Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2011, Page 13

Frjáls verslun - 01.01.2011, Page 13
FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 13 andi í viðskiptablokk þeirri sem tengdist Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Þau umsvif teygðu sig inn í FL Group (síðar Stoðir), Byr, 365 og Teymi svo fáein félög séu nefnd. Þor­steinn­hafði­þó­það­fram­yfir­marga­ sam herja sína að hann hafði bakstuðning í öfl­ugu­rekstrarfélagi­þar­sem­er­Vífilfell­og­ tengd félög. Hefur haft samskipti við Cobega lengi Þorsteinn baðst undan viðtali þegar haft var samband við hann en blaðamaður greindi þó ekki annað en honum væri létt með því samkomulagi sem kynnt var nú 20. janúar síðastliðinn. Skilin eru með þeim hætti að hann hverfur alfarið frá félaginu. Þorsteinn verð ur ekki í stjórn og er margt sem bendir til þess að hún verði skipuð útlendingum eftir að nýr eigandi tekur við félaginu. Þor steinn hafði þó sjálfur frumkvæði að aðkomu nýs eiganda­Vífilfells.­ Það er spænski drykkjarvöruframleið and­ inn Cobega. Mario Rotllant, aðaleigandi Cobega, hefur lengi átt í viðskiptum við Ís­land,­þar­á­meðal­saltfiskviðskiptum,­og­ komið reglulega hingað til lands um árabil. Þorsteinn hefur haft tengsl við Rotllant síðan 1996 en viðskipti Cobega á Íslandi teygja sig allt aftur til 1853. Á­sínum­tíma,­þegar­Þorsteinn­tók­yfir­ Vífi­lfell,­var­rætt­um­aðkomu­Rotllands­ að kaupunum en af því varð ekki. Nú eru við skiptin staðreynd og verða að teljast með stærri fjárfestingum erlendra aðila hér á landi fyrir utan stóriðjufjárfestingar. Heimildir nærri viðskiptunum segja að með þessu sé Þorsteinn að varðveita stöðu sína innan Coca Cola­veldisins. Það getur verið mikilvægt hyggi hann á endurkomu af ein­ hverju tagi. Starfsemi­Vífilfells­hefur­verið­rekin­í­ tvennu lagi, annars vegar rekstrarfélaginu Sólstöf um og hins vegar í fasteignafélaginu Stuðla hálsi. Þau hafa verið sameinuð og sú skuld sem eftir verður jafngildir tvöföldum EBIDTA-hagn­aði­félagsins. Fyrir fjárhagslega endurskipulagningu voru heildarskuldir Sólstafa og Neanu (sem er annað fjárfestingafélag í eigu Þorsteins) við Arion banka um 6,4 milljarðar króna og heildarskuldir­Vífilfells­við­bankann­um­4,5­ milljarðar króna eins og kom fram í tilkynn­ ingunni. Bankinn segir að samkomulagið nú feli í sér fullnaðaruppgjör á skuldum Sól stafa og Neanu við Arion banka og að heildarskuldir­Vífilfells­verði­um­2­milljarðar­ króna og þar af 1,4 milljarðar við Arion banka. Rekstrarfélaginu er ætlað að standa traust­ um grunni og er þetta t.d. ólíkt endurskipu­ lagningu Ölgerðarinnar, sem einnig er ný lokið, að því leyti að þar er rekst urinn lát inn bera talsverðar skuldir auk þess sem bank ­ inn hélt fasteignunum eftir í sérstöku félagi. Þar fengu hins vegar eigendur að halda eftir tæplega helmings hlut. Í­tilfelli­Vífilfells­er­það­einbeitt­krafa­Coca­ Cola í Atlanta að félagið sé ekki skilið eftir með miklar skuldir. Án þess að farið sé djúpt í þá sálma er ljóst að þeir hafa mjög mikið með það að gera hvar framleiðslu­ leyfið­endar­og­hafa­því­komið­að­ferlinu,­ rétt eins og var þegar Þorsteinn kom að því á sínum tíma. Vífilfell misst markaðshlutdeild Nokkuð er síðan Þorsteinn hvarf frá dagleg­ um­rekstri­Vífilfells­og­hefur­Árni­Stefánsson­ stýrt­félaginu­síðan.