Þjóðlíf - 01.02.1989, Side 51
MENNING
Umsögn um bók Guðmwidar
Andra Thorssonar,
Mín káta angist.
félagslífi og það er hún sem verður til að slíta
sambandi þeirra. Ekki verður séð að hún sé
eins gagntekin af ástarævintýrinu og Egill.
Nærri lætur að Egill sé þiggjandi og óvirkur í
sambandinu, eða einmitt eins og konum hef-
ur oft verið lýst í skáldsögum — því svo er
sagt að hefðbundin kvenmynd í skáldsögum
karla sé mynd af hálfgerðri puntudúkku sem
heldur kjafti og er sæt.
í einni af greinum sínum í Tímariti Máls og
menningar (1988:2) hefur Guðmundur fjall-
að um ógöngur sem „kvennabókmennta-
fræðingar“ geta ratað í. Hann telur að sum-
um konum hætti til að mála skrattann á vegg-
inn þegar þær lýsa Karlmanninum:
„Og í leiðinni megum við strákarnir sitja
rjóðir og vandræðalegir undir viðlíka alhæf-
ingum um „hið karllega" sem tengt er „í
sjálfu sér“ öllum þeim neikvæðu gildum sem
hægt er láta sér detta í hug —hörku, kulda,
ofstopa, leiðindum, fólsku, stríði, heimsku;
og þótt við séum allir af vilja gerðir getum við
aldrei orðið jafn mikið á móti stríði eða eyð-
ingu ósonlagsins og konur, vegna þess að við
ölum ekki börn, og höfum í meira mæli en
konurnar inni í okkur þennan voðalega
bíólógíska þátt: hið karllega. Þess er ef til vill
skammt að bíða að eldgos og snjóflóð verði
talin karlleg „í sjálfum sér“ (bls. 188).
Nærri lætur að sjá megi framhald þessarar
umræðu í skáldsögu Guðmundar Andra. Eg-
ill söguhetja er gagntekinn af ást eins og títt
er um konur í sögum (það er kallað að vera
„kynvera“ þegar það er gagnrýnt). Egill er
„veikari" en Sigríður að því leyti að hann
virðist alltaf vera að hugsa um hana, meðan
hún aftur á móti tekur sambandinu tiltölu-
lega létt eða kæruleysislega. Hún hefur Ient í
öðru eins, en Egill er nýgræðingur. Egill vak-
ir í rúminu eftir samfarir þeirra og langar að
tala en konan dettur útaf syfjuð. Egill er
alltaf að hugsa um hvernig hann eigi að vera
klæddur og hann reynir að ganga í augun á
konunni en varla verður séð að sams konar
áhugi sé fyrir hendi hjá henni. Þannig hefur
Guðmundur Andri snúið mörgu við í hefð-
bundinni mynd kynjanna í sögu sinni.
Hin hefðbundna karlhetja í bókmenntum
er töffari, hvort svo sem það er Egill Skalla-
grímsson eða Bogartar seinni tíma. Þeir eru
harðir, meira segja oft svo harðir að kven-
fólk meiðir sig á þeirn. Hefðbundið hörkutól
er sjómaður eða gaur í kagga á rúntinum eða
í lyftingum og sólbaðstofum. Hvað eiga þá
menn að gera ef slíkt gervi er utan seilingar
og eru auk þess ekkert ofsalega klárir í tísku-
fræðum og ismum nútímans? Reyna að hafa
bindishnútinn mátulega kæruleysislegan
eins og Egill?
Hefðbundinn, kaldhamraður töffari við-
urkennir ógjarna að hann pæli í útliti sínu,
enda hefur slíkt löngum verið talið sérsvið
kvenna og homma. Töffarinn er svakalega
„kasjúal“: hann er kannski í þaulreiknuðum
og rándýrunt leðurbúningi — en það er bara
af því að hann er svona, ekki af því að hann
hafi leitt hugann að útlitinu. Töffarinn er
dæmdur til að vera töffari að náttúrufari og
ósjálfrátt eða mislukkaður að öðrurn kosti.
Egill hugsar um útlit sitt og reynir að vera
útpældur. Og þó veit hann að ef það upp-
götvaðist að hann er útpældur yrði hann mis-
lukkaður. En töffarar og söguhetjur eru nú
ekki meiri kallar en þetta.
Skáldsagnahöfundar hafa áður reynt að
draga upp mynd af karlmanni nýs tíma. En
Guðmundur Andri gerir þetta á sérlega
næman hátt í Mín káta angist og kallast
skemmtilega á við nýjustu umræður um hlut-
verk kynjanna. Söguhetja hans er mjúkur
maður og ekki karldjöfull í Iíki hörkutóls.
Mjúkir menn eins og Egill eru sjálfsagt al-
gengir. En hafa ekki ratað í bók fyrr en nú.
Árni Sigurjónsson
Sjálfsævisaga Goldu Meir er að sjálfsögðu
forvitnileg, því saga hennar er samofin sam-
tímasögu gyðinga og hins unga Israelsríkis.
Golda er fædd í Rússlandi, fór ung að árum
með foreldrunt sínum til Bandaríkjanna. Þar
gerðist hún Zionisti og jafnaðarmaður, og
hóf pólitískan feril sinn í jafnaðarmanna-
hreyfingu Zionista þar í landi. Golda er með-
al fjölmargra merkra stjórnmálamanna á
þessari öld, sem hafa verið landflótta, átt
heima í mörgum löndum, og hafa kynnst
andblæ ólíkra menningarstrauma og póli-
tískra vinda.
Golda Meir hlaut nafnið Golda Mabo-
vitch við fæðingu austur í Kiev í Rússlandi,
en fjölskyldan bjó þar og síðar í Pinsk fyrstu
æviár hennar. í Bandaríkjunum giftist hún
Meyerson lögfræðingi, en í ísrael var nafni
hennar síðar breytt upp á hebreskan móð, í
þá veru sem að við þekkjum; Golda Meir.
Sjálfsævisaga Goldu Meir er fróðleg lesn-
ing; hún veitir manni innsýn í hreyfingu gyð-
inga í Bandaríkjunum á fyrstu áratugum ald-
arinnar, hún lýsir vel draumi gyðinga um
eigið ríki í Palestínu, erfiðleikum og ótrúleg-
um sigrum frumbyggjanna í ísrael og stofnun
og viðgangi Ísraelsríkis. Sjálfsævisaga Goldu
veitir býsna góða innsýn í þennan ævintýra-
heim landflótta gyðinga og landnemanna.
Sem lesandi hrífst maður með frásögn
Goldu, bæði persónusögu hennar og þeirri
pólitísku.
Eins og kunnugt er varGolda Meir í innsta
hring stofnenda Ísraelsríkis og gegndi frá
byrjun afar mikilvægum störfum fyrir flokk
sinn og hið unga ríki; sendiherra í Sovétríkj-
unum, atvinnu og þróunarmálaráðhera, ut-
anríkisráðherra og loks forsætisráðherra í
fimm ár eftir að hún var komin yfir sjötugt.
Petta er mikið ævintýri. Hún segir á látlaus-
an hátt frá öðrum leiðtogum gyðinga og
átökum meðal leiðtoganna.
Golda var ekki mikill aðdáandi hefðbund-
innar kvennabaráttu, — ef til vil hefur of
mikið verið sagt um stöðu konunnar, segir
hún. „Sannleikurinn er sá að ég hef lifað og
starfað með karlmönnum alla ævi mína. En
það hefur aldrei verið mér fjötur um fót eða
valdið mér vanmetakennd að ég er kona“,
skrifar Golda Meir.
Viðhorf Goldu Meir til araba er dálítið
kaldranalegt eins og við er að búast og hún
lítur að sjálfsögðu á aðrar þjóðir með eigin
gleraugum. Óvinir Ísraelskríkis fá því ekki
mikið lof í hennar frásögn. Sagan er full
langdregin á köflum, að mínu mati, en dettur
samt aldrei niður á leiðindaplanið, — til þess
er hún of fræðandi. Prentvillur eru full marg-
ar í þessari bók. Bryndís Víglundsdóttir
þýddi söguna. Það er lofsvert framtak hjá
bókaforlaginu Bókrúnu að gefa þessa bók
út.
Óskar Guðmundsson.
51