Frjáls verslun - 01.07.2008, Blaðsíða 20
20 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8
Forsíðu grein SPROTAFYRIRTÆKI
F
yrir einungis ári síðan var Ísland eitt af undrum veraldar
hvað varðar viðskipti og útrás. Erlendir fjölmiðlar fjölluðu
um Ísland með tregablandinni aðdáun, þetta land sem hefur
íbúafjölda sem samsvarar borg í Danmörku eða hverfi í
London. Þeim fannst sagan skemmtileg þar til þeim varð
ljóst að Íslendingar stefndu á heimsyfirráð ... eða dauða. Þetta er hins
vegar merkileg saga sem enn hefur ekki verið sögð af neinu viti. Sagan
verður ekki rakin hér heldur einungis bent á þætti sem styðja umræðu
um sprotafyrirtæki Íslands.
Stórtækir
Ein er sú skýring sem nefnd hefur verið varðandi útrásarbylgjuna,
semsé að Íslendingar séu áhættusæknir. Atvinnuvegasaga Íslands ber þó
ekki þess merki að Ísland sé áhættusækin þjóð þar sem hún er klassísk
saga auðlindastefnu. Það er í eðli sínu mjög áhættufælin aðferðafræði
að byggja á auðlindum. Það er einnig áhugavert í þessu samhengi að
Íslendingar vissu varla hvað útrás var fyrr en á þessari öld, ef frá er tal-
inn útflutningur á sjávarafurðum. Útrásarsaga Íslendinga er dæmi um
áhættusækni en á sér skýringar.
Með einkavæðingu bankanna í lok tíunda áratugarins var aðgengi að
fjármagni allt annað en áður og fjármálastofnanir með unga menn sem
voru hungraðir og vildu aukna ávöxtun. Þetta var að mörgu leyti röð
tilviljana sem varð til þess að bæði Baugur og Bakkavör gerðu uppkaup
erlendis sem gengu upp. Í kjölfarið óx Íslendingum ásmegin enda gildir
það á Íslandi að ef Jón nágranni getur, þá getum við líka. Íslendingar
fóru að hugsa stórt. Áhættan var vanmetin en það var af sem áður var,
að viðskipti snerust um krónur og aura, nú voru það bara milljarðar.
Miðað við vinnu og framlag þá borgar sig að hugsa stórt. Þetta var ekki
áhættusækni heldur ofsafengin bjartsýni eyjarskeggja.
Áhættufjárfestingamarkaður var ekki til hér á landi fyrr en í lok tíunda áratugarins.
Fyrirtækjaumgjörð hins opinbera var ekki góð, ríkisrekstur var stórtækur, skattar
háir og regluveldið þungt og óskilvirkt.
texti: dr. eyþór ívar jónsson • myndir: geir ólaFsson o.Fl
SPROTALANDIÐ
ÍSLAND
Áhugaverðustu sprotaFyrirtæki Íslands
Dr. Eyþór Ívar Jónsson er framkvæmdastjóri Klaks -
Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins og Sprotaþings Íslands.