Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 12

Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 12
12 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8 F ramtíðarsýn Securitas er að styrkja fyrirtækið innan frá um leið og verkefnum fjölgar,“ segir Trausti Harðarson, for- stjóri Securitas. Fyrirtækið hefur verið í stöðugri framþróun þau þrjátíu ár sem það hefur starfað. Starfsmönnum fjölgar einnig í takt við aukin og fjölbreyttari verkefni sem eru ekki aðeins hér á höfuðborgarsvæðinu heldur á Reykjanesi, Akureyri og á Reyð- arfirði fyrir utan það að víða um land eru útkallsstaðir Securitas. „Við höfum lagt mikið upp úr því að styrkja innviði fyrirtækisins og hlúa að starfsfólkinu meðal annars með því að gefa því kost á að auka menntun sína. Það leiðir til þess að fólkið fær aukið sjálfstraust og öryggi og finnur að litið er á það sem framtíð og framtíðarfjár- festingu fyrirtækisins. Aðallega er um að ræða stjórnendaþjálfun og almenna starfsmannaþjálfun sem gefur starfsmönnum aukinn styrk og gerir þá hæfari til að þjónusta viðskiptavininn enn betur.“ Aukin menntun – aukið sjálfstraust Hjá Securitas eru um 30 stjórnendur, bæði framkvæmdastjórn og millistjórnendur, sem hafa sótt stjórnendaþjálfun á háskólastigi. Nefna má áfanga í stjórnun í Háskólanum í Reykjavík en eftir áramótin verður tekinn framhaldsáfangi hjá Háskóla Íslands. Sölu- manna þjálfun er mikil: Gæðasölumaðurinn, Listin að loka sölu og Stórsölumaðurinn sem öll nýtast þeim vel í starfi ekki síður en námskeið um breytt umhverfi sölumannsins og námskeið í jákvæðu hugarfari. „Með aukinni menntun fær fólk aukið sjálfstraust sem er gagn- legt fyrir okkur ekki síður en starfsmennina sjálfa,“ segir Trausti. „Við erum og viljum vera stabílir, sterkir og stöðugir og við viljum líka að fyrirtækið sé byggt á heilbrigðum og góðum grunni.“ Trausti bætir við að starfsmannavelta fyrirtækisins sé ekki mikil, þótt hún sé misjöfn eftir deildum, og viðskiptavinafjöldinn fari vaxandi, auk þess sem þeir sem fyrir eru hafi verið þar lengi enda sé mikið lagt upp úr að veita þeim sem besta þjónustu. Heimavörn og Firmavörn Securitas Heimavörn Securitas sem og Firmavörn Securitas eru tvær tegundir öryggisvörslu sem fyrirtækið býður. Heimavörnin hefur aukist mikið á síðustu árum og nú er lagt upp úr því að fólk geti notið þess að vera að heiman vegna þess að það sé með öryggisgæslu á heimilinu. Þægilegt Framtíðarfjárfesting Securitas liggur í starfsfólkinu Megináhersla er lögð á góða þjónustu við viðskiptavinina sem eru nú orðnir á þriðja tug þúsunda. Trausti Harðarson, forstjóri Securitas.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.