Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 133
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 133
N æ R M Y N d A F K R I S T Í N u I N G ó L F S d ó T T u R
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, er fædd í Reykjavík 14. febrúar 1954. Hún er dóttir hjónanna Sól-veigar Pálmadóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra á geðdeild Landspítalans, og Ingólfs P. Steinssonar prentara. Kristín á
tvö systkin, bróður sem heitir Pálmi og býr í Bandaríkjunum og syst-
urina Þórunni, framkvæmdastjóra hjá Íslandsfundum ehf.
„Til sjö ára aldurs ólst ég upp á Ægissíðunni en þá fluttist fjöl-
skyldan til Bandaríkjanna og við bjuggum þar í sjö ár eða þar til ég
var fjórtán ára. Það er eftirminnilegt að hafa alist upp við Ægissíðuna
og ég átti góða æskuvini sem ég lék mér við í fjörunni, skreiðarhjöll-
unum og í bátunum sem voru þar. Faðir minn og móðir höfðu bæði
farið, hvort í sínu lagi, til Bandaríkjanna til náms sem ungt fólk og
langaði að fara aftur og búa þar um tíma. Árið 1961 fluttum við til
South Carolina. Þetta var á tíma aðskilnaðar svartra og hvítra þegar
skilti voru á rútum og strætisvögnum sem sögðu að svartir ættu að
sitja aftast og á veitingahúsum sem sögðu „whites only“ og þar fram
eftir götunum. Á þessum tíma umgekkst maður ekki svart fólk því
það var ekki í sama skóla og bjó ekki í sama hverfi. Eftir að hafa verið
í suðurríkjunum fluttum við til Virginiu-fylkis, rétt fyrir utan Wash-
ington DC.“
Sjö ár í skóla í Bandaríkjunum
„Ég byrjaði mína skólagöngu í Bandaríkjunum og var sjö ár í skóla
þar og þótti það mjög gaman. Eftir á að hyggja var kennslufyr-
irkomulagið þar ólíkt því íslenska, á þeim tíma, meiri áhersla var
lögð á skilning en utanbókarlærdóm og manni var beinlínis kennt að
læra. Í Bandaríkjunum var minna um mötun en hér heima og meiri
áhersla lögð á sjálfstæð verkefni, að tengja saman ólíkar greinar og
tengja námið umhverfinu. Ég fann sterklega fyrir þessu eftir að ég
kom heim og hóf nám í öðrum bekk í Hagaskóla.
Í fyrstu þótti mér erfitt að flytja heim og skilja við alla vinina í
Bandaríkjunum. Auk þess hafði ég aldrei verið í íslenskum skóla og
þrátt fyrir að ég talaði íslensku var mér ekki tamt að lesa eða skrifa á
íslensku. Flutningurinn heim var því mikil viðbrigði og ekki átaka-
laus til að byrja með. Hins vegar var mér tekið vel í skólanum og ég
eignaðist fljótt mjög góða vini,“ segir Kristín.
Eftir að Kristín lauk landsprófi lá leið hennar í Menntaskólann
í Reykjavík þar sem hún lauk stúdentsprófi af eðlisfræðibraut árið
1974. Á menntaskólaárunum vann hún ýmis sumarstörf, til dæmis
hjá Íslenskum heimilisiðnaði, í gestamóttökunni á Hótel Loftleiðum,
í Háaleitisapóteki, hjá Ferðaskrifstofu Íslands og sem flugfreyja hjá
Flugfélagi Íslands.
doktorsnám í London
„Eftir stúdentspróf fór ég eitt ár í háskóla til Frakklands að læra
frönsku og efnafræði. Ég var mjög hrifin af frönsku og frönskum
bókmenntum í menntaskóla og það togaðist á í mér hvort ég vildi
læra hana eða lyfjafræði en ég hafði unnið eitt sumar í apóteki og
áhuginn á lyfjafræði vaknaði þar. Ég tók mér því eitt ár til að átta
mig og lyfjafræðin varð ofan á og eftir að heim kom skráði ég mig í
Dr. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, er í nærmynd að þessu sinni.
„Mamma er vinnuþjarkur,“ segir dóttir hennar og undir það geta víst flestir tekið.
Hún er líka sögð mjög nákvæm kona og er sennilega ein af fáum sem les leiðar-
vísa fyrir rafmagnstæki spjaldanna á milli.
TExTI: vilmundur hansen ● MYNDIR: geir ólaFsson
„MAMMA ER
VINNuÞjARKuR“