Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 121
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 121
S T u Ð u L L
Gera2. (e. do): Framkvæma breytingar.
Athuga/skoða3. (e. check/study): Fara yfir það sem gert var,
greiða niðurstöður eða áhrif breytinga og draga af þeim
lærdóm.
Fylgja eftir4. (e. act): Ef breytingarnar heppnuðust vel, þá eiga
þær að leiða af sér lærdóm sem nýtist við frekari breytingar.
Ef breytingarnar tókust ekki sem skyldi þarf að draga lærdóm
af því og hefjast aftur handa við að greiða og skipuleggja. Í
báðum tilfellum eru frekari umbætur skipulagðar. Þannig er
um að ræða ferli sem stuðlar að því að stöðugt er unnið að
úmbótum.
Með því að nota PDCA-hringinn stöðugt viðheldur fyrirtækið
umbótastarfinu og tryggir að það skili tilætluðum árangri.
Sjö grunntól gæðastjórnunar
Eins og áður sagði þá verða fyrirtæki að vera í stakk búin til að
bjóða viðskiptavinum sínum réttu gæðin. Aðferðir gæðastjórnunar
leggja til verkfæri sem auðvelda fyrirtækjum að uppfylla væntingar
og þarfir viðskiptavina sinna. Japaninn Ishikawa kom fram með sjö
grunntól gæðastjórnunar. Öll tólin sjö eru einföld í notkun og öflug
sé þeim beitt rétt. Sum byggja á einfaldri tölfræði og önnur á að
setja fram gögn á skipulagðan hátt. Hér verður gerð stutt grein fyrir
hverju tóli fyrir sig.
Talningarblöð
Talningarblöð eru notuð til að afla gagna, skoða þau og aðstoða við
að draga fram eðli vandamála. Aðferðin snýst einfaldlega um það að
flokka og telja atriði t.d. galla. Hún getur á einfaldan og fljótlegan
hátt sýnt mynstur sem gefur vísbendingu um orsakir.
Dæmi um talningablað
Súlurit
Með súluriti eru gögn sem skráð hafa verið yfir einhvern tíma tekin
saman og dreifing þeirra sýnd. Þegar gögnum hefur verið safnað eru
þau flokkuð eftir tíðni og síðan reiknuð sem súlurit.
Dæmi um súlurit
Súluritið sýnir miðlægt gildi gagnanna, breytileika þeirra og lögun
dreifingarinnar. Þannig má draga fram mikilvægar upplýsingar
um eðli þeirra gagna sem eru til skoðunar, t.d. á hvaða tíma
sólarhringsins eru frávikin (t.d. gallar) flest.
pareto-greining
Pareto-greining er notuð til að forgangsraða verkefnum eftir
mikilvægi þeirra. Greiningin byggir á reglu Pareto sem oft er kölluð
80/20 reglan. Í gæðastjórnun er hún oft sett fram á þann hátt að
20% orsakanna valdi 80% af vandanum.
Greiningin er einföld. Gögnum er raðað eftir tíðni þannig að
algengasta orsökin er fremst og síðan koll af kolli. Gjarnan er
bætt við línu sem sýnir uppsafnaða samlagningu (stjörnumerkta
bogalínan á myndinni).
Dæmi um Pareto-greiningu
Oftast eru það tvö eða þrjú atriði sem standa upp úr og rétt er að
skoða nánar. Ef merk ing myndarinnar er ekki augljós, má leita að
broti í línu uppsafnaðrar samlagningar (stjörnumerkta bogalínan)
og finna þannig hvar halli línunnar er mestur. Þau atriði sem
eru fyrir framan brotið skipta mestu máli. Ef línan er mjög jöfn
er rétt að skoða það sem er fyrir framan 60% af uppsöfnuðu
samlagningarlínunni.
GæÐA-
STjóRNuN
Greinarhöfundur, Martha Árnadóttir, er framkvæmdastjóri
Stjórnvísis.
Vandamál Vika 1 Vika 3Vika 2 SamtalsVika 4
A
B
C
D
8 5 12 8 33
2
4
10
17
1 2 3 4 5 6 7 8
5
4
3
2
1
0
40%
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
100%
80%
60%
40%
20%
0%
Uppsöfnu∂
gildi