargar honum í annað sinn, mun verr fara.“ Um morguninn fann Ragnheiður klútinn undir höfðalagi sínu og varð hún upp frá því jafn farsæl í starfi og fyrr“. Ástin spriklar öfundsjúk „Siemsen kaupmaður hafði Benedikt Qröndal sem heimiliskennara. Þá mun Krist- ín amma mín sem var elst systranna hafa verið ung stúlka. Bæði móðir mín og Sigríður systir hennar fullyrtu að hann hefði ort til hennar kvæðið „ Upp á himins bláum boga, bjartir stjörnuglampar loga. yfir sjóinn und- ur breiða unaðsgeislum máninn slær....“ Og ég hef séð það af myndum að hún hefur verið ákaflega vel eygð. Með skærblá augu. Svo þetta gæti verið satt. Það vakti víst undrun manna þegar hún giftist Sveini kaupmanni á Búðum. Þá orti Kristján Fjallaskáld þessa vísu: Sveinn á Búðuni fái fjúk fékk hann hana Stínu. Ástin spriklar öfundsjúk innst í brjósti mínu. Það er sagt að þegar Kristín flutti til Búða hafi Sveinn látið breiða rautt teppi á bryggj- una sem hún gekk eftir þegar hún kom í land. Sveinn var víst efnaður maður á þeim dögum en hann tapaði á ýmsu síðar, varð fyrir skipsskaða og þegar hætt var að lýsa Kaup- mannahöfn upp með lýsi og olía tekin upp varð hann fyrir miklu tjóni. Hann hafði efn- ast á að selja lýsi á gömlu lampana.“ Fundinn Thor Jensen „Húsið sem þau bjuggu í á Búðum er enn til, og er nú þar nýtt sem hótel. Móðir Sveins hét Steinunn mikill kvenskörungur frá Sól- heimatungu. Hún lét reisa kirkjuna á Búð- um. Eftir að hafa orðið fyrir efnahagstjóninu fluttu þau afi minn og amma frá Búðum að Borðeyri.þar sem Sveinn gerðist verslunar- stjóri. Hann var eitt sinn sendur til Kaup- mannahafnar í verslunarerindum og átti meðal annars að útvega ungan aðstoðar- mann. Þetta var eftir stríðið milli Dana og Þjóðverja 1864 og Danir voru náttúrulega illa staddir þá. Þar voru hæli fyrir munaðarlaus börn og unglinga sem höfðu misst feður sína í stríðinu. Sveinn fór á slíkt heimili að leita að aðstoðarmanni. Það var mælt með stórum og stæðilegum dreng en honum leist betur á lítinn væskilslegan dreng sem stóð úti í horni skælandi og hinir voru að stríða honum. Hann valdi þennan dreng og fór með hann til íslands. Og þetta var Thor Jensen. Hann giftist síðar frænku Sveins Þorbjörgu sem fór með honum frá Búðum til Borðeyrar en hún var mikil vinkona móður minnar.“ í Barnaskóla Reykjavíkur Þegar Anna var í Barnaskóla Reykjavíkur um aldamótin var Mortin A. Hansen skóla- stjóri. Meðal kennara hennar þar voru Sig- urður Jónsson síðar skólastjóri og Anna kona hans. Þau voru foreldrar Steinþórs Sig- urðssonar jarðfræðings sem fórst í Heklu- gosinu 1947. Dönsku kenndi Ingibjörg Bjarnason og Elínborg Matthíasdóttir (Jochumssonar sem giftist síðar Jóni Laxdal tónskáldi) kenndi íslensku. Þá kenndu þar systurnar Guðlaug Arason og Kristín Ara- son. í fimmta bekk í barnaskólanum kenndi 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.