Frjáls verslun - 01.01.2011, Síða 18
18 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011
FYRST & FREMST
Heiða í Nikita fékk
FKA–viðurkenninguna
Aðalheiður Birgisdóttir, betur þekkt sem Heiða í Nikita, hlaut FKA-viðurkenninguna
að þessu sinni. Hún stofnaði Nikita ásamt þremur öðrum árið 2000 og allar götur
síðan hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt. Nikita framleiðir fyrst og fremst fatnað
fyrir stelpur sem stunda snjóbretta-íþróttina.
FKA veitir að jafnaði fjórar
viðurkenningar. Hvatningar
viðurkenningu FKA hlaut
Margrét Pála Ólafsdóttir,
leikskólastjóri og stofnandi
Hjallastefnunnar.
Þakkarviðurkenningu FKA
hlaut Dóra Guðbjört Jónsdótt
ir, gullsmiður í Gullkistunni við
Frakkastíg.
Gæfusporið 2011 hlaut Ís
lands banki – en hlutfall kynja
í framkvæmdastjórn bankans
er nú hnífjafnt. Hafdís Jóns
dóttir, formaður félagsins,
ávarpaði gesti og stýrði veisl
unni. Árni Páll Árnason, efna
hags og við skiptaráðherra
afhenti viður kenningarnar. Þá
hlaut Linda Svanbergsdótt
ir hjá fyrirtækinu Secret North
útflutningsstyrkinn frá FKA að
þessu sinni. Hann er veittur
félagskonu í FKA til að taka
þátt í verkefninu Útflutningur og
hagvöxtur á vegum Íslands
stofu og verður viðkomandi að
hafa byggt upp fyrirtæki eða
afurð sem er tilbúin til útflutn
ings.
Aðalheiður Birgisdóttir, betur
þekkt sem Heiða í Nikita, fékk
FKA-viðurkenninguna.
Árni Páll Árnason, Birna Einarsdóttir
og Hafdís Jónsdóttir.
Hafdís Jónsdóttir, formaður FKA,
ávarpaði gesti og stýrði veislunni.
Rósa Helgadóttir, Þóra Helgadóttir
og Birna Guðmundsdóttir.
Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, forseti Alþingis,
og Kristrún Heimisdóttir,
aðstoðarmaður efnahags-
og viðskiptaráðherra.
Linda Svanbergsdóttir, Secret North, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Margrét Pála
Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar, Dóra Guðbjört Jónsdóttir, gullsmiður í Gullkistunni,
Aðalheiður Birgisdóttir í Nikita og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
Reynslumikið starfsfólk sér um að gera
viðburðinn þinn ógleymanlegan
Öflugt veitingateymi LAVA undir stjórn Viktors Arnar,
landsliðskokks, býður spennandi matarupplifun
Ógleymanleg veisla í dulúðlegu umhverfi
Reynslumikið starfsfólk Bláa Lónsins sér um að uppfylla tæknilegar
þarfir og ráðleggja um atriði er varða skipulagningu og framkvæmd
viðburða og funda. Nánari upplýsingar má fá í síma 420 8815 eða
með því að senda tölvupóst á sales@bluelagoon.is
KRAFTMIKIÐ UMHVERFI BLÁA LÓNSINS...
... KEMUR HUGMYNDAFLÆÐINU AF STAÐ
www.bluelagoon.is