Frjáls verslun - 01.01.2011, Side 44
44 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011
LEIKLIST EÐA VIÐSKIPTI
Þegar kom að menntaskóla vandaðist mál
ið með val á námi. Hún hoppaði reyndar
yfir einn bekk í grunnskóla, fór úr 8. bekk
í 10., og ákvað svo að fara í Verslunarskól
ann fremur en að sækja nám í Keflavík.
Þetta gerði hún vegna þess að orð fór af
skólanum sem einum besta framhaldsskóla
landsins og svo var hann frægur fyrir öfl
ugt félagslíf.
Námið gekk að vonum vel og félagslífið
líka. Sigríður var í stjórn málfundafélagsins
og í leikfélaginu. Í fimmta bekk lék hún an
nað aðalhluverkið, Blanche DuBois, í Spor
vagninum Girnd eftir Tennessee Williams.
„Þetta var mjög metnaðarfull sýning og
mikið á sig lagt,“ segir Sigríður, sem þó hélt
ekki áfram í leiklistinni, eins og til dæmis
Þórunn Erna Clausen, sem var í sama hópi.
„ELEGANT“
Þórunn segist ekki í vafa um leikhæfileika
Sigríðar. „Hún var mjög góð leikkona
og hefði þess vegna getað haldið áfram í
leik listinni,“ segir Þórunn. „Þetta er mjög
dramatískt og krefjandi hlutverk. Hún
lék mjög vel og er líka svo falleg og hefur
þenn an „elegans“ sem þarf í þetta fræga
hlutverk.“
Þórunn segir að Sigríður sé mikil ná
kvæmnismanneskja, greind og dugleg.
„Það er alveg sama hvað hún tekur sér
fyrir hendur; hún gerir allt vel og nær langt
í því sem hún gerir,“ segir Þórunn.
Þórunn segir ennfremur að það hafi alls
ekki komið sér á óvart að viðskipti urðu
fyrir valinu, þótt Sigríður hefði náð langt
á hvaða sviði sem er. Og Þórunn upplýsir
að Sigríður hafi meira að segja tekið þátt í
fegurðarsamkeppni og náð langt þar líka.
Önnur bekkjarsystir og vinkona Sigríðar
úr Verzló er Hanna María Pálmadóttir.
„Í Verzló var hún mjög dugleg og hafði
metnað fyrir því sem hún var að gera,“
segir Hanna María. „Hún lagði sig fram þá
alveg eins og hún gerir í dag.
Hún hefur alltaf verið hress, skemmti
leg og svolítill prakkari í sér og um leið
umhyggjusöm og hugsað vel um fólkið í
kringum sig.“
Hanna María segir að hún hafi verið dug
leg í námi og tekið virkan þátt í félagslífinu.
„Hún var alltaf mjög ljúf og góð en lét
eng an vaða yfir sig. Hún gat verið ákveðin
ef þess þurfti og málefnaleg og var t.d.
mjög góð í ræðukeppnum.“
Hanna María segir einnig að hún geti vel
ímyndað sér að þessir eiginleikar nýtist
henni sem stjórnanda. Sigríður hafi skýr
mark mið, eindreginn vilja til að ná þeim og
búi yfir þeim kosti að eiga auðvelt með að
fá fólk með sér í lið.
VALDI AKUREYRI
Að loknu stúdentsprófi frá Versló þurfti
Sigríður enn að velja. Hún hafði áhuga
á viðskiptafræði og tók viðskipta nám
Háskól ans á Akureyri fram yfir viðskipta
deild ina í Háskóla Íslands. Bekkj ar systirin
Hanna María segir að ferðin norður sýni að
Sigríður er mjög sjálfstæð – hún gerir það
sem hún ætlar sér.
„Námið fyrir norðan höfðaði betur til
mín,“ segir Sigríður. „Þar var kennt í litlum
hópum og nálgunin almennari.“ Á sumrin
á námsárunum vann Sigríður meðal annars
í Sparisjóði Keflavíkur þannig að hún býr
að reynslu úr bankaheiminum líka.
Á Akureyri kynntist Sigríður mannin um
sínum, Rúnari Pálssyni, sem nú er lána
stjóri hjá Íslandsbanka. Þau eiga tvo syni
sem Sigríður segir að séu „afskaplega góðir
drengir“.
„Áhugamálið heima er matargerð,“ segir
Sigríður. „Mér finnst gaman að búa til mat
og lesa matreiðslubækur.“
RÉTT HLUTFÖLL
Mestur tíma fer hins vegar í vinnuna og
í félagsstörf tengd henni. Hún er í stjórn
Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka
atvinnulífsins.
Sigríður segist ekki vera stjórnandinn
sem allt viti. Hún vill treysta þeim sem vita
best á hverju sviði. „Hér er valinn maður í
hverju rúmi svo þetta er ekki vandamál,“
segir Sigríður.
„Í rekstri fyrirtækis verður að gæta að
réttum hlutföllum milli hagsmuna eigenda,
starfsmanna og viðskiptavina,“ segir
Sigríður. Hún segir líka að þegar rekstur
inn sjálfur er í lagi sé hægt að loka sig frá
vandamálum utan fyrirtækis og forðast að
láta breytingar á eignarhaldi hafa áhrif á
starfsandann.
REYNIR Á FÓLK
Hún segir jafnframt að hrunið og afleið
ingar þess reyni á fólk ekki síður en fyrir
tækið. „Það er á við strangt háskóla nám að
reka fyrirtæki við þessar aðstæður,“ segir
Sigríður.
„Lífið hefur breyst við hrunið. Það reynir
á fólk að búa við stöðugt neikvæðar fréttir.
Við því þarf að bregðast,“ segir Sigríður.
Síðustu ár hafi engu að síður verið
skemmti legur tími og mikilvægt að starfs
fólkið hafi að einhverju að stefna sameigin
lega. „Við verðum að gefa okkur meiri tíma
en áður til að vera saman,“ segir hún.
Alls eru nú hjá Já um 80 stöðugildi en
nokkur hópur er í hlutastörfum þannig að
starfsfólk er alls um 130 og dreifist á starfs
stöðvar víða um land. Í „höfuð stöðv unum“
í Reykjavík eru 4045 starfsmenn að jafnaði.
ÖR ÞRÓUN
Já er talið fimmta verðmætasta vörumerkið
á Íslandi og netsíða þess er ein af þeim
fimm mest notuðu. Og gert er ráð fyrir auk
inni umferð. Ný tækni með snjallsímum og
lesbrettum leiðir til þess að fólk nýtir upp
lýsingar á netinu enn meir en áður. Þarna
er ör þróun.
Já hefur þegar sett á markað eitt smáforr it
fyrir snjallsíma; Já í símann, og einnig á að
opna vefsvæði með allsherjarupplýsing
um fyrir ferðamenn á leið um landið. Það
verður stöðugt auðveldara að nálgast upp
lýsingar á netinu án þess að hafa tölvu við
höndina.
„Við verðum að fylgjast vel með, því
hlut irnir gerast hratt,“ segir Sigríður. Það
útheimti ferðalög á ráðstefnur og sýningar
þar sem nýjasta tækni er kynnt.
SIGRÍÐUR MARGRÉT ODDSDÓTTIR, FORSTJÓRI JÁ, Í NÆRMYND
Guðrún Hákonardóttir, fyrsti
vinnuveitandi:
Hún var afskaplega góður
unglingur, fyrirmyndar
unglingur.
Nýherji hf. Borgartún 37 Sími 569 7700 Kaupangur v/Mýrarveg Akureyri Sími 569 7620 www.netverslun.is
Starfskraftur mánaðarins
Fartölvur frá Lenovo eru afbragðsgóðar fyrir
kröfuharða notendur í leik og starfi.
ThinkPad fartölvur frá Lenovo byggja á einstöku
hugviti, lágri bilanatíðni og gæðum.