Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 139
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 139
lífsstíll
Uppáhaldsborgin:
ÞröNGar Götur, FaLLEG tOrG
OG GÓðIr vEItINGaStaðIr
Frjáls verslun fyrir 35 árum
Hildur Erla Björgvinsdóttir. „Maður er á fullu í vinnu og þegar sest
er niður með góða bók opnast dyr inn í annan heim. Þær víkka
sjóndeildarhringinn.“
Ólöf Örvarsdóttir. „Borgin er fræg fyrir gott súkkulaði og frábæra
djasshátíð sem er haldin þar á hverju ári. Í Perugia eru þröngar og
dramatískar götur, opin og falleg torg og urmull góðra veitingastaða
þar sem hvítar trufflur eru í öndvegi.“
Ítalía er í sérstöku upp-
áhaldi hjá Ólöfu Örvarsdóttur,
arkitekt og skipulagsstjóra í
Reykjavík. Hún nefnir að þar
megi finna allt sem þarf til að
fara í gott frí, skíðasvæði sem
og strendur og á Ítalíu séu
einnig margar fallegustu borgir
heims eins og Róm, Flórens
og Feneyjar. Ítölsk menning
hefur fangað huga arkitekts-
ins sem lærði líka listasögu
á sínum tíma en þau eru ófá
listaverkin í landi meistaranna
Michelangelos og Leonardos
da Vinci.
„Endurreisnin á sér uppruna
á Ítalíu,“ segir Ólöf og bendir á
merka menningarsögu auk ein-
stakrar matarmenningar þar í
landi en sælkerar víða að njóta
þess að gæða sér á ítölskum
krásum.
Aðspurð um uppáhaldsborg-
ina – skipulagsstjórinn segir
að Reykjavík sé að sjálfsögðu
númer eitt – nefnir Ólöf ítölsku
borgina Perugia sem er höf-
uðborg Umbria-héraðs á Ítalíu.
„Ég er mikil borgarmanneskja
og á mér margar uppáhalds-
borgir og bæi. Ég nefni þó
Perugia sem er næstum bær
frekar en borg því þar búa ein-
ungis ríflega 160.000 manns á
frekar litlu landsvæði. Borgin er
þétt og ævaforn en einkennist
af byggingarlist miðalda. Ég hef
heimsótt Perugia nokkuð oft
og það er eitthvað sérstakt við
andrúmsloftið. Frá miðkjarna
borgarinnar er frábært útsýni
yfir nær allt Umbria-hérað að
því virðist. Bílar eru bannaðir
í miðbænum stóran hluta úr
deginum og því leggja menn
bílunum sínum í bílastæða-
hús og taka svo rúllustiga upp
á „toppinn“ þar sem hjarta
bæjarins er. Borgin er fræg
fyrir gott súkkulaði og frábæra
djasshátíð sem er haldin þar á
hverju ári. Í Perugia eru þröngar
og dramatískar götur, opin og
falleg torg og urmull góðra
veitingastaða þar sem hvítar
trufflur eru í öndvegi.“
Bókmenntir
Þær vÍKKa
SJÓNdEILdarhrINGINN
Bókmenntir eru aðaláhugamál
Hildar Erlu Björgvinsdóttur,
framkvæmdastjóra Sævars
Karls, sem segist vera algjör
lestrarhestur. Hún er dóttir
Kristínar Marju Baldursdóttur
rithöfundar og er nýbúin að
lesa nýjasta handrit hennar,
Karlsvagninn, en bókin kemur
út seint á haustmánuðum „Ég
er alls ekki hlutlaus,“ segir
Hildur Erla, „en mér finnst nýja
bókin frábær. Þetta er áhrifarík
saga um hvernig uppeldi
mótar persónuleikann.“
Kristín Marja hefur leiðbeint
dótturinni við val á bókum
og hefur í gegnum árin verið
dugleg að gefa börnum sínum
bækur í afmælis- og jólagjafir.
Hildur Erla lauk líka nýverið
við bókina Lesarann eftir
Þjóðverjann Bernhard Schlink.
„Mér fannst bókin mjög góð
og kvenpersónan í bókinni er
karakter sem á seint eftir að
gleymast.“
Um bókmenntir segir Hildur
Erla: „Maður er á fullu í vinnu
og þegar sest er niður með
góða bók opnast dyr inn í
annan heim. Þær víkka sjón-
deildarhringinn.“
Hildur Erla vonast til að
dætur sínar aðhyllist lestur.
„Íslenskan er svo fallegt mál
og með lestri eykst málfærni
og orðaforði. Ég held að þeir
sem lesa mikið komi orðunum
betur frá sér.“
Framkvæmdastjórinn fer
reglulega í utanlandsferðir
starfsins vegna og þá eru
alltaf bækur með í för.