Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 26
Fyrst þetta...
26 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
Það eina sem ekki fer á milli mála er að
þeir Sigmundur Davíð og Höskuldur voru í
Ósló dagana 7. til 9. október og hittu þar
að máli tvo ráðherra og þingmenn úr öllum
flokkum – ef frá er talinn Framfaraflokkurinn
– og kynntu fyrir þeim ástand efnahagsmála
á Íslandi og stöðuna í stjórnmálunum. Það
hafa aðrir ekki gert.
Hitt er svo annað mál hvort nýtt lánsfé
er í boði í Noregi; hvort þessi ferð á eftir
að skila lánsfénu til Íslands og hvort nýtt
lánsfé leysi vanda Íslendinga.
Upphafsmaður Noregsferðarinnar er
norski þingmaðurinn og bóndinn Per Olaf
Lundteigen. Lundteigen segir að sér hafi
runnið til rifja lýsing Evu Joly í frægri blaða-
grein á meðferð ríkja heims á Íslendingum.
Verið væri að þvinga almenning í landinu til
að borga óreiðuskuld eigenda hins fallna
Landsbanka. Áður hafi hann fylgt skilyrðum
norskra stjórnvalda.
Hann byrjaði raunar í sumar að tala
um lánafyrirgreiðslu frá Noregi óháð deil-
unni um Icesave og endurreisnarpakka
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann rakst þó
strax á vegg því 13. ágúst vísaði Kristín
Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, hug-
mynd Lundteigens á bug og sagðist ekki
greiða skuldir sprottnar af óheftu frjáls-
hyggjuæði Íslendinga.
Bauð lán
Nú í lok september tók Lundteigen svo til
máls öðru sinni. Það var þegar ríkisstjórn
Íslands virðist riða til falls 31. september
og Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra
sagði af sér, meðal annars vegna þess
að hann gat ekki sætt sig við að Icesave-
skuldinni yrði velt yfir á íslenskan
almenning.
Lundteigen fékk umboð flokks síns –
Miðflokksins – til að bjóða 100 milljarða
norskra króna í lán með 4% vöxtum, afborg-
unarfrítt í fimm ár. Þessu tilboði er komið til
þingmanna Framsóknarflokksins á Íslandi,
systurflokks Miðflokksins, sama dag og
Ögmundur hætti. Og þeim Sigmundi Davíð
og Höskuldi var boðið til funda í Ósló.
Síðar hefur verið upplýst að í Ósló var
ekki rætt beinlínis um peninga og upphæð-
ina – 100 milljarða – nefndi Lundteigen
sem dæmi til að vekja athygli á vanda
Íslendinga. Það liggur líka fyrir að enginn
með völd yfir peningum norska ríkisins
hefur ljáð máls á nýju láni.
Sem fyrr standa 480 milljón evrur til
boða og afgreiðslan væri háð endurskoðun
AGS á endurreisnaráætluninni íslensku.
Þessu var lofað 3. nóvember árið 2008.
Einstakir fulltrúar í fjárlaganefndinni norsku
sögðu þó að ósk um lán frá Íslandi yrði
tekið með vinsemd. Jafnframt er ljóst af
yfirlýsingum að ríkisstjórn Noregs hefur ekki
breytt sinni stefnu þrátt fyrir kurteisleg orð í
garð Íslendinga.
Eru peningar á lausu í
Noregi – bara ef beðið er
um? Framsóknarforkólfarnir
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son og Höskuldur Þórhalls-
son fóru til Óslóar að kanna
möguleikana. Ferðin hefur
vakið mikla athygli á Íslandi
og deilum um hvort þeir hafi
farið fýluför eða ekki.
Höskuldur Þórhallsson skýrir málin fyrir
Dagfinn Høybråten, formanni Kristilega
þjóðarflokksins. Sigmundur Davíð að baki.
Forystumenn Framsóknarflokksins fyrir framan Stórþingið í Ósló. Til vinstri er Trygve Slagsvold
Vedum, varaformaður norska Miðflokksins, og til hægri er Per Olaf Lundteigen þingmaður.TExTI: gísli kristjánsson
FraMSÓKN
Í NOrEGI