Frjáls verslun - 01.01.2011, Blaðsíða 51
FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 51
sem því nemi. „Ég hef áhuga á að ná inn
fleiri ráðstefnum í tengslum við athafnalíf
ið. Það fólk er verðmætustu ferðamenn irn
ir; þeir fljúga á Saga Class, þeir gista í bestu
hótelherbergjunum og eyða miklu svo sem
í glæsilega kvöldverði og jeppa ferðir. Menn
skilja mikinn pening eftir í land inu þegar
þeir eru á dagpeningum.
Við ættum líka að gera út á alþjóðleg ar ráð
stefnur og sérstaklega alþjóðlega samn inga
fundi milli deiluaðila. Þeir geta verið lengi
í viðkomandi landi, jafnvel í nokkrar vikur.
Það ættu allir að geta sætt sig við Íslendinga
hvað slíka fundi varðar. Við eigum ekki í
útistöðum við neinn, við erum friðelskandi
þjóð, hér er lýðræði sem virkar, fréttakerfið
virkar og heilbrigðiskerfið virkar þannig
að það er ekkert vandamál ef fundargestir
veikjast skyndilega.“
Fimm stjörnu hótel
Jón Hákon bendir á að hér á landi séu
þrjú góð ráðstefnuhótel en að það þurfi að
gera betur; kröfurnar séu alltaf að aukast,
sér stak lega hvað varðar ráðstefnur þar
sem fólk úr viðskiptalífinu kemur saman.
„Það vill helst að fundarsalurinn sé í eða
við hótelið. Þá eru gerðar miklar kröfur
hvað varðar tækni og nýjungar. Það vantar
fimm stjörnu hótel. Fólk vill að herbergin
séu sam kvæmt ströngustu kröfum og að til
dæm is rúmin og baðherbergin séu fyrsta
flokks. Fólk í viðskiptalífinu gerir til dæmis
miklar kröfur um að dýnurnar séu í lagi.
Sumar hótelkeðjur erlendis gera út á að
dýnurnar þeirra séu þær albestu í heimi.
Það eru svona litlir hlutir sem skipta máli.
Við höfum til dæmis fengið að heyra það ef
sápurnar á baðherbergjunum eru of litlar.
Ráðstefnusalirnir hér eru margir hverjir
góðir en stundum vantar sýningarsvæði
fyrir utan aðalsalinn. Ef um lyfjaráðstefnur
er að ræða vilja lyfjafyrirtæki til dæmis
vera með litla kynningarbása í anddyrinu
eða nálægt ráðstefnusalnum þar sem þau
geta kynnt vöruna sína.“
Náttúra Íslands
Náttúra Íslands hefur væntanlega áhrif á að
sumir kjósa að halda ráðstefnur hér á landi.
„Menn eru farnir að leita að einhverju sem er
öðruvísi; eru kannski vanir að vera á ráð stefn
um á sömu stöðunum. Mönnum finnst svo
makalaust að koma til Íslands og kynnast nátt
úrunni; þeir komast hvergi ann ars staðar eins
nálægt náttúrunni og hér. Við erum með ísinn,
eldinn, vatnið og óbyggðir. Þetta fær fólk ekki
í stórborgum. Ráð stefnugestir fara sumir í
vélsleðaferðir, jeppaferðir, kajakferðir og
sumir hafa farið í kokteilpartí á Vatnajökli!“
Jón Hákon bendir á að íslenskir veitinga
staðir fái góð meðmæli frá erlendum
ráðstefnugestum og hann segist aldrei hafa
heyrt ráðstefnugesti kvarta yfir því að þeir
væru óánægðir með matinn. „Maturinn er
öruggur og litlar líkur á að fólk fái matar
eitrun. Fiskurinn er ferskur, kjötið gott og
íslenskt grænmeti er í toppklassa.“
Hann nefnir líka íslenska vatnið. „Vatnið
trekkir. Ég tók eftir því í kringum leiðtoga
fundinn að sumir frönsku blaðamennirnir
voru duglegir að drekka vatnið þegar þeir
gerðu sér grein fyrir því að það væri meira
en óhætt að drekka það beint úr krananum.
Þeir sögðust hafa minnkað rauðvínið um
leið. Margir þeirra skrifuðu greinar heim
um gæði kranavatns í Reykjavík.“
RÁÐSTEFNULANDIÐ ÍSLAND
„Ég hef áhuga á að ná inn fleiri ráðstefnum í tengslum við
athafnalíf ð. Það fólk er verðmætustu ferðamenn irn ir; þeir fljúga
á Saga Class, þeir gista í bestu hótelherbergjunum og eyða miklu
svo sem í glæsilega kvöldverði og jeppa ferðir.“
FRÆGÐARSÓL BJARKAR
GUÐMUNDS DÓTTUR tónlistarkonu
hefur farið víða og erlendir fjölmiðlar hafa
verið duglegir að segja að hún sé frá Ís
landi. Þetta hefur ferðaþjónustan nýtt sér.
Eldgosið í Eyjafjallajökli og afleiðingar
þess fyrir flugsamgöngur í heiminum
kom Íslandi inn í alla erlenda fjölmiðla.
Núna er gosið að skila sér í fleiri erlend
um ferða mönnum. Náttúran og eldfjöll
in hafa komið Íslandi á kortið – sem og
bókmenntirnar, tímaritin, netið, skákin,
skákeinvígi aldarinnar, fundur Regans og
Gorbatsjov í Höfða, Halldór Kiljan Laxness
rithöfundur, handboltinn, íslenski hestur
inn, kvikmyndagerðin, matargerðin, Eiður
Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður og
lengri getur listinn auðveldlega orðið.
En það er sitt hvað að koma Íslandi á
kortið og selja ferðir til landsins. Jú, það er
betra að selja ferðir til Íslands og ráðstefnur
þegar fleiri vita hvar landið er. En það er
ferðaþjónustunnar að landa bæði ferða
mönn um og ráðstefnum.
Í markaðsfræði er það þannig að engin
vara selur sig sjálf. Ísland selur sig ekki
sjálft þótt fleiri viti af landinu.
Það stefnir í gott ráðstefnuár, þökk sé bæði
Eyjafjallajökli og ráðstefnuskrifstofunum.
Hverjir hafa komið Íslandi á kortið?
Það er margt og margir sem hafa komið Íslandi á kortið í gegnum tíðina og
gert það að verkum að auðveldara er að selja útlendingum þá hugmynd að
halda ráðstefnur á Íslandi.
Björk afhendir forsætisráðherra undirskriftalista
vegna náttúruauðlinda. Fáir hafa komið Íslandi jafn
kirfilega á kortið og hún.
Eldgosið í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess fyrir flugsamgöngur
í heiminum kom Íslandi inn í alla erlenda fjölmiðla.