Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
300 stærstu
1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið eftir bankahrunið? Hafi komið til
niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyrir-
tæki þitt í hann og hver voru fyrstu
þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum?
Við höfðum þegar hagrætt, m.a. með
fækkun starfsfólks fyrr á árinu 2008 en
stærsta skrefið í aðlögun rekstrar okkar
eftir hrunið var evruvæðing rekstrar og reikn-
ingsskila félagsins.
2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyr-
irtæki kvarti almennt undan viðmóti
bankanna? Og yfir hverju er helst
kvartað?
Ég heyri kvartað yfir ákvarðanafælni og
einnig skorti á eðlilegu trausti gagnvart
fyrirtækjum, eins og nú eigi að bæta fyrir
fyrri misbresti og vera með mörg axlabönd
og belti í samskiptum við atvinnulífið, t.d.
vegna trygginga fyrir lánum. Þetta er eins og
oft vill verða í okkar samfélagi – menn fara
úr ökkla í eyra.
3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa
þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn?
Við nýttum heimild til evruvæðingar, en að
öðru leyti hefur það umhverfi sem stjórnvöld
hafa búið atvinnurekstri verið mjög erfitt.
Það liggur við að maður sé hættur að nenna
að staglast eins og biluð plata á vaxtastigi
og gjaldeyrishöftum sem nú drepa allt frum-
kvæði í atvinnulífinu í dróma.
4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs
betri eða verri en þú áttir von á?
Heldur þú að árið 2010 verði betra eða
verra en 2009?
Fyrstu sex mánuðirnir 2009 í ferðaþjónust-
unni voru betri en ég átti von á og ég á von
á áframhaldandi bata árið 2010.
5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og
vantrausti á meðal erlendra viðskipta-
vina og birgja?
Nei.
6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í
íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald
fyrirtækja sé öllum ljóst, sem og upp-
lýsingar úr rekstri?
Almennt á að ríkja gagnsæi hvað varðar
rekstur og eignarhald fyrirtækja. Spurningin
er hvenær gagnsæi er algjört og í því efni
tel ég eðlilegt að skilja á milli fyrirtækja sem
eru skráð á markaði og annarra.
7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn-
völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá
bankahruninu?
Endurskoða samstarf við AGS, lækka vexti
verulega, afnema gjaldeyrishöft, koma sam-
starfi við lífeyrissjóðina um fjárfrekar fram-
kvæmdir áfram og hætta að flækjast fyrir
hvað varðar þegar ákveðnar framkvæmdir
í stóriðju, eins og t.d. Helguvík. Þá á að
endurskoða fjárlagafrumvarpið m.t.t. þess
að auka skatttekjur með auknum umsvifum
í þjóðfélaginu frekar en t.d. orkusköttum,
sem lenda á endanum fyrst og fremst á
almenningi.
„Við nýttum heimild
til evruvæðingar, en
að öðru leyti hefur
það umhverfi sem
stjórnvöld hafa búið
atvinnurekstri verið
mjög erfitt.“
grímur sæmundsen,
forstjóri Bláa Lónsins
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins.
Farið úr
ökkla í eyra