Þjóðlíf - 01.09.1988, Síða 69

Þjóðlíf - 01.09.1988, Síða 69
UMHVERFISMÁL Skandalfyrirtækið ScanDust. Braggarnir voru reistir að kröfu Högna Hanssonar til að koma í veg fyrir að hættulegt ryk bærist yfir bæinn. bær þeirra hefur oft verið dreginn inn í um- ræðuna um umhverfismál: í bænum eru stór fyrirtæki sem eru miklir umhverfisspillar og svo er þar vel menntuð og samtaka sveit ungs fólks á umhverfis- og hollustuverndarskrif- stofu staðarins. Auk ScanDusts skuiu hér nefnd tvö fyrir- tæki sem hafa valdið verulegum umhverfis- spjöllum í Landskrona: Supra er eina áburð- arverksmiðjan í Svíþjóð, en hún framleiðir auk þess fosfórsýru. Fosfór, flúor, köfnunar- efnisoxíð og fleiri efni berast frá fyrirtækinu og hafa valdið gífurlegri sjávarmegnun. í sambandi við fyrirtækið stendur mönnum þó mestur stuggur af slysahættu vegna risa- stórra ammoníaksgeyma. Stór leki gæti drepið alla bæjarbúa, þrjátíu og fimm þús- und manns. Eftir ábendingar frá umhverfis- skrifstofu bæjarins hafa geymarnir verið styrktir verulega og viðvörunarkerfi hefur verið sett upp. Þá hefur sérþjálfuð björgun- arsveit verið sett á laggirnar. Boliden Bergsöe er eina verksmiðjan á Norðurlöndum sem endurvinnur blý úr raf- geymum bfla og blýköplum. Frá fyrirtækinu hafa borist ýmis efni, meðal annars sink, kopar og kadmíum. Þá hefur fyrirtækið á síðustu áratugum hleypt hundruðum tonna af blýi út í andrúmsloftið og á það stærstu sökina á mikilli blýmengun í bænum. Hvergi í Svíþjóð hefur mælst meira af blýi í blóði barna en einmitt í Landskrona. Blý getur haft áhrif á taugakerfi og líffæri sem mynda blóðfrumur. Ymsar rannsóknir benda til þess að jafnvel þótt hlutur blýs í blóði sé mjög lítill, geti það haft neikvæð áhrif á andlega getu og hegðun fólks. Konur úr hverfinu næst verksmiðjunum fæða börn sem eru að meðaltali tvö hundruð grömmum léttari en börn úr hverfum fjærst iðnaðinum. Þá sýnir athugun umhverfisnefndarinnar að hætta á vansköpun er þrisvar sinnum meiri hjá börnum kvenna sem búa næst iðnfyrir- tækjunum en hjá börnum kvenna í nærliggj- andi sveitum. Börn sem fæðst hafa án stóra heila eru öll úr hverfinu næst þessum fyrir- tækjum. Blýmengun er nærtækasta skýringin á þessari vansköpun. En það er ekki bara Boliden Bergsöe sem hefur dreift blýi yfir bæinn, því árlega berast um tvö tonn af blýi úr útblástursrörum á bifreiðum bæjarbúa. Niðurstöður umhverfisrannsókna í Lands- krona hafa vakið athygli um alla Svíþjóð. En er mengun þá hvergi meiri? „Jú, jú. Astandið er álíka í mörgum borg- um og bæjum. Við höfum hins vegar átt frumkvæði að rannsóknum á mengun í sjó, lofti og jarðvegi. Heilbrigðisstofnanir í öðr- um bæjum hafa kannski ekki sinnt þessu í sama mæli. Þar hefur verið of mikið tómlæti í þessum málum. Þessar rannsóknir okkar hafa líka sýnt verulega mengun, bæði í lofti, vatni og sjó. Við vörum fólk til dæmis við því að rækta grænkál vegna blýmengunar." Umhverfis- og hollustuverndarskrifstof- an, sem Högni veitir forstöðu, hefur rekið hvert málið á fætur öðru, drifið bæjarbúa á námskeið um umhverfismál og nú síðast lét hún draga fimm stjórnendur ScanDusts fyrir rétt. Réttarhöld í máli fyrirtækisins fóru fram í vor og voru þau ^óður fréttamatur fyrir fjöl- miðla landsins. I nokkra daga voru þau eitt helsta fréttaefni blaða, útvarps og sjónvarps. í leiðara Suðursænska Dagblaðsins (frjáls- lynt borgaralegt blað) var sagt að málið væri hneyksli bæði í umhverfis- og réttarfarsmál- um. Málið var sagt snúast um þrennt: Um- hverfisspjöll, vafasama saksókn og opinber- ar stofnanir sem ættu að vinna að umhverfis- vernd en gerðu það ekki. Áfangasigur Blaðið sagði Högna Hansson hafa komið upp um ScanDust. Þá sagði það að líf hafi 69

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.