Frjáls verslun - 01.05.2012, Síða 127
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 127
DHL er alþjóðlegasta fyrirtæki í heimi og brautryðjandi í alþjóðahraðsendingum.
DHL var stofnað í San Francisco árið 1969 og hefur þanist út á ævintýralegum hraða.
D H L
Reynsla, menntun og
viðhorf skipta meira
máli en kyn
arion banki leggur áherslu á að rækta viðskiptasambönd til lengri tíma, að þekkja
vel þarfir viðskiptavina og uppfylla þær. Bankinn býður fjölbreytt úrval af fjármála
vörum og áherslan er á framúrskarandi þjónustu og sérsniðnar lausnir.
A r i o n b a n k i
Rakel Óttarsdóttir stýrir þróunar og markaðssviði bankans, sem var stofnað í október 2010. Á sviðinu hefur safnast saman á einn stað mikil þekking og reynsla
víðs vegar að úr bankanum.
„Við vinnum náið með fólki af öllum sviðum
bankans að ýmiss konar þróun og breyting
um og þar er góð samvinna okkar allra
lykilatriði. Áhersla er á að innleiða nýjar að
ferð ir í verklagi og markmiðasetningu í þeim
tilgangi að bæta þjónustu okkar við viðskipta
vini enn frekar. Það skiptir okkur gríðarlegu
máli að viðskiptavinirnir séu ánægðir og
kom ið sé til móts við þarfir þeirra.
Við berum ábyrgð á markaðssetningu og
vöruþróun en þar leggjum við mikla áherslu á
að þekkja markaðinn, vita hver ímynd bank
ans er og að skilja þarfir og viðhorf viðskipta
vinanna.
Við stýrum einnig þróun á netlausnum
bankans, þ.e. vef, netbanka og símalausn
um, og vinnum þau verkefni þétt með
starfs fólki upplýsinga og tæknisviðs. Notkun
fjár mála þjónustu í gegnum netið hefur aukist
mikið undanfarin ár og við búumst við enn
meiri aukningu næstu misserin, ekki síst í
gegn um snjallsíma. Þarna ætlum við okkur
að vera í fararbroddi. “
fjölbreytni er af hinu góða
Hvað finnst þér um lögin sem taka gildi 1.
sept ember 2013 og kveða á um að hlutfall
hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórn
um stærri fyrirtækja?
„Ég er almennt ekki fylgjandi lögbundn um
kynjakvótum í stjórnum fyrirtækja eða annars
staðar og ég myndi kjósa að við gætum
auk ið vægi kvenna í fyrirtækjum án lagasetn
ingar. Lagasetning getur verið ágætur
kost ur til að hefja breytingarferlið en ég tel
mikil vægt að tryggja að lögin gildi einung
is tímabundið. Ég held að lagasetning in
muni því miður ekki endilega skila bestu
nið urstöðunni í öllum tilvikum þar sem aðrir
þættir eins og reynsla, menntun og viðhorf
skipta meira máli en kyn þegar kemur að því
að stjórna fyrirtækjum.
Það er mín skoðun að velja skuli besta
umsækjandann í starfið hverju sinni óháð
kyni en vissulega þurfa fleiri konur að koma
að stjórnun fyrirtækja en nú er. Fjölbreytni
tel ég vera af hinu góða, hvort sem um er að
ræða kyn, aldur, menntun, reynslu eða annað.
Þann ig verða til fleiri og fjölbreyttari hugmynd
ir og það eru meiri líkur á góðum ákvörðunum
ef þátttakendur eru ekki allir eins.“
Aldur: 39 ára.
Menntun: Tölvunarfræðingur frá HÍ,
MBA frá Duke University í
Bandaríkjunum.
Starf: Framkvæmdastjóri þróunar-
og markaðssviðs Arion
banka.
Áhugamál: Skíði, spila á spil í góðra vina
hópi og ferðalög til framandi
landa.
Sumarið 2012: Bústaður með vinum,
fjölskylduveiði og æfingar
í golfi.
„Það er mín skoðun að velja skuli besta umsækjandann í starfið hverju
sinni óháð kyni en vissulega þurfa fleiri konur að koma að stjórnun fyrir
tækja en nú er.“
Rakel Óttarsdóttir er framkvæmdastjóri þróunar og markaðssviðs Arion banka.
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson