Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 146
Fólk
146 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 9
Nafn: Auður Þórhallsdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík,
28. maí 1958
Foreldrar: Sigrún Sturludóttir
og Þórhallur Halldórsson
Maki: Siggeir Siggeirsson
Börn: Sigríður Rún, Þórhallur
og Vilhjálmur
Menntun: Grunnskóla- og textíl-
kennari / B.Ed.
Auður Þórhallsdóttir:
„Við hjónin erum að
byggja sumarbústað í
Grímsnesinu og segja
má að við eyðum öllum
okkar frítíma í bygg-
ingarvinnu sem er
skemmtilegt hobbý,
svona „golfið“ okkar.“
Samskip hafa byggt upp heildarþjón-ustu á sviði flutninga, vörustýringar og vörumeðhöndlunar, innanlands
sem utan. Félagið býður viðskiptavinum
sínum flutninga um allan heim, geymslu á
vörum á Íslandi eða erlendis og ráðgjöf vegna
flutninga og birgða.
Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Sam-
skipa, segir að rík áhersla sé lögð á að starfs-
fólk þróist í starfi enda sé það forsenda
þess að fyrirtækið haldi áfram að styrkjast.
„Starfsfólkið er okkar auðlind og grund-
völlur þeirrar framtíðar sem við stefnum að.
Við leggjum áherslu á að fræðsla og þróun
sé hluti að framtíðaráætlunum hvers starfs-
manns og er farið vel yfir slíkt í starfsmanna-
samtölum sem fara formlega fram einu sinni
á ári.
Starf mitt felst m.a. í að greina þessar
þarfir og að bjóða upp á fræðslu sem eykur
færni starfsmanna í núverandi starfi, auk þess
að afla sér þekkingar á nýjum sviðum. Svona
þróun skilar sér í hærra menntunarstigi, eykur
starfsánægju og færni og skapar verðmæti
bæði fyrir einstaklinginn og fyrirtækið. Við
leggjum ríka áherslu á að fræðsluferlið sé virkt
fyrir alla starfsmenn, því hver einasti starfs-
maður er afar mikilvægur hlekkur í okkar
flutningaferli.“
Auður er gift Siggeiri Siggeirssyni raf-
eindavirkja hjá Skyggni/Nýherja og eiga þau
saman þrjú börn. Elst er Sigga Rún sem er 24
ára og er á lokaári í skó- og fylgihlutahönnun í
Róm á Ítalíu. Næstur kemur Þórhallur 22 ára,
í íþróttafræði í Háskólanum í Reykjavík og sá
yngsti, Vilhjálmur 18 ára, er í Kvikmynda-
skóla Íslands, á tæknibraut. „Við erum mjög
samrýmd fjölskylda og krakkarnir úrvals-
hópur, góðar og hamingjusamar manneskjur.
Við hjónin erum að byggja sumarbústað
í Grímsnesinu og segja má að við eyðum
öllum okkar frítíma í byggingarvinnu sem
er skemmtilegt hobbý, svona „golfið“ okkar.
Við mæðgur höfum verið að hanna og sauma
saman, sem var óvænt og afar vinsælt, og
stendur orðið til að fá sér saumakonu þar sem
við önnum ekki pöntunum. Svo erum við
hjónin miklir sóldýrkendur og eigum hlut í
íbúð á Spáni og reynum að fara allavega eina
eða tvær ferðir á ári þangað sem er algjör
draumur í dós. Síðustu ferð fórum við í ágúst,
þá var farið með fulla ferðatösku af spennu-
bókum og lopa og tímann nýtti ég í lestur og
prjónaskap, sem er frábær afslöppun.
Ég er alin upp í fallegasta firði Vestfjarða,
Súgandafirði, og er afar stolt af því að vera
Súgfirðingur. Var alin upp við að láta verkin
tala og að bera virðingu fyrir öllum störfum.
Byrjaði að starfa í frystihúsi 12 ára gömul og
eftir að ég fluttist suður fór ég mörg sumur
vestur í fisk til að eiga fyrir skólagöngunni.
Það var dýrmæt reynsla.“
Auður er menntaður grunnskólakennari
og starfaði við það í tæp 20 ár. „Síðustu árin
mín sem kennari starfaði ég sem deildarstjóri
í Fossvogsskóla en árið 2004 ákvað ég að nú
væri kominn tími til að breyta til og reyna
fyrir mér á almennum vinnumarkaði. Var svo
lánsöm að fá starf sem leiðtogi fræðslumála
hjá Alcan í Straumsvík. Þar starfaði ég með
frábæru fólki og kynntist miklum metn-
aði gagnvart fræðslu starfsfólksins sem var
mikið lærdómsferli fyrir mig. Eftir þrjú ár í
Straumsvík var ég tilbúin í frekari áskoranir
og réð mig til Samskipa vorið 2007. Þessi
ár hér hafa verið algjörlega frábær, hér er
ótrúlegur sköpunarkraftur og öllu frumkvæði
afar vel tekið. Hér er þessi dásamlega samsetn-
ing fólks sem er dýrmætt og gefandi að starfa
við og læra af.“
fræðslustjóri Samskipa
AUÐUR ÞÓRHALLSDÓTTIR