Frjáls verslun - 01.03.2010, Blaðsíða 76
76 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0
TEXTI OG LJÓSMYND: PÁLL STEFÁNSSON
Í góðum gír
Ekkert var til sparað; það tók 36 mánuði
og kostaði 225 milljón dollara að koma
ix35 bílnum á götuna.
Bíllinn var fyrst kynntur til sögunnar á
bílasýningunni í Frankfurt síðastliðið haust
og hófst salan fyrir nokkrum vikum. Hann
kemur með tveimur vélum í upphafi, báðar
2 lítra og sprækar, tengdar við ágæta sex
gíra sjálfskiptingu. Dísil vélin er 184 hross
og bensínvélin sem ég prófaði er góð 166
hestöfl, spræk og viljug fyrir ekki stærri bíl.
Norður-Amríkanar fá síðan stærri vél, 2,4
lítra 200 hestafla rokk.
Það fer vel um ökumann, rýmið er gott og
aftursætin einstaklega þægileg. Mæla
borðið er smekklegt og öll helstu stjórn
tæki á réttum stað. Auðvelt er að finna
rétta akstursstillingu, útsýni er gott, enda
situr maður nokkuð hátt í þessum jepp
lingi. Farangurgeymslan er þokkalega stór,
en stórir póstar að aftan hamla útsýni við
að bakka. Í bílnum er nýjung. Þegar nauð
heml að er kviknar á viðvörunarblikk ljósum;
snið ugt. Þeir sem aka fyrir aftan átta sig á
hættunni þegar í stað.
Aksturseiginleikar Hyundai bílsins eru
nokkuð góðir. Stýrið er létt, fulllétt en þyng
ist með aukinni ferð. Bílinn er með öll
nú tíma samkipti á hreinu, útvarpi og síma
er stjórnað úr stýrinu, eins er ipodtengi og
usbtengi í mælaborðinu. Nútímalegt fara r
tæki fyrir íslenskar aðstæður.
FLOTTASTUR, NÆSTUM ÞVÍ
Bílar
Laglegur og evrópskur í útliti er nýi Hyundai ix35 jepplingurinn. Hann er teiknaður og hannaður af
fyrrum BMW hönnuðinum Thomasi Buerkle, í hönnunarstúdíói Hyundai í Russelsheim, Þýskalandi.