Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 125

Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 125
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 125 H já Promens hafa menn þurft að takast á við ýmsar áskoranir þótt meginhluti rekstrarins fari fram erlendis en tvær af 52 verksmiðjum, Sæplast og Tempra, eru hérlendis, að því er fram kom í máli Ragnhildar Geirsdóttur, forstjóra Promens. „Aðalmálið er að takast á við áskoranirnar á hverjum tíma og seiglast í gegnum þetta,“ sagði hún. Ragnhildur sagði að ánægjulegt væri að segja frá því að verk- smiðjurnar á Íslandi gengju mjög vel enda vel reknar. Í Evrópu hefði samdráttur orðið frá miðju síðasta ári en undanfarin 2–3 ár í Bandaríkjunum. Promens rekur verksmiðjur í 20 löndum og margar þeirra í Bandaríkjunum og í Evrópu. Frá september 2008 til hausts 2009 hefur níu verksmiðjum Promens verið lokað og 1500 starfs- mönnum sagt upp. Taka meðvitaðar ákvarðanir „Okkar stærsta áskorun tengist samdrætti í framleiðslu íhluta í bíla og samdrætti í efnahagslífi í Evrópu. Ýmsar tölur benda til að honum sé að ljúka en uppsveiflan sé frekar hægt. Það er mikilvægt í fyrirtæki eins og okkar að menn átti sig á hver sé staðan og taki meðvitaðar ákvarðanir í samræmi við það. Okkar viðbrögð voru endurskoðun í rekstri, fækkun starfsfólks og lokun verk- smiðja en stóra málið er tímasetningin.“ Nú sagði Ragnhildur að gerðar væru áætl- anir á þriggja mánaða fresti en í fyrrahaust hefði orðið að endurgera áætlanir á mán- aðarfresti í bílaiðnaðinum. Hún viðurkenndi að orðspor Íslands um þetta leyti í fyrra hefði skapað neikvæða ímynd um félag eins og Promens. „Hrunið varð til þess að það skapaðist óróleiki en við misstum þó ekki viðskipti. Það skapaðist neikvæður blær sem hafði áður verið jákvæður, greiðslufrestir stytt- ust og birgjar fóru jafnvel að biðja um fyrirframgreiðslu.“ Óvissan um stöðu eigendanna, Atorku og Landsbankans, hafði líka áhrif, þó kannski ekki á daglegan rekstur. Hjá Promens hefur verið brugðist við með því að horfa fram á við og endurskipuleggja reksturinn. „Við höfðum verið að fækka verksmiðjum um allt og því var komin ákveðin reynsla á það og við höfðum líka stöðugt verið að meta ástandið. Aðhalds hefur verið gætt í fjárfestingum og rekstri og mikil áhersla lögð á stýringu lausa- fjár. Aðalatriðið er að fylgjast vel með umhverfinu og vita hvenær eigi að grípa til aðgerða. Þetta hefur gengið mjög vel og byggist kannski á þeirri reynslu sem fyrir er af því að sameina og loka verk- smiðjum.“ Afla nýrra viðskipta Áhersla er nú lögð á vöxt fyrirtækisins, að afla nýrra viðskipta og halda áfram nýsköpun, góða stjórnun og að hlúa að starfsfólkinu. Ragnhildur sagði að gæta yrði þess að skera ekki í burtu vöruþróunina. Hún skipti gríðarlega miklu máli og þótt sam- dráttur sé á einu sviði sé hægt að vaxa á öðru. „Lykilatriðið er að við séum búin að koma fyrirtækinu í þá stærð að við getum siglt í gegnum þessar aðstæður og við erum orðin betra fyrirtæki eftir lokanir og fækkanir fólks. Hvað gerir maður svo öðruvísi? Maður verður að vera raunsær og nota seigluna að komast í gegnum áskoranirnar.“ óLÍKAR NÁLGANIR STjóRNENdA Í KREppuNNI Samdráttur í bílaiðnaði stærsta áskorun promens dýrt að fækka fólki Reynsla Promens sýnir að kostn- aðarsamt er að loka verksmiðju og fækka fólki, til dæmis í Frakklandi. Uppsagnarfrestur og áunnin réttindi starfsfólks eru fyrirtækjum dýr og geta numið 40-50 þúsund evrum hjá almennum starfsmanni. Þetta er líka erfitt ferli í Þýskalandi og Hollandi en í Bandaríkjunum er upp- sagnarfrestur kannski ekki nema mánuður. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.