Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 41
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 41
setið fyrir svörum
„Það sem þarf að gera
svo fyrirtæki geti þrifist
eðlilega er að lækka
vexti, styrkja krónuna
og gera gjaldmiðilinn
okkar trúverðugan.“
1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið eftir bankahrunið? Hafi komið til
niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyr-
irtæki þitt í hann og hver voru fyrstu
þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum?
Eftir bankahrunið fóru allir að endurmeta
hvað væri mikilvægast í lífinu og flestir hafa
komist að þeirri niðurstöðu að fjölskyldan
og heilsan sé það dýrmætasta. Við fund-
um strax fyrir aukinni mætingu hjá kort-
höfum og einnig fjölgun nýrra viðskiptavina.
Einnig fáum við mikið af hópum í dekur sem
áður höfðu farið í helgarferðir til útlanda.
Við fórum ekki í gegnum neinn hefðbundinn
niðurskurð en höfum lagt aukna áherslu
á að hagræða í innkaupum þar sem allir
útgjaldaliðir hafa hækkað umtalsvert en
við höfum ekki sett neina hækkun á okkar
þjónustu.
2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyrir-
tæki kvarti almennt undan viðmóti
bankanna? Og yfir hverju er helst
kvartað?
Það heyrðist mikið fyrst að það væri allt
frosið í bankakerfinu og ekkert gert. Léleg
staða krónunnar gagnvart evrunni hefur
mikil áhrif á fyrirtækin og þessi hávaxta-
stefna sem er hér hjá okkur í dag er að
sliga fyrirtækin í landinu.
3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa
þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn?
Það sem þarf að gera svo fyrirtæki geti
þrifist eðlilega er að lækka vexti, styrkja
krónuna og gera gjaldmiðilinn okkar
trúverðugan. Það er ekki góð stefna að auka
endalaust álögur á fyrirtæki og fólk. Það
þarf flæði svo fyrirtæki og fólkið í landinu
geti blómstrað.
4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs
betri eða verri en þú áttir von á?
Heldur þú að árið 2010 verði betra eða
verra en 2009?
Þar sem allt var í svo mikilli óvissu fyrri
hluta árs vegna alls þess óróa sem átti sér
stað í þjóðfélaginu, stjórnarslita, kosninga
o. fl., þá má eiginlega segja að fyrstu sex
mánuðirnir hafi verið betri en ég átti von á.
Því miður er nú ennþá allt í lausu lofti, en ef
unnið verður í því að styrkja krónuna töluvert
og vextirnir lækkaðir, þá verður 2010 betra.
5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og
vantrausti á meðal erlendra viðskipta-
vina og birgja?
Fyrst eftir hrunið fundum við fyrir vissri stífni
en jafnframt mikilli forvitni erlendra birgja og
viðskiptavina, sem betur fer jafnaði það sig
fljótt. Við fundum fyrir mikilli fjölgun erlendra
ferðamanna sem komu til landsins gagngert
eftir að hafa heyrt um Ísland í sambandi við
hrunið.
6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í
íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald
fyrirtækja sé öllum ljóst, sem og upp-
lýsingar úr rekstri?
Mér finnst sjálfsagt að upplýsingar um
eignarhald sé ljóst. En hins vegar finnst
mér núverandi kerfi á upplýsingum úr rekstri
nægar, þ.e. að skila inn ársreikningi þar
sem fram kemur afkoma, hagnaður eða
tap. Aðrar upplýsingar um t.d. veltu, stöðu
skulda og eigna finnst mér ekki eigi að
veita.
7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn-
völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá
bankahruninu?
Það sem þau hefðu átt að gera strax, þ.e.
setja á þjóðstjórn, styrkja krónuna, lækka
vexti og gera sér grein fyrir því að lítil og
meðalstór fyrirtæki á Íslandi eru ríflega 99%
allra starfandi fyrirtækja á landinu. Þau eru
stærsti vinnuveitandinn í landinu og því er
þjóðhagslegt mikilvægi þeirra ótvírætt.
Hafdís Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Lauga spa og formaður fKA
Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lauga
Spa og formaður FKA.
eftir hrunið sá fólk að
heilsan er það dýrmætasta