Frjáls verslun - 01.03.2010, Blaðsíða 83
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0 83
SVANDÍS RÚN RÍKARÐSDÓTTIR
framkvæmdastjóri Rose Invest
Nafn: Svandís Rún Ríkarðsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík, 26.
mars 1981.
Foreldrar: Ríkarður Rúnar
Ríkarðsson og Friðbjörg Sif
Grétarsdóttir.
Maki: Elmar Hallgríms
Hallgrímsson.
Börn: Júlían Ríkarður Elmarsson,
2ja ára í haust.
Menntun: B.Sc. í viðskiptafræði og
próf í verðbréfaviðskiptum.
Svandís Rún Ríkarðs
dóttir: „Hef ég verið
að prófa mig áfram við
ljósmyndun og kemur
kannski ekki á óvart að
uppáhaldsmyndefnið
er sonurinn.“
V
ið stofnuðum Rose Invest í lok árs
2008. Félagið rekur verð bréfa sjóðinn
River Rose og fag fjár festasjóðinn
Purple Rose og helstu viðskiptavinir okkar
eru fagfjárfestar s.s. lífeyrissjóðir og trygg
ingafélög. Markmið sjóðanna er að fylgja
hlutabréfaverði upp í hækkun en ekki
niður í lækkun. Sjóðirnir sækjast eftir
ávöxtun af hækkun leiðandi fyrirtækja og
markaða í helstu löndum heims og fjárfesta
í alþjóðlegum hlutabréfum sem skráð eru í
Bandaríkjunum. Við fylgjumst með hluta
bréfum á Wall Street hverja mínútu á meðan
opið er þar, frá kl. 9.30 til 16.00 á New
York tíma.
Sem framkvæmdastjóri félagsins ber ég
ábyrgð á daglegri starfsemi þess. Starfið
er fjölbreytt og skemmtilegt og í því felst
m.a. að halda utan um reksturinn, sjá um
samskipti við samstarfs og eftirlitsaðila og
ekki síst að styðja við stýringu sjóðanna
þar sem þeir eru kjarninn í starfseminni.
Sigurður B. Stefánsson er annar stofnandi
félagsins og sjóðstjóri og gæti ég ekki hugsað
mér betri samstarfsfélaga. Við erum ein
mitt nýbúin að senda út sumarkveðju til
viðskiptavina okkar og annarra velunnara á
póstlista félagsins. Við sendum slíka pósta
með reglubundum hætti en þar er farið
yfir stöðuna á hlutabréfamarkaði, ávöxtun
sjóða og það helsta sem er á döfinni hjá Rose
Invest. Á heimasíðunni www.RoseInvest.
com erum við að byggja upp fróðleik um
fjárfestingarstílinn og þá hugsun sem býr að
baki. Þar eru líka upplýsingar um sjóðina,
reglulegar dagbókarfærslur auk þess sem
nokkrar nýjungar eru í undirbúningi sem
koma inn á næstu vikum.“
Svandís hefur lokið B.Sc. prófi í við
skipta fræðum við Háskóla Íslands og
prófi í verðbréfaviðskiptum. Samhliða
starfi stundar hún MS nám í fjármálum
fyrirtækja við Háskóla Íslands.
„Þegar kemur að áhugamálum er vinnan
ofarlega í huga og það er frábært að vinna
við það sem maður hefur ánægju af. Önnur
áhugamál eru margvísleg og meðal þess sem
ég nýt að gera er að lesa góðar bækur og
ferðast. Þá hef ég verið að prófa mig áfram
við ljósmyndun og kemur kannski ekki á
óvart að uppáhaldsmyndefnið er sonurinn.
Um helgar nýtur fjölskyldan þess að taka
frá tíma til að slaka á saman. Þá tökum við
gjarnan daginn snemma með nýbökuðu
bakkelsi og förum svo í bæjarferð. Þar
sem það vekur mikla kátínu hjá yngsta
fjölskyldumeðlimnum að skoða endurnar
á tjörninni og dýrin í Húsdýragarðinum
eru það reglulegir viðkomustaðir hjá
okkur. Eins er alltaf gaman að líta við hjá
fjölskyldu og vinum en í því annasama
umhverfi sem við lifum í dag gerir maður
aldrei nóg af því.
Það sem stendur hæst þessa dagana er að
klára að skipuleggja sumarfríið. Ef aðstæður
á Eyjafjallajökli leyfa er stefnt á stutta ferð
til Kaupmannahafnar þar sem Tívolí verður
án efa heimsótt. Þá er stefnt á að fara loks
ins í langþráð ferðalag hér á landi og eru
nú þegar tvær útilegur á teikniborðinu með
hópum innan fjölskyldna okkar. Fjölskyldan
reynir að fara reglulega til út landa enda er
frábært að heimsækja nýja staði og njóta
þess að slaka á, skoða sig um og prófa
skemmtilega hluti. Í desember á síðasta ári
fórum við til Boston þar sem við dvöldum
í góðu yfirlæti hjá frændfólki mínu og var
ógleymanlegt að upplifa jólastemninguna í
Boston.“
Fólk