Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 40

Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 300 stærstu „Nú þarf að nýta auðlindir landsins eins og hægt er og sem fyrst. Það má ekkert hik vera í að koma virkjanaframkvæmdum og orkufrekum iðnaði af stað.“ 1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið eftir bankahrunið? Hafi komið til niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyr- irtæki þitt í hann og hver voru fyrstu þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum? Við höfum farið í niðurskurð og kostnaðar- aðhald eins og hægt hefur verið og vorum reyndar byrjuð að gera ráðstafanir seinni hluta árs 2007. Einnig hafa allar fjárfest- ingar verið settar á ís og við reynt að lækka veltufjármuni, svo sem birgðir, eins mikið og mögulegt er. 2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyr- irtæki kvarti almennt undan viðmóti bankanna? Og yfir hverju er helst kvartað? Langt ákvörðunarferli hefur einkennt sam- skipti við bankana undanfarið ár, en starfs- fólk bankanna er vafalaust að reyna að gera sitt besta í erfiðu umhverfi. 3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn? Nei, síður en svo. Nú er okkar aðalvið- skiptabanki orðinn okkar helsti keppinautur eftir að ríkið (Landsbankinn) yfirtók Húsasmiðjuna. Við höfum getað staðið í skilum, en nú óttumst við að það sé verið að skekkja samkeppnisgrundvöllinn verulega okkur í óhag. 4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs betri eða verri en þú áttir von á? Heldur þú að árið 2010 verði betra eða verra en 2009? Starfsemi okkar á Íslandi var erfiðari en við áttum von á fyrstu sex mánuði þessa árs, en erlendis hefur ástandið verið heldur betra en búist var við. Næsta ár verður örugglega mjög erfitt á Íslandi. 5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og vantrausti á meðal erlendra viðskipta- vina og birgja? Því miður hafa margir erlendir birgjar, jafnvel þeir sem við höfum átt farsæl viðskipti við í áratugi, stytt greiðslufresti eða farið fram á fyrirframgreiðslur. Einnig hafa viðskipta- bankar okkar fyrirtækja erlendis verið mjög tortryggnir, sérstaklega fyrstu mánuðina eftir hrun. Það hefur farið mikil vinna í það hjá okkur að koma þeim samskiptum í betra horf. 6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst sem og upplýsingar úr rekstri? Mér finnst sjálfsagt að eignarhald fyrirtækja liggi fyrir opinberlega. Hins vegar verður að huga að samkeppnisaðstæðum varðandi rekstrarupplýsingar. Það fyrirkomulag sem nú er, þar sem fyrirtæki verða að skila inn reikningum sínum árlega, er nægjanlegt að mínu mati. 7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn- völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá bankahruninu? Nú þarf að nýta auðlindir landsins eins og hægt er og sem fyrst. Það má ekkert hik vera í að koma virkjanaframkvæmdum og orkufrekum iðnaði af stað. Jón Helgi guðmundsson, forstjóri Norvikur Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Norvikur. nýta auðlindir landsins til fulls
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.