Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 129
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 129
Endurskoðendur eru nokkurs konar atvinnutortryggjendur en kannski þurfa allir góðir fagmenn að vera það,“ sagði Margrét G.
Flóvenz, endurskoðandi og eigandi KPMG, á Hvatningarráðstefnu
Stjórnvísi og bætti við að menn þyrftu líklega að vera pínulítið
skrýtnir til að velja sér starfsgrein sem byggði á því að efast um allt.
Margrét sagði að aldrei yrði komist hjá því að skoða hið liðna
til að geta horft til framtíðar. Hlutverk endurskoðenda samkvæmt
lögum væri að gefa hlutlaust og áreiðanlegt álit á reikningsskilum og
öðrum fjárhagsupplýsingum. Tilgangur endurskoðunar væri að auka
traust til viðskipta. Öllum rekstri fylgdi áhætta og ein slík áhætta
er upplýsingaöflun. Það er sú áhætta að upplýsingar sem liggja til
grundvallar viðskiptalegum ákvörðunum séu rangar eða ófullnægj-
andi og tilgangur endurskoðunar er að draga úr þeirri áhættu. Ef
lánveitandi getur ekki reitt sig á að upplýsingar í ársreikningi lántak-
anda séu réttar þarf að bæta áhættuálagi á vextina til að tryggja sig
fyrir hugsanlegum áföllum.
Til sparnaðar
Þyrftu þeir, sem eru að hugsa um að kaupa hlut í félögum sjálfir, að
gera allar athuganir til að sannfæra sig um að óhætt væri að reiða sig
á upplýsingar gæti það orðið kostnaðarsamt. Endurskoðun er því
til lækkunar á viðskiptakostnaði. Í lögum er gert ráð fyrir að end-
urskoðandi verði að vera óháður fyrirtæki sem hann endurskoðar
og það gilda strangar reglur um óhæði endurskoðenda sem birtast í
siðareglum endurskoðenda.
„Menn hafa stundum viljað halda
fram að endurskoðandi sé fyrst og fremst
sérstakur trúnaðarmaður hluthafa. Hans
hlutverk sé að hafa eftirlit með stjórn og
stjórnendum í umboði hluthafa. Þetta er
misskilningur. Hlutverk endurskoðand-
ans er að gefa álit sitt á reikningum og
ábyrgð hans er sú sama gagnavart öllum
notendum reikningsskilanna, hvort sem
það eru hluthafar eða einhverjir aðrir.
Það er morgunljóst að endurskoðandi
getur ekki mismunað kaupanda og selj-
anda hlutabréfa með því að gefa hlut-
höfum í skráðu hlutafélagi upplýsingar
sem kaupandinn hefur ekki aðgang að,“
sagði Margrét.
Um rekstur endurskoðunarfyrirtækja sagði Margrét að sveiflur í
efnahagslífinu hefðu minni áhrif þar en víða annars staðar. Breyt-
ingarnar sem orðið hefðu í atvinnulífinu hefðu haft ótvíræða kosti
fyrir þá sem reka endurskoðunarfyrirtæki. Undanfarin ár hefðu
fjármálastofnanirnar dregið til sín mikinn fjölda starfsmanna, bæði
nýútskrifaða viðskiptafræðinga, endurskoðendur og starfsmenn end-
urskoðunarfyrirtækja sem olli oft miklu álagi og erfiðleikum í rekstri
endurskoðunarfyrirtækjanna. Þetta hefði breyst og nú væri mikil
ásókn í að læra og starfa við endurskoðun.
Hættumerki á lofti
Þá sagði Margrét að því hefði margsinnis verið velt upp á und-
anförnu ári hvort endurskoðendur hefðu látið hjá líða að vekja
athygli á þeim hættumerkjum sem voru á lofti eða þeim athuga-
semdum við ársreikninga sem sýndu frábæra afkomu og einstaklega
góða eignastöðu fyrirtækja sem núna eru fallin.
Hún sagðist ekki vita um tilvik þar sem sýnt væri að ársreikn-
ingar hefðu verið vísvitandi rangfærðir til að blekkja notendur þeirra
og fyrirvaralaus áritun þar með verið röng.
Hættan á að endurskoðendur áriti
reikningsskil ranglega hefði lengi verið
ljós en áriti endurskoðandi ársreikning
vísvitandi ranglega, væri augljóslega um
lagbrot að ræða sem beita þyrfti við-
urlögum við.
„Tíminn mun væntanlega leiða í ljós
hvort slík atvik hafi átt sér stað en ég er
þess fullviss að ef dæmi reynast um að
íslenskir endurskoðendur hafi ekki unnið
störf sín af heiðarleika og vandvirkni þá
heyrir það til algjörra undantekninga.
Hins vegar hefði mátt lesa ýmis hættu-
merki út úr þeim upplýsingum sem fyrir
lágu í samfélaginu fyrir hrun, m.a. árs-
reikningum fyrirtækja.
dæmigerður endurskoðandi?
Ímynd endurskoðandans hefur þróast á
síðustu áratugum. Fyrir 20-30 árum var
endurskoðandinn miðaldra karlmaður, í
drapplitum jakkafötum, gjarnan með skalla
og frekar drykkfelldur. Svo breyttist hún
þannig að hann var kominn í bleika skyrtu
eða LaCoste bol og var með golfsettið í bíl-
skottinu. Í könnun meðal sænskra kvenna
um kynþokkafyllstu stéttina voru endur-
skoðendur í neðsta sæti. Reyndin sé sú að
endurskoðendur séu bæði konur og karlar á
öllum aldri og allavega í laginu og að með-
altali álíka kynþokkafullir og slökkviliðs-
menn og hjúkrunarfræðingar!
Sama ábyrgðin
gagnvart öllum
Margrét G. Flóvenz er formaður félags endurskoðenda á Íslandi og
Norðurlöndunum.
Margrét G. Flóvenz,
endurskoðandi og einn eigandi KPMG