Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 34
34 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
ÞAu HAFA ORðIð
Dr. Ásta Bjarnadóttir, ráðgjafi hjá
Capacent:
MANNAUÐSSTJÓRNUN
Ásta Bjarnadóttir segir að það sé lagaskylda en ekki síður skyn samlegt út frá rekstr ar
legum forsendum að gæta þess
að jafnræði ríki með kon um og
körlum hvað varðar laun, hlunn
i ndi og aðra umbun. Mikil vægur
hluti af vandaðri launa stjórn un
sé að gera reglulega úttekt á
stöðu jafnlaunamála. „Þetta má
gera um leið og skoðuð er sam
keppnishæfni vinnustaðarins
sem launagreiðanda, til dæmis
með tilliti til kannana á markaðs
launum. Fyrst ætti að byrja á að
flokka störfin á vinnustaðnum
í nokkra flokka, kannski fimm
til tíu eftir því hversu fjölþætt
starfsemin er. Jafnréttislöggjöf
in gefur ákveðna vísbendingu
um hvernig ætlast er til að störf
séu flokkuð því þar er talað
um „sömu eða jafnverðmæt
störf“. Lykilatriði á þessu stigi
er að forðast að flokka störfin
eftir launatölum heldur byggja
á öðrum þáttum sem gefa til
kynna mikilvægi hvers starfs fyrir
starfsemina á vinnustaðnum.
Sjálf úttektin felst síðan í því að
skoða laun kynjanna innan þess
ara flokka, annars vegar föst
grunnlaun og hins vegar meðal
heildarlaun á ákveðnu tímabili.
Slík úttekt þarf ekki að vera
flókin og nægir oftast að skoða
meðaltölin með berum aug um til
að sjá hver staðan er.“
Ásta bendir á að á næstu
mán uðum verður gefinn út hjá
Staðlaráði Íslands staðall fyrir
jafnlaunakerfi stofnana og fyrir
tækja. „Staðallinn er tæki sem
stjórnendur geta notað til leið
sagnar um þróun launakerfa og
úttektir, hvort sem menn stefna á
formlega vottun eða ekki.“
Jafnrétti í launum
er góður bissness
Dr. Stefanía Óskarsdóttir,
lektor við HÍ
STJÓRNMÁL
Forsetakosningarnar sem nú eru um garð gengnar eru forvitnilegar fyrir ýmsar sakir.
Eitt atriði sem vakti eftirtekt var
Ameríkuvæðing kosningabar
áttunnar en þar léku fjölmiðlar
mikilvægt hlutverk. Án atbeina
fjölmiðla geta frambjóðendur
illa komið sjónarmiðum sínum á
framfæri við almenna kjósendur.
Fjölmiðlar móta þó jafnframt
rammann um hvernig fram
bjóðendur kynna sig, t.d. með
því að ákveða framsetningu
efnis, umræðuefnið, hvaða
spurninga er spurt og skipulag
þátta. Þetta þarf ekki að hefta
slyngan frambjóðanda í því
að koma sjónarmiðum sínum
á framfæri en getur haft áhrif
á túlkun áhorfenda á því sem
fram fer eða er sagt. Í þessum
efnum er sjónvarpið sérstak
lega áhrifamikill miðill. Íslenskar
sjónvarpsstöðvar leituðu greini
lega í smiðju bandarískra sjón
varpsstöðva við kynningu sína á
frambjóðendum. Þetta sást t.d.
í kappræðum frambjóðenda en
uppsetningunni svipaði mjög til
þess sem tíðkast í Bandaríkjum.
Einnig var eftirtekarvert hversu oft frambjóðendur
voru beðnir að lýsa eigin ágæti
í kosningabaráttunni en það átti
enginn frambjóðandi í erfiðleik
um með. Þá var sala á bolum
með andliti frambjóðanda og
veislur stuðningsmanna nokkur
nýlunda sem kannski verður að
venju.“
ameríkuvæðing
kosningabaráttunnar
„Þetta má gera
um leið og skoðuð
er sam keppnis-
hæfni vinnu stað -
arins sem launa -
greiðanda.“
„Eitt atriði sem
vakti eftirtekt var
Ameríkuvæðing
kosningabar-
átt unnar en þar
léku fjölmiðlar
mikilvægt hlut-
verk.“
Það hafa verið upp grip í námaiðnaði á und an förn um árum. Anglo American er umsvifa
mikið fyrirtæki á þeim vettvangi,
einkum er um ræðir vinnslu á
járni, mangan, kopar, platiníum
og demöntum. Cynthia Caroll
hefur verið framkvæmdastjóri
síðan 2007. Það er líklega hægt
að segja að hún sé á heimavelli.
Cynthia er jarðfræðingur að mennt
og varði fyrstu árum starfs ævi
sinnar úti í mörkinni. Smátt og
smátt viku vinnuvettlingarnir og
hún var til margra ára einn af
stjórnendum Alcan. Cynthia hef
ur staðið fyrir miklum breytingum
hjá Anglo American til að skerpa
áherslur í starfseminni og auka
arðsemi. Háværar raddir í byrj
un starfstíðar hennar um að
fyrirtækið væri yfirtökukandídat
eru ekki jafnhvínandi og áður.
Cynthia og félagar girtu starf semina af fyrir nokkrum ár um
með fjórum stefnumarkandi stoð
um. Um ræðir að fyrir tækið eigi
og fjárfesti í fyrsta flokks nám um
í áhugaverðum hrá efnum, að
fyrirtækið ráði fyrir úrvals starfs
fólki og að reksturinn sé skilvirk
ur og hagkvæmur. Síðast, en
kannski ekki síst, að starfsemin
sé örugg, sjálfbær og ábyrg.
Nánast samkvæmt eðli máls
má hafa mismunandi skoðanir
á hvað er sjálfbær og ábyrg
starfsemi og Anglo American,
og Cynthia persónulega, hafa
sætt gagnrýni. Í einu umdeild
asta verkefni fyrirtækisins ræðir
um hugsanlega námuvinnslu á
ósnortnu náttúrusvæði. Þar hefur
Cynthia þurft að þola mjög bein
skeytt viðurnefni sem hún segist
reyna að taka ekki of nærri sér.
Fyrir atorkusemi sína síðan hún
tók við stjórnartaumunum hjá
Anglo American hefur hún aftur
á móti stundum verið kölluð
„StormsveipaCynthia“.“
Loftur Ólafsson,
sérfræðingur hjá Íslandssjóðum:
ERLENDI FORSTJÓRINN
Járnið hamrað
„Háværar raddir í
byrj un starfstíðar
hennar um að
fyrirtækið væri
yfirtökukandídat
eru ekki jafn hvín-
andi og áður.“