­Vífilfell­hefur­heldur­ verið að missa markaðshlutdeild en haldið sínu þar sem framlegð er hvað best, s.s. í bjórsölu. Sem dæmi um þessa þróun má nefna að árið 2001 voru þeir með 70% af drykkjarvörumarkaðinum en 2010 var hlut­ fallið­komið­niður­í­45%.­Velta­Vífilfells­hefur­ tvöfaldast þann tíma sem Þorsteinn hefur átt­félagið­en­það­velti­ríflega­10­milljörðum­ króna árið 2009. Til samanburðar má nefna að Ölgerðin, helsti keppinauturinn, velti tæpum 15 milljörðum króna það ár. Hluti af samkomulaginu nú lýtur að því að Arion banki mun einnig fá í sinn hlut vænt anlegt söluandvirði og aðrar greiðslur vegna­hlutar­Vífilfells­í­hollenska­drykkjar- vör uframleiðandanum Refresco. Þar til Refresco hefur verið selt mun Þorsteinn sitja í stjórn félagsins. Eftir­því­sem­komist­verður­næst­mun­ hann hafa möguleika á ávinningi (e. up­ side)­ef­félaginu­farnast­vel.­Vífilfell­á­nú­ 5% í Refresco eftir að hafa þynnst út við hlutafjáraukningar. Íslensku fjárfestarnir fóru inn í Refresco árið 2006, mest fyrir tilstilli Hannesar Smárasonar hjá FL Group (nú Stoða)­sem­keypti­ríflega­40%­hlut.­ Velta Refresco árið 2009 nam um 1,14 milljörðum­evra­eða­yfir­200­milljörðum­ íslenskra króna. Hér er um að ræða metn­ aðarfullt fyrirtækjaverkefni og vel hægt að leyfa sér að ætla að það geti orðið ábata­ samt. Refresco var skráð á kaupverði í bókum Sólstafa en ætla má að verðmæti hlutarins sé a.m.k. 3,5 milljarðar króna í dag. En­það­er­vegna­uppgjörs­á­öðrum­fjár- festingum sem Þorsteinn neyðist til að láta frá­sér­Vífilfell­á­þessari­stundu.­Eins­og­ svo margir aðrir íslenskir kaupsýslumenn dróst hann inn í hringiðu hlutabréfakaupa og ofurskuldsetninga. Þess sá stað í bókum Sólstafa 2006 þar sem helstu eignir voru mark aðs verð bréf, aðallega í íslenskum hluta­bréfum;­Kaupþingi,­Exista,­Byr­og­ Glitni, allt skráð bréf. Bókfærð eign upp á þrjá milljarða og langtímalán þrír millj arðar, allt í erlendum lánum. Það þarf ekki að hafa mörg orð um að allt hefur­þetta­snúist­til­verri­vegar;­fjárfesting- arnar glataðar og skuldirnar einar eftir. Samkvæmt hinni margfrægu lánabók Kaup þings sem birtist á netinu námu skuldir Þorsteins og tengdra félaga um 72,9 millj ­ ón um evra eða 11,4 milljörðum króna þegar bankinn­féll­haustið­2008.­Er­þá­miðað­við­ gengið í dag. Uppgjör á fjármálum Þorsteins teygir þar af leiðandi anga sína í margar áttir. Í áður ­ nefndri tilkynningu bankans kemur fram að Þorsteinn á einnig hlut í fjárfest ingafélaginu Materia­Invest­og­er­í­persónu­legri­ábyrgð­ fyrir 240 milljónum af skuldum fél agsins við Arion banka. Hluti af samkomulaginu nú er uppgjör þess ara persónulegu ábyrgða. Það segir sjálf sagt ekki alla söguna. Vegna stjórnarfor­ mennsku í Glitni hefur hann orðið að þola málsókn í Bandaríkjunum og hér heima og greinilegt að kostnaðarsamt verður fyrir hann að ljúka því uppgjöri sem allt stefnir í. UPPGJÖR ÞORSTEINS M. JÓNSSONAR, STJÓRNARFORMANNS VÍFILFELLS Fyrir fjárhagslega endurskipulagningu voru heildarskuldir Sólstafa og Neanu (sem er annað fjárfestingafélag í eigu Þorsteins) við Arion banka um 6,4 milljarðar króna og heildarskuldir Vífilfells við bankann um 4,5 milljarðar króna eins og kom fram í tilkynn ingunni. Bankinn segir að samkomulagið nú feli í sér fullnaðaruppgjör á skuldum Sól stafa og Neanu við Arion banka og að heildarskuldir Vífilfells verði um 2 milljarðar króna og þar af 1,4 milljarðar við Arion banka.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.