Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 126
126 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
Tek fagnandi lögum
sem stuðla að jafnrétti
kynjanna
DHL er alþjóðlegasta fyrirtæki í heimi og brautryðjandi í alþjóðahraðsendingum.
DHL var stofnað í San Francisco árið 1969 og hefur þanist út á ævintýralegum hraða.
D H L
DHL á Íslandi var stofnað árið 1982 og því fögnum við 30 ára afmæli okkar nú í ár,“ segir Guðrún Tómasdóttir framkvæmda stjóri. Hjá DHL á Íslandi
eru 54 starfsmenn en fyrirtækið er einn af
stærstu atvinnurekendum í heiminum í dag.
„Við bjóðum upp á heildarlausnir í flutn
ingum; hraðsendingar, flug og sjófrakt, en
þannig geta viðskiptavinir okkar ráðið hraða
sendinganna, hvort sem um er að ræða
inn eða útflutning. Meðal styrkleika okkar
er gríðarlega sterkt flutningsnet sem nær til
220 landa og 120.000 áfangastaða um allan
heim.“
fjölbreytileiki – enn betri árangur
Hvað finnst þér um lögin sem taka gildi 1.
september 2013 og kveða á um að hlutfall
hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórn
um stærri fyrirtækja?
„Ég tek því fagnandi að með þessum lögum
sé verið að stuðla að jafnrétti kynjanna þegar
skipað er í stjórnir fyrirtækja. Ég tel að með
fjölbreytileika í stjórnum fyrirtækja séu meiri
líkur á enn betri árangri.“
áhersla á ábyrgðarstöður kvenna
Hvernig snerta þessi lög þitt fyrirtæki? Hversu
margar konur eru í stjórn fyrirtækisins?
„Stjórn DHL á Íslandi er nú skipuð þremur
karlmönnum en markmiðið er að finna á því
lausn með skipun konu sem hefur hæfni,
þekkingu og reynslu til að taka virkan þátt í
starfi stjórnarinnar. Hins vegar er stjórnenda
teymi DHL á Íslandi skipað fjórum konum og
þremur karlmönnum. Hjá DHL fá konur jafnt
sem karlmenn tækifæri til að vaxa í starfi og
takast á við ábyrgðarstöður.
Yfirstjórn DHL í heiminum leggur ríka
áherslu á að konur fái tækifæri til að komast í
ábyrgðarstöður og njóti sömu tækifæra. Þess
vegna erum við hjá DHL á Íslandi afar stolt af
að vera öðrum löndum til fyrirmyndar.“
Aldur: 34 ára.
Menntun: Rekstrar- og viðskiptafræði
frá Endurmenntun Háskóla
Íslands. Stefnan sett á nám í
sálfræði í haust, samhliða
vinnu.
Hjúskaparstaða: Er í sambúð með Guðna
Rúnari Helgasyni, eigum
ekki börn saman en Guðni
á eina yndislega dóttur.
Tómstundir: Slökun í bústað í sveitinni.
Einnig heilsurækt, göngu -
ferðir, leikhús, matur, kvik-
myndir og tónlist.
Sumarfríið 2012: Við ætlum að flakka aðeins
um landið og eyða tíma
með fjölskyldum okkar og
kærum vinum. Þeir staðir
sem eru á áætluninni í dag
eru Kjósin, Húsavík,
Mývatns sveit, Egilsstaðir og
Stöðvarfjörður fyrir utan
tímann hérna heima í
Reykjavík.“
„Yfirstjórn DHL í heiminum leggur ríka áhers
lu á að konur fái tækifæri til þess að komast í
ábyrgðarstöður og njóti sömu tækifæra.“
Guðrún Tómasdóttir er Starfsmannastjóri DHL á Íslandi.
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson