Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
300 stærstu
1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið eftir bankahrunið? Hafi komið til
niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyr-
irtæki þitt í hann og hver voru fyrstu
þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum?
Actavis er í harðri samkeppni meðal stærstu
samheitalyfjafyrirtækja heims. Slíkur rekstur
krefst þess, í dag sem endranær, að
hagkvæmni í rekstri sé höfð að leiðarljósi.
Því er ekki um sérstakan niðurskurð að
ræða hjá Actavis vegna bankahrunsins.
2. Heyrir þú á meðal forstjóra að
fyrirtæki kvarti almennt undan viðmóti
bankanna? Og yfir hverju er helst
kvartað?
Ég heyri af því víða í viðskiptalífinu að
ákvarðanataka gangi hægt og erindi liggi
lengi inni í bönkunum.
3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa
þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn?
Skattaumhverfi fyrirtækja hefur undanfarin
ár verið tiltölulega hagstætt á Íslandi, sam-
anborið við mörg nágrannalönd. Það skiptir
miklu máli í þeirri uppbyggingu sem fram-
undan er í íslensku samfélagi að skattaum-
hverfið sé samkeppnishæft á alþjóðavett-
vangi.
4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs
betri eða verri en þú áttir von á?
Heldur þú að árið 2010 verði betra eða
verra en 2009?
Fyrstu sex mánuðir ársins 2009 voru
í takt við það sem við bjuggumst við.
Ytri aðstæður voru og eru erfiðar,
þótt þess sjáist kannski síður merki í
samheitalyfjageiranum en víðast annars
staðar. Mér sýnist að ytri aðstæður á
erlendum mörkuðum fari skánandi.
5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð
og vantrausti á meðal erlendra
viðskiptavina og birgja?
Ekki lengur, en starfsfólk Actavis eyddi
gríðarlegum tíma síðastliðið haust og
framan af vetri í að sannfæra erlenda
viðskiptavini og birgja um að rekstur
félagsins væri með eðlilegum hætti þrátt
fyrir stöðu mála á Íslandi.
6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í
íslensku viðskiptalífi?
Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst,
sem og upplýsingar úr rekstri?
Þessari spurningu er að mínu mati ekki
hægt að svara einfaldlega játandi eða
neitandi. Meginreglan ætti að vera sú að
eignarhald fyrirtækja sé ljóst. Hins vegar
getur opið bókhald verið til trafala í harðri
samkeppni, sbr. þegar Actavis var afskráð
úr Kauphöll 2007. Það hjálpaði fyrirtækinu
ekki að þurfa að upplýsa Kauphöllina, og þar
með um leið samkeppnisaðilana, um hvert
skref. Um upplýsingar úr rekstri eiga áfram
að gilda skýrar reglur fyrir þau félög sem
kjósa að vera skráð í Kauphöll.
7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn-
völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá
bankahruninu?
Til skemmri tíma er mikilvægast að
koma hjólum atvinnulífsins aftur í fullan
gang. Bankarnir þurfa að geta starfað
eðlilega, það þarf að lækka vexti og skapa
rekstrarumhverfi hér á landi sem hvetur til
erlendra fjárfestinga. Gjaldeyrishöft verða
að hverfa og fyrirtækjum þarf að vera frjálst
að gera upp í þeim gjaldmiðli sem þau
kjósa.
„Það skiptir miklu máli
að skattaumhverfið
sé samkeppnishæft á
alþjóðavettvangi.“
sigurður Óli Ólafsson,
forstjóri Actavis
Sigurður Óli Ólafsson, forstjóri Actavis.
Stundum er talað um að ein fjöður verði að
fimm hænum. Í tilfelli Start09 má segja að ein
ágæt hugdetta hafi orðið að meira en 200
snjöllum viðskiptahugmyndum.
Verðlaunatillögurnar um nýja tegund rafmagns-
öryggja, Norðurljósasetur á Reykjanesi og
lífrænt bætiefni fyrir dísilolíu úr úrkasti fiskiski-
paflotans voru bara toppurinn á ísjakanum í
þessari skemmtilegu hugmyndasamkeppni.
Hvernig ein hugdetta
varð að meira en 200
frábærum hugmyndum
Hugmyndirnar þróast nú hver á sínum forsendum,
m.a. í samvinnu við N1, og lofa góðu fyrir verð-
mætasköpun framtíðarinnar.
Start09 er aðeins eitt þeirra átaksverkefna sem N1
hefur ráðist í á árinu og að sjálfsögðu er vegferðinni
ekki lokið. Verkefnin eru mörg og tækifærin svo
sannarlega fyrir hendi þegar bjartsýnin, frumkvæðið
og sköpunargleðin ráða ferðinni.
Framtíðin er góð hugmyndBúa til
umhverfi
fyrir erlenda
fjárfesta