Frjáls verslun - 01.05.2012, Side 27
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 27
kynna
reykjaVÍk
K
jölfesta var mynduð á
dögunum fyrir sam
starfs vettvang um mark
aðssetningu á Reykjavík
sem alþjóðlegri ráðstefnu
og viðburðaborg en hún samanstendur
af Icelandair Group, Hörpu tónlistar og
ráðstefnuhúsi og Reykjavíkurborg. Þá
koma einnig til skjalanna aðildarfélög á
borð við Bláa lónið, Landsbankann og
Iceland Express. Reykjavíkurborg leggur
verkefninu til 45 milljónir króna á ári.
Harpa og Icelandair koma svo inn með
25 milljónir á ári.
Þorsteinn Örn Guðmundsson er fram
kvæmdastjóri samtakanna Meet in
Reykjavík sem heldur utan um verkefnið
og segir hann að stefnan sé tekin á að
fjölga erlendum gestum til Reykjavíkur í
ráðstefnu og viðburðageiranum.
„Þessir gestir eru mun arðbærari en
hefðbundni ferðalangurinn og þeir koma
til landsins á mjög hagkvæmum tíma,
þ.e. utan háannatímans. Ráðstefnur eru
gjarnan haldnar í miðri viku þegar hótel
nýting er ekki mikil. Það er áríðandi að
sækja markvisst á þennan markað sem
getur reynst okkur mjög arðbær og gert
mörgum ferðaþjónustufyrirtækjum kleift
að starfa allt árið.“
AUkIN verðmætAmYNDUN
„Með þessum gestum myndast aukin
verðmæti í þjóðfélaginu,“ segir Sigurjóna
Sverrisdóttir verkefnisstjóri.
„Ráðstefnugesturinn nýtir ýmiss konar
þjónustu meðan á dvöl hans stendur
eins og t.d. símaþjónustu, versl anir og
veitingastaði. Oftast er eyðslan á kostnað
ráðstefnuhaldarans og gesturinn hefur
því aukið svigrúm til eyðslu. Auk
þess getur fjöldinn allur af öðrum
ferðaþjónustuaðilum komið inn í mynd
ina hjá ráðstefnugestum, þar sem í boði
eru margs konar áhugaverðar skoðana
ferðir og menningartengdir viðburðir.
Þar kemur Harpan okkar sterkt inn;
alvörutónlistarhöll er aðalsmerki hverrar
borgar og hefur bæði byggingin sjálf og
starfið sem fer fram innan Hörpu vakið
almenna aðdáun erlendra gesta. Harpa
er orðin þekkt kennileiti. Það hefur
opnast fyrir nýjan markhóp og mikil
markaðssókn er í gangi um þessar
mundir. Stefnt er að opnun hótels við
hlið Hörpu árið 2015. Það eykur vissu
lega möguleikana enn frekar, enda
ómetanlegt að hafa gott hótel og ráð
stefnumiðstöð á sama stað.“
sAmvINNA í stAð sAmkePPNI
Að sögn þeirra Þorsteins og Sigurjónu
er stefna samtakanna Meet in Reykjavík
að auka vægi ráðstefnumarkaðarins í
Reykjavík. Það verður gert með mark
vissri markaðssetningu erlendis.
Einnig er mikilvæg sú vinna sem lýtur
að uppbyggingu á öflugu stuðnings
neti innan íslensks atvinnu og
þekkingarsamfélags.
„Við viljum efla áhuga Íslendinga í al
þjóðasamskiptum á að halda ráðstefnur
samvinnufélaga sinna í Reykjavík.
Í dag erum við fær um að halda hér
ráðstefnur af öðrum toga og allt annarri
stærðargráðu en fyrr var mögulegt.
Og það er vafalítið allra hagur að efla
ráðstefnuhald í Reykjavík, fjölga við
burðum og stækka markaðinn, sem skilar
sér í auknum viðskiptum við ferða
þjónustuaðila. Áherslan er á samvinnu
frekar en samkeppni.“
Icelandair Group, Harpa, Reykjavíkur-
borg, Bláa lónið, Landsbankinn og Iceland
Express vinna saman að verkefni um
aukna markaðssetningu á Reykja vík sem
alþjóðlegri ráðstefnu- og viðburðaborg.
Það eru samtökin Meet in Reykjavik sem
halda utan um þetta verkefni.
TexTi: Hrund HauksdóTTir / Mynd: geir ólafsson.
Sigurjóna Sverrisdóttir verkefnastjóri og Þorsteinn Örn Guðmundsson,
framkvæmda stjóri Meet in Reykjavík.
Í stuttu máli