Frjáls verslun - 01.05.2012, Side 146
146 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
Mér finnst reyndar áhugavert að Lincoln
virðist ekki hafa lesið ævisögur – að
minnsta kosti eru ekki til neinar heimildir
um að hann hafi lesið ævisögur fyrstu
Bandaríkjaforsetanna Washingtons og
Jeffersons, en lífshlaup þeirra hefði átt
að vera afar áhugavert fyrir hann. En
hann virðist hafa haft meiri áhuga á orð
um þeirra sjálfra. Það var skjalfesting
sögu Bandaríkjanna – stjórnarskráin og
sjálfstæðisyfirlýsingin – sem urðu honum
innblástur. Hann sagðist sjálfur aldrei
hafa fengið hugmynd sem ekki átti rætur
að rekja til sjálfstæðisyfirlýsingarinnar. Ef
Lincoln er fyrirmynd Obama ætti hann
að lesa þessar tvær yfirlýsingar vel og
vandlega. Ég held að hver sá sem kynnir
sér þær og skilur loforðin sem þær bera í
sér öðlist dýpri skilning á því hvað þjóðin
þarf á erfiðum tímum, sem er einfaldlega
vonin.
Ert þú vongóð um að úr rætist nú
þegar allt virðist vera á fallanda fæti í
kringum okkur?
Já, mjög vongóð. Á átakatímum getur það
gerst sem ekki virðist mögulegt annars.
Stjórnkerfi Bandaríkjanna er sett upp
með fjölda varnagla og reglugerða svo
að djúpstæðir erfiðleikar eru oft það eina
sem dugir til að knýja fram nauðsynlegar
breyt ingar á því. Sögulegar stundir, þar
sem grundvallarbreytingar á stjórnskipan
eða hugarfari eru mögulegar, koma sjaldan.
Roosevelt fékk sitt tækifæri í heims krepp
unni; Lincoln í borgarastríðinu.
Obama hefur samskonar tækifæri núna.
Þær áskoranir sem bandaríska þjóðin
stendur nú frammi fyrir gefa honum færi
á að þjappa þjóðinni saman á nýjan hátt,
teygja sig yfir flokkslínur og hefðir og
skapa nýja samstöðu. Sagnfræðin gefur
líka ágætis yfirsýn, því það er sama hversu
illa horfir, einhvern tíma var það svartara
í sögunni og Bandaríkin stóðu það af sér.
Ástandið í dag er ekki jafnslæmt og það
var í heimskreppunni á þriðja áratugnum,
að ekki sé minnst á borgarastyrjöldina sem
Lincoln þurfti að takast á við. Roosevelt
flutti ræðu árið 1942 sem er í miklu uppá
haldi hjá mér og hún minnir um margt á
sigurræðu Obama í Chicago.
Í þessari ræðu varar Roosevelt hlustendur
sína við því að mörg mistök verði gerð og
margt muni tapast áður en sigur vinnist í
seinni heimsstyrjöldinni. En hann minnir
jafnframt á að Bandaríkin hafi horfst í
augu við erfiðleika áður og komist í gegn
um þá. Þessi ræða vakti þvílíkan hug í
brjóstum Bandaríkjamanna að þúsundir
símskeyta bárust í Hvíta húsið þar sem
tekið var undir þessi orð og þau lofuð.
Vissulega er fín lína milli óraunhæfrar
bjartsýni og þeirrar trúar að það sé eitthvað
í grunninum á bandarískri þjóðarsál sem
mun hjálpa þjóðinni að yfirstíga allar
hindra nir. En Roosevelt sagði einhvern
tíma að hæfustu stjórnvöld gætu aldrei náð
sama árangri og frjálst orkuflæði frjálsra
ein staklinga í lýðræðisríki. Ég held að hann
hafi haft á réttu að standa – og að þetta
gildi ekki bara fyrir Bandaríkin heldur öll
lýð ræðis ríki heimsins.
Þú hefur rannsakað og skrifað um
fjölmarga stjórnmálamenn – Kennedy,
Fitzgerald, Roosevelt, Lyndon B.
Johnson og Lincoln – með hverjum
þeirra langar þig helst að eyða
kvöldstund?
Lincoln, ekki spurning. Ég var tíu ár
að skrifa ævisöguna hans og hann var
ein staklega skemmtilegur félagi allan
tím ann. En ég myndi ekki yfirheyra
hann um stjórnmál og það sem brennur
á sagn fræðingum, sem er hvernig hann
hafði hugsað sér að sameina þjóðina eftir
sigurinn í borgarastríðinu, hefði hann
lifað. Ég myndi bara biðja hann að segja
mér sögur. Allir sem hann hitti minnt ust
á leiftrandi skopskyn hans og ein staka
frásagnarhæfileika. Enda sagði hann
sjálfur að góð saga væri betri en viskítár.
Ég myndi fá hann til að setjast við eldhús
borðið og segja mér sögur allt kvöld ið og
fá þannig mynd af honum eins og hann
raunverulega var.
HUGmYNDIN í HNOtskUrN:
Snilld Abrahams Lincolns var fólgin í því
að ná stjórn á metnaði og sjálfsáliti keppi
nauta sinna til að búa til sterka liðs heild.
Hæfileikar hans til að búa til slíka liðsheild
lágu helst í óvenjuríkri til finn ingagreind.
Hann lærði af mistökum sínum, tók á sig
ábyrgð með öðrum á mis tökum þeirra og
fór ekki í fýlu. Reynsla Lincolns, eins og
margra leiðtoga á erfiðum tím um, gefur
von um að efnahagskerfi heims ins muni
komast yfir þá erfiðleika sem þau standa
nú frammi fyrir.
(Þessi grein birtist í Harvard Business Review í Apríl 2009.)
Doris Kearns Goodwin hefur skrifað bækur um
Abraham Lincoln, Franklin Roosevelt, John F.
Kennedy og Lindon B. Johnson. Goodwin er kenn
ari við Harvardskóla og pulitzerverðlaunahafi.
Doris Kearns Goodwin fæddist í Brooklyn
árið 1943 og er með doktorspróf í stjórnmálasögu
frá Harvardháskóla. Hún var lærlingur í Hvíta húsinu
í stjórnartíð Lyndons B. Johnsons sem bauð henni
stöðu aðstoðarmanns síns árið 1967 þrátt fyrir að
hún hefði skrifað harðorða grein í tímarit þar sem
hún lagði til að Johnson segði af sér vegna afskipta
af Víetnamstríðinu. Doris þáði ekki stöðuna en að
stoðaði Johnson seinna við að skrá endurminning ar
sínar meðfram kennslu við Harvardháskóla. Fyrsta
bók hennar, Lyndon Johnson and the American Dream
(Lyndon Johnson og ameríski draumurinn), sem byggð
ist á samtölum hennar við forsetann fyrr verandi, kom
út árið 1977 og varð metsölubók.
Good win hlaut Pulitzerverðlaunin árið 1995 fyrirbók
sína No Ordinary Time, um Franklin og Eleanor Roose
velt, og Lincolnverðlaunin fyrir bókina Team of rivals.
Goodwin vinnur nú að næstu bók sinni sem fjallar
um Theodore Roosevelt og hið svokallaða framfara
skeið (Progressive Era) í upphafi tuttugustu aldar í
Bandaríkjunum.
Doris Kearns Goodwin var fyrsta konan sem fékk
að fara inn í búningsklefa hafnaboltaliðsins Red Sox.
Hún er mikil áhugamanneskja um hafnabolta og
hef ur skrifað lærðar greinar um leikinn og tekið þátt
í gerð heimildamyndar um hann. Hún segir að áhugi
sinn á sagnfræði hafi kviknað þegar pabbi hennar fékk
hana til að skrásetja hafnaboltaleiki í útvarpinu og fara
svo með þá fyrir sig þegar hann kom heim úr vinnunni.
Hún er fastagestur í sjónvarpsþáttum eins og
Meet the press og Charlie Rose en hefur einnig ver
ið gestkomandi í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey.
Eigin maður Goodwin er rithöfundurinn Richard
N. Goodwin sem starfaði fyrir Bandaríkjaforsetana
John F. Kennedy og Lyndon Johnson í Hvíta húsinu á
sjöunda áratugnum. Hann fletti einnig ofan af hneyksli
varðandi spurningakeppnir í sjónvarpi á sjötta áratugn
um og er kvikmyndin Quiz Show byggð á reynslu hans
en hún var tilnefnd til Óskarsverð launa árið 1994.
Þau eiga þrjá syni.
Bíómynd:
Kvikmynd eftir bókinni Team of rivals er væntanleg í
lok ársins. Það er Steven Spielberg sem leikstýrir en
með hlutverk Abrahams Lincolns og konu hans Mary
Ann Lincoln fara Daniel DayLewis og Sally Field.
Aðrir leikarar sem orðaðir hafa verið við mynd ina
eru Tommy Lee Jones, Joseph GordonLevitt, Hal
Hol brook, James Spader og John Hawkes sem munu
fara með hlutverk hinna ólíku en sterku persónu leika
í ríkisstjórn Lincolns. Myndin var tekin í Richmond í
Virginíu ríki og fjallar að stærstum hluta um síðustu
fjóra mánuðina í lífi Lincolns.
Um Doris Kearns
Goodwin
Abraham Lincoln sagði
að byssukúlan mætti
aldrei koma í stað kjör
seðils ins.
Fundir, ráðstefnur, veislur,
spennandi matarupplifun í kraftmiklu umhverfi
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
www.bluelagoon.is