Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 126
126 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
Strax í september 2008 vorum við orðnir sannfærðir um að bankarnir væru að
hrynja,“ sagði Hermann Guðmunds-
son, forstjóri N1 á Hvatningarráðstefnu
Stjórnvísi og lýsti því hvernig fyrirtækið
brást við aðstæðunum sem sköpuðust hér í
fyrrahaust. „Við seldum allar eignir okkar í
bankasjóðum, hertum útlánareglur til við-
skiptavina og byrjuðum að safna reiðufé og
gjaldeyri. Við fórum til Noregs til að kaupa
olíu með ábyrgð Seðlabanka Íslands en án
árangurs. Bankinn var ekki talinn hafa láns-
hæfi í Noregi.“
N1 brást við því ókomna strax í sept-
ember. Hermann bætti við að ekki hefði
verið annað að gera í stöðunni en staðgreiða
olíu og hefði það verið gert síðan. En það
þurfti meira til. Í framhaldi af því að bank-
arnir hrundu settust sjö framkvæmdastjórar
N1 niður og sátu nánast samfleytt í hálfan
mánuð og kortlögðu stöðuna, mátu hvar
þyrfti að bera niður og hvar skyldi skera
niður og herða róðurinn. „Niðurstaðan
varð heildstætt plagg sem við höfum haldið
okkur við síðan.“
Skorið niður og skila hagnaði
Byrjað var á að skera burtu 77 störf, fyrst
og fremst þar sem þjónustustigið myndi
ekki skerðast en umfangið minnka. Öllum
erlendum birgjum var tilkynnt að N1
myndi enga reikninga greiða í 4-6 vikur
vegna erfiðleikanna sem skapast höfðu við
að koma peningum til og frá landinu. Að
sögn Hermanns var góður skilningur á
þessum aðgerðum en um 20. nóvember var
aftur byrjað að borga og N1 var skuldlaust
um áramótin. Erlendu birgjarnir eru 400
talsins og aðeins fimm þeirra hafa ekki
horfið aftur til eðlilegra lánsviðskipta.
Þrátt fyrir það sem á hefur gengið er
afkoma N1 mjög góð og gert er ráð fyrir að
fyrirtækið skili 1000 milljónum í hagnað í
árslok. Oft gleymist að ekki er nema 15%
af tekjum fyrirtækisins sem kemur af sölu
eldsneytis til almennings sem er þó 90% af
ímyndinni. „Við seljum 140.000 vörunúmer
á 60 útsölustöðum og erum með yfir þrjá
milljarða króna í þurrvörulager vítt og breitt
um landið. Þetta gríðarlega vöruúrval og
það hvaðan tekjur okkar koma er lykillinn
að velgengni N1.“
Breytt áætlanagerð
Hermann sagðist vera óhefðbundinn stjórn-
andi og sér hefði tekist lengst af að forðast
skólagöngu. Hann hafi þó látið sig hafa það
að fara eitt ár í háskóla í Barcelona, árið
2004, og haft af því mikið gagn. Eitt af
því sem hann hafi haft litla trú á hafi verið
ofurtrúin á áætlanagerð vegna þess að eng-
inn viti hvað gerist á morgun. Enginn hafi
verið með bankahrunið á Íslandi inni í sinni
áætlanagerð fyrir árið 2008. „Ég náði loksins
mínu fram. Áætlanagerðin var búin að vera
í mjög föstum skorðum hjá ESSO í mjög
langan tíma. Um 150-160 manns höfðu
venjulega komið að henni en þegar liðnir
voru þrír mánuðir af árinu skildi enginn í
því að það voru komnar ægilegar skekkjur í
áætlunina.“
Framkvæmdastjórarnir tóku þá stefnu í
stjórnarherberginu í fyrrahaust að semja nýja
áætlun og Hermann fullyrti að hún væri
sennilega nákvæmasta áætlunin sem gerð
hefði verið í langan, langan tíma. Ástæðan
fyrir því að ekki hefði gengið verr hjá N1 og
mörgum öðrum fyrirtækjum á Íslandi væri
að ríkið hóf ekki niðurskurð á útgjöldum
árið 2009 og að lánabreytingar fyrir almenn-
ing hefðu skipt sköpum. Neysla fólks hefði
haldist og kaupmáttur fólks líka og það fékk
frið fyrir rukkurum. „En ég er ekki jafnviss
um að 2010 verði með sama hætti,“ sagði
Hermann. Það skipti líka sköpum í þessari
atvinnugrein að ferðamennskan gekk frábær-
lega vel og Íslendingar ferðuðust sem aldrei
fyrr, auk þess sem talsvert fleiri útlendingar
voru á þjóðvegum landsins en áður. Salan á
útsölustöðum N1 meðfram hringveginum
og á ferðamannastöðum gekk framar vonum
og jafnvel seldist bensín á stöðum þar sem
tæpast hafði selst bensíndropi áður.
ýmsar breytingar og starfsfólki sinnt vel
Ýmsu var breytt í rekstrinum hjá N1.
Ráðnir voru allmargir hörkusölumenn í
ákveðin verkefni og Hermann sagði að það
hefði skilað feikilegri söluaukningu í ýmsum
vöruflokkum.
„Venjulega vorum við líka að skoða mán-
aðaruppgjör en nú skoðum við sjö daga
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1.
Verðum að hugsa
með hjartanu
n1 mikil samsteypa
N1 er að grunninum til gamla ESSO, í
bland við Bílanaustsamstæðuna sem
sameinaðist félaginu 2006 en þá
voru sameinuð tólf fyrirtæki. N1 veltir
40 milljörðum króna og er með 1000
starfsmenn vítt og breitt um landið.
HVATNINGARRÁÐSTEFNA stjórnvísi:
Hermann Guðmundsson,
forstjóri N1