Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 130
130 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsar versl-unar, varpaði fram spurningunni: Hver
stjórnar fyrirtækjum í kreppu? Hann sagði
að til væri gamall frasi í stjórnun um að
í kreppu stjórni fjármálastjórinn en í upp-
sveiflu sé það markaðsstjórinn.
Hann bað síðan gesti um að velta þess-
ari spurningu fyrir sér: Er það kvíðinn sem er
hinn raunverulegi stjórnandi? Eru íslenskir
stjórnendur með hnút í maganum þegar
þeir mæta til vinnu á morgnana? Eru þeir
svartsýnir og kvíðnir þannig að hugsanlega
er hægt að ræða um kvíða-
stjórnun?
Fram kom hjá Jóni að
fleiri koma að stjórnun fyrir-
tækja í kreppu en í fyrstu
mætti ætla. „Auðvitað telja
flestir að eigendurnir og
forstjórarnir stjórni fyrir-
tækjunum – og þeir gera
það auðvitað. En bankarnir með sína háu
vexti eru miklir áhrifavaldar á reksturinn. Svo
ekki sé talað um bankana ef þeir eru óþolin-
móðir kröfuhafar. Birgjarnir eru ef til vill
með hótun um að skrúfa fyrir hráefnissölu.
Eigendur húsnæðisins vilja leiguna greidda.
Launaþegasamtök vilja launahækkanir og
hækka verðið á vinnuaflinu. Stjórnvöld eign-
ast banka sem taka fyrirtæki upp í skuld og
keppa svo við önnur fyrirtæki. Ríkisstjórnin
hækkar skattana og stýrir kaupmætti ráð-
stöfunartekna sem aftur kemur fram í minni
kaupgleði. Starfsfólkið vill líka stjórna og
vill réttar upplýsingar. Það koma margir að
stjórnuninni og hafa áhrif á reksturinn og
afkomuna,“ sagði Jón.
Jón fór síðan yfir þann mikla mun sem er
á rekstrarumhverfi í kreppu
eða þenslu. „Kreppan
hefur birst okkur á marga
vegu. Hlutabréfaeign í
Kauphöllinni minnkaði um
90%, það er 10% atvinnu-
leysi, ríkið hækar skatta og
sker niður, einmitt þegar
það ætti að bæta í. Það er
bankakreppa og gjaldeyriskreppa, háir vextir,
fyrirtæki og heimili eru skuldug.“
Þetta lítur ekki vel út, sagði Jón. „En
10% atvinnuleysi merkir 90% vinnu. Innviðir
í íslensku samfélagi eru í lagi. Við eigum
náttúruauðlindir, orku, fengsæl fiskimið,
menntað fólk, fallegt land, ágæta vegi og
fínan húsakost. Erum við kannski að fást við
kreppu hugarfarsins?“
Jón bað stjórnendur að ýta frá sér kvíð-
anum og einbeita sér að mörgum litlum
sigrum til að hvetja alla til dáða og koma
fyrirtækjum á skrið. „Fagnið óvissunni,“
sagði Jón. „Aukið samskiptin við banka,
stórfsfólk, birgja, viðskiptavini, fjárfesta.
Það vilja allir heyra sannleikann; enga lygi,
þvælu eða smjaður. Þannig vinnst traust.
Endurmetið viðskiptavinina, lítið eftir kaup-
tækifærum á fyrirtækjum á ykkar sviði og
byggið upp.“
Hver stjórnar þegar upp er staðið? „Ég
segi þetta: Burt með kvíðann. Það er undir
ykkur komið þegar kemur að starfsfólki,
vörunni og viðskiptavininum. Látið ekki ytri
óvissu trufla ykkur of mikið. Hver stjórnar?
Þið hafið þetta í ykkar hendi,“ sagði Jón G.
Hauksson.
„Til er gamall frasi í
stjórnun sem segir að í
kreppu stjórni fjármála-
stjórinn en í uppsveiflu
markaðsstjórinn. “
Jón G. Hauksson,
ritstjóri Frjálsrar
verslunar.
Hver stjórnar í kreppu? Kvíðinn!?
Jón G. Hauksson,
ritstjóri Frjálsrar verslunar