Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
300 stærstu
1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið eftir bankahrunið? Hafi komið til
niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyr-
irtæki þitt í hann og hver voru fyrstu
þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum?
Bankahrunið á Íslandi hefur ekki haft bein
áhrif á rekstur Össurar hf. þar sem nánast
allar tekjur fyrirtækisins eru í útlöndum.
Sú vinna sem hefur farið fram hjá Össuri í
kjölfar bankahrunsins er að tryggja banka-
þjónustu til langs tíma en sem betur fer er
fyrirtækið ekki skuldsett og mikill tími til
stefnu til að koma þessum málum í gott
horf.
2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyr-
irtæki kvarti almennt undan viðmóti
bankanna? Og yfir hverju er helst
kvartað?
Kaupþing, sem er okkar banki, hefur sýnt
okkur skilning og samstarfsvilja í hvívetna.
Eina vandkvæðið er að við erum hlutfalls-
lega stór viðskiptavinur bankans og það
setur frekar þröngan ramma utan um fram-
tíðar bankaviðskipti við þann banka.
3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa
þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn?
Össur hf. gengur vel og ræður fyllilega við
þá kólnun sem hefur verið í efnahagslífi
heimsins. Gjaldeyrishöft og slæmt orðspor
íslensks viðskiptalífs erlendis hafa vand-
kvæði í för með sér en bæði Seðlabanki og
stjórnvöld hafa komið vel til móts við okkur
í sambandi við gjaldeyrishöftin sem eru
eðli málsins samkvæmt mjög neikvæð fyrir
alþjóðlegt fyrirtæki.
4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa
árs betri eða verri en þú áttir von á?
Heldur þú að árið 2010 verði betra eða
verra en 2009?
Efnahagskerfi heimsins er óðum að rétta úr
kútnum þannig að 2010 verður að líkindum
betra en 2009.
5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og
vantrausti á meðal erlendra viðskipta-
vina og birgja?
Össur hf. náði mjög fljótt fyrra trausti birgja
og viðskiptavina eftir bankakreppuna.
6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í
íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald
fyrirtækja sé öllum ljóst, sem og upp-
lýsingar úr rekstri?
Viðskiptalífið á Íslandi á mikið og erfitt
verkefni fyrir höndum að endurheimta það
traust sem í mörgum tilfellum hefur réttilega
tapast. Algjört gagnsæi í sambandi við
rekstur, efnahag og eignarhald félaga er ein
af forsendum þess að traust vinnist að nýju.
7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn-
völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá
bankahruninu?
Halda áfram á sömu braut í Evrópumálum
og stefna til lengri tíma að upptöku evru.
Hlusta ekki á þær einangrunarraddir sem
heyrast æ oftar.
Jón sigurðsson,
forstjóri össurar
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
stefna
verður að
upptöku evru
„Össur hf. náði mjög
fljótt fyrra trausti birgja
og viðskiptavina eftir
bankakreppuna.“