Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Qupperneq 52

Frjáls verslun - 01.09.2009, Qupperneq 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 300 stærstu 1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið eftir bankahrunið? Hafi komið til niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyr- irtæki þitt í hann og hver voru fyrstu þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum? Iceland Express er lággjaldafélag og allur rekstur tekur mið af því. Við höfum ekki verið með mikla yfirbyggingu og allar okkar ákvarðanir hafa verið og eru teknar að vel yfirlögðu ráði. Okkar félag hefur gengið vel, enda aldrei fleiri erlendir ferðamenn sótt landið heim en á þessu ári sem liðið er. 2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyr- irtæki kvarti almennt undan viðmóti bankanna? Og yfir hverju er helst kvartað? Auðvitað heyrir maður ýmislegt og þá helst hversu erfitt sé að fá svör/viðbrögð við fyr- irspurnum og hversu langan tíma það taki. Raunar hefur tekið alltof langan tíma að koma bankakerfinu í gang á ný eftir hrun og það er enn talsvert langt í land. 3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn? Sú atvinnugrein sem hefur spjarað sig hvað best í umrótinu undanfarna mánuði er ferðaþjónustan. Gildi hennar hefur aldrei komið betur í ljós en einmitt núna í mótlætinu. Stjórnvöld þurfa hins vegar að styðja mun betur við bakið á ferðaþjónustunni því þar er hægt að gera svo miklu betur. 4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs betri eða verri en þú áttir von á? Heldur þú að árið 2010 verði betra eða verra en 2009? Gengið virkar í báðar áttir. Það er hagstætt fyrir erlenda ferðamenn að koma hingað til lands og þar eru sóknarfæri fyrir fyrirtæki eins og okkar – þótt það slái auðvitað á getu Íslendinga til að ferðast um heiminn um tíma. Það má því segja, að fyrstu sex mánuðir þessa árs hafi gengið jafnvel betur en ég átti von á. Hvort 2010 verði betra eða verra en 2009? Ég bara vona að það verði betra, við verðum að fara að koma okkur upp úr þessum öldudal. 5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og vantrausti á meðal erlendra viðskiptavina og birgja? Nei, við höfum ekki fundið fyrir því. 6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst, sem og upplýsingar úr rekstri? Almennt er ég fylgjandi gagnsæi í íslensku viðskiptalífi og að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst. Samkeppnislega séð geta hins vegar aldrei allar upplýsingar legið á lausu. Það er alltaf eitthvað sem fyrirtæki verða að halda fyrir sig. 7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn- völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá bankahruninu? Að horfa fram á veginn. Það sem er liðið er liðið, við megum ekki festa okkur í fortíðinni, nú er það uppbyggileg umræða og framtíðin sem skiptir öllu máli. „Við megum ekki festa okkur í fortíðinni, nú er það uppbyggileg umræða og framtíðin sem skiptir öllu máli.“ matthías imsland, framkvæmdastjóri iceland express Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express. Orkusalan selur raforku til heimila, fyrirtækja og stofnana á öllu landinu. Það er auðvelt að skipta yfir til okkar með einu símtali í 422 1000 eða með því að skrá sig á orkusalan.is Settu þig í samband við Orkusöluna og skiptu yfir í nýtt og ferskt rafmagn. Orkusalan | 422 1000 | Bíldshöfða 9 | 110 Reykjavík F ÍT O N / S ÍA megum ekki festast um of í fortíðinni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.