Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 49
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 49
setið fyrir svörum
1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið eftir bankahrunið? Hafi komið til
niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyrir-
tæki þitt í hann og hver voru fyrstu
þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum?
Ráðist var mjög hratt í niðurskurð. Fyrstu
skrefin strax í október 2008 voru 1)Yfirvinna
stöðvuð. 2)Viðskiptaferðir til útlanda stöðv-
aðar. 3) Markaðskostnaður skorinn niður.
2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyrir-
tæki kvarti almennt undan viðmóti
bankanna? Og yfir hverju er helst
kvartað?
Það er helst að maður heyri kvartað yfir
ógagnsæi og ósamræmi í ákvörðunum og
ekki síst að fyrirtæki sem fengu óeðlilega
fyrirgreiðslu fyrir hrun sem bætti þeirra sam-
keppnisstöðu og eru nú í verstu málunum,
fái síðan sérstakan stuðning vegna þess
hversu illa þau eru stödd og fá því aftur
betri samkeppnistöðu.
3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa
þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn?
Enn bólar ekki á neinum aðgerðum af hálfu
ríkisstjórnar til að koma efnahagslífinu af
stað aftur. Við höfum upplifað almennt
faglega nálgun starfsmanna bankanna
gagnvart okkar fyrirtæki og höfum unnið á
sambærilegan hátt gagnvart þeim.
4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs
betri eða verri en þú áttir von á?
Heldur þú að árið 2010 verði betra eða
verra en 2009?
Ytri aðstæður voru mun verri en reiknað var
með fyrstu sex mánuðina og má nefna þar
t.d. vexti og gengi. Aftur á móti nýttum við
okkur jákvæð ytri skilyrði gagnvart ferðaþjón-
ustu og færðum okkur yfir í þá grein með því
að stofna bílaleigu. Já, við reiknum með að
árið 2010 verði betra.
5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð
og vantrausti á meðal erlendra
viðskiptavina og birgja?
Alls ekki andúð heldur frekar samúð,
en auðvitað fara erlendir birgjar varlega
gagnvart þeirri áhættu sem augljóslega ríkir
í viðskiptum við Ísland.
6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í
íslensku viðskiptalífi?
Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst
sem og upplýsingar úr rekstri?
Að mínu mati ætti eignarhald algerlega að
vera gagnsætt og hvað varðar upplýsingar úr
rekstri ættu að nægja þær reglur sem núna
gilda um upplýsingar úr rekstri.
7. Hvaða heilræði viltu gefa
stjórnvöldum, núna þegar eitt ár er
liðið frá bankahruninu?
Stjórnvöld eiga að vinna opið og gagnsætt
og í þágu almennings en ekki sérhagsmuna.
Þau eiga að einbeita sér að því að opna
samfélagið, auka lýðræði og fara að segja
satt.
„Það skýtur skökku
við að fyrirtæki sem
fengu óeðlilega
fyrirgreiðslu fyrir hrun
og eru nú í verstu
málunum fá núna
sérstakan stuðning
vegna þess hversu illa
þau eru stödd.“
egill Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Brimborgar
Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar.
stjórnvöld
opni sam-
félagið og
segi satt