Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2008, Blaðsíða 100

Frjáls verslun - 01.07.2008, Blaðsíða 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8 s p a r i s j ó ð i r n i r Hann segir að lögum hafi verið breytt 2001 sem gerðu sparisjóðum kleift að breyta sér í hlutafélög, kysu þeir að breyta rekstrarformi sínu. Spron reið á vaðið með áform um hlutafélagsform, en áður en til þess kom reyndi Búnaðarbankinn yfirtöku á sparisjóðnum. Sú yfirtaka tókst ekki og þegar Spron stefndi á ný að breytingu í hlutafélag með það að markmiði að sameinast síðan Kaupþingi, var þeim áformum spillt með nýrri lagasetningu. Þessi lagasetning og þær breytingar sem gerðar voru á lögum um starfsemi sparisjóða 2001 var ætlað að verja stöðu sparisjóðanna. Í raun takmörkuðu þessar breytingar möguleika sparisjóðanna á að þróast og nýta sér þau tækifæri sem fjármálamark- aðurinn bauð upp á. Sparisjóðirnir einangruðust enn frekar og höfðu mun minna svigrúm en aðrar fjármálastofnanir. seðlabankinn firrir sig ábyrgð Guðmundur bendir á að fleiri þættir hafi áhrif á starfsumhverfi spari- sjóða en löggjöfin ein. Má í því sambandi nefna afstöðu Seðlabankans og eftirlitsstofnana. Reglur, sem Seðlabankinn setji um samskipti sín við fjármálastofnanir, takmarki möguleika þeirra til að koma til móts við þarfir sparisjóðanna. „Seðlabankinn gerir nú þá kröfu að fjármálafyrirtæki hafi lánshæf- ismat alþjóðlegs matsfyrirtækis til að geta leitað beint til bankans með verðbréfun á fasteignalánum sínum. Aðeins viðskiptabankarnir hafa slíkt mat og með þessu hefur samkeppnisstaða sparisjóðanna gagn- vart viðskiptabönkunum á sviði fasteignalána verið skert alvarlega,“ segir Guðmundur. Hann segir ennfremur að í ljósi þeirrar kreppu sem ríkir á alþjóðlegum lánamörkuðum sé þessi afstaða í raun ógnun við tilvist sparisjóðanna og skýr skilaboð um að Seðlabanki Íslands telji sig hafa litla ábyrgð gagnvart þeim. Hann segir að Spron sé eina fjármálafyr- irtækið á Íslandi sem hafi fengið alþjóðlegt lánshæfismat á verðbréfun fasteignalána og hafi því aðgang að endurfjármögnun fasteignalána sinna á þeim grundvelli. „Eftir stendur að það er ámælisvert að mínu mati að þegar að þrengir í íslensku efnahagslífi og við siglum inn í lægð, þá skuli Seðlabankinn firra sig ábyrgð gagnvart sparisjóðunum í stað þess að standa þétt að baki þeim,“ segir Guðmundur. Sveinbjörn Eyjólfsson, í sveitarstjórn Borgarbyggðar: Mikil reiði í Borgarbyggð Sveinbjörn Eyjólfsson, sem situr í sveitarstjórn Borgarbyggðar, segir mikla reiði í héraðinu yfir því hvernig komið sé fyrir Sparisjóði Mýrasýslu og þeim fjármunum sem sveitarfélagið hafi tapað eftir að sparisjóðurinn hafi verið bakhjarl í byggðinni í áratugi. „Það er nauðsynlegt að mál Sparisjóðs Mýrasýslu verði til lykta leidd og að menn verði upplýstir um hvað varð honum að falli.“ Sveinbjörn hefur óskað eftir því að ný stjórn sjóðsins svari spurn- ingum er lúta að lánveitingu sjóðsins til lykilstjórnenda og stjórn- armanna í Icebank, sem og hversu stór hluti lána hafi verið veittur öðrum fjárfestum til hlutabréfakaupa. Sparisjóður Mýrasýslu tapaði 4,6 milljörðum króna á fyrri helm- ingi þessa árs og var það að mestu rakið til gengisfalls hlutabréfa. Eigið fé sjóðsins hefur rýrnað um tæpa 5 milljarða á þessu ári og var orðið um 1,5 milljarðar. Fjórir milljarðar töpuðust vegna lækkandi Borgfirðingar eru ævareiðir. Frá fundi Borgfirðinga um Sparisjóð Mýrasýslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.