Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 41

Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 41
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 41 setið fyrir svörum „Það sem þarf að gera svo fyrirtæki geti þrifist eðlilega er að lækka vexti, styrkja krónuna og gera gjaldmiðilinn okkar trúverðugan.“ 1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið eftir bankahrunið? Hafi komið til niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyr- irtæki þitt í hann og hver voru fyrstu þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum? Eftir bankahrunið fóru allir að endurmeta hvað væri mikilvægast í lífinu og flestir hafa komist að þeirri niðurstöðu að fjölskyldan og heilsan sé það dýrmætasta. Við fund- um strax fyrir aukinni mætingu hjá kort- höfum og einnig fjölgun nýrra viðskiptavina. Einnig fáum við mikið af hópum í dekur sem áður höfðu farið í helgarferðir til útlanda. Við fórum ekki í gegnum neinn hefðbundinn niðurskurð en höfum lagt aukna áherslu á að hagræða í innkaupum þar sem allir útgjaldaliðir hafa hækkað umtalsvert en við höfum ekki sett neina hækkun á okkar þjónustu. 2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyrir- tæki kvarti almennt undan viðmóti bankanna? Og yfir hverju er helst kvartað? Það heyrðist mikið fyrst að það væri allt frosið í bankakerfinu og ekkert gert. Léleg staða krónunnar gagnvart evrunni hefur mikil áhrif á fyrirtækin og þessi hávaxta- stefna sem er hér hjá okkur í dag er að sliga fyrirtækin í landinu. 3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn? Það sem þarf að gera svo fyrirtæki geti þrifist eðlilega er að lækka vexti, styrkja krónuna og gera gjaldmiðilinn okkar trúverðugan. Það er ekki góð stefna að auka endalaust álögur á fyrirtæki og fólk. Það þarf flæði svo fyrirtæki og fólkið í landinu geti blómstrað. 4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs betri eða verri en þú áttir von á? Heldur þú að árið 2010 verði betra eða verra en 2009? Þar sem allt var í svo mikilli óvissu fyrri hluta árs vegna alls þess óróa sem átti sér stað í þjóðfélaginu, stjórnarslita, kosninga o. fl., þá má eiginlega segja að fyrstu sex mánuðirnir hafi verið betri en ég átti von á. Því miður er nú ennþá allt í lausu lofti, en ef unnið verður í því að styrkja krónuna töluvert og vextirnir lækkaðir, þá verður 2010 betra. 5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og vantrausti á meðal erlendra viðskipta- vina og birgja? Fyrst eftir hrunið fundum við fyrir vissri stífni en jafnframt mikilli forvitni erlendra birgja og viðskiptavina, sem betur fer jafnaði það sig fljótt. Við fundum fyrir mikilli fjölgun erlendra ferðamanna sem komu til landsins gagngert eftir að hafa heyrt um Ísland í sambandi við hrunið. 6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst, sem og upp- lýsingar úr rekstri? Mér finnst sjálfsagt að upplýsingar um eignarhald sé ljóst. En hins vegar finnst mér núverandi kerfi á upplýsingum úr rekstri nægar, þ.e. að skila inn ársreikningi þar sem fram kemur afkoma, hagnaður eða tap. Aðrar upplýsingar um t.d. veltu, stöðu skulda og eigna finnst mér ekki eigi að veita. 7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn- völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá bankahruninu? Það sem þau hefðu átt að gera strax, þ.e. setja á þjóðstjórn, styrkja krónuna, lækka vexti og gera sér grein fyrir því að lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi eru ríflega 99% allra starfandi fyrirtækja á landinu. Þau eru stærsti vinnuveitandinn í landinu og því er þjóðhagslegt mikilvægi þeirra ótvírætt. Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lauga spa og formaður fKA Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lauga Spa og formaður FKA. eftir hrunið sá fólk að heilsan er það dýrmætasta
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